Andvari

Årgang

Andvari - 01.04.1960, Side 47

Andvari - 01.04.1960, Side 47
l’ORSTEINN VALDIMAllSSON: LEIÐSLA í vefstól skúraskýja hin skœra júnísól með geislavafi vefur ó vorið daggarkjól. Svo skín þér allt í einu þess undur tignarhljótt í Ijóma ungrar óstar á óttubjartri nótt. Þú stóðst við elfarstrenginn, er stríður geystist hjá, en bakkinn rósum roðinn í regnsins bláma lá. Nú veit ei fyrr né framar hinn fangni hugur þinn en tíð og leið þér týnast í tíbrá vorsins inn. Þú fellur fram og skelfist, hve fögur mynd þess er, og kjólfald bryddan blómum þú berð að vörum þér.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.