Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1984, Blaðsíða 67

Andvari - 01.01.1984, Blaðsíða 67
ANDVARI GRIPIÐ NIÐUR í ÍSLENDINGASÖGU 65 yndi; fór hann út til Staðar, því at þá var svá ástúðigt með þeim bræðrum, at nær þóttist hvárrgi mega af öðrum sjá.“ Því at þá var svá ástúðigt með þeim hræðrum — segir Sturla og gefur með því í skyn, að sú vinátta muni ekki endast ævinlega. Þá bregður hann upp mynd af föður sínum, er sýnir, hve ráðríkur og skapbráður hann gat verið, en jafnframt viðkvæmur, þegar til alvörunnar kom. Sturlusynir eru fjórir á ferð og eru komnir ásamt fleira fólki til lauga.r í Sælingsdal. „Þá bjó Hallr Arason á Höskuldsstöðum. Hann var þar kominn ok synir hans. Þeir förunautar Þórðar höfðu þar tekit þjóf ok ætluðu at festa upp, en Hallr ok synir hans kómu honum í brott. Við þat varð Þórðr svá reiðr, at hann bað ganga at þeim. Guðný móðir hans helt honum ok fleiri menn. Þá eggjaði hann bræðr sína, Svein ok Sighvat. Þeir Hallr hlaupa at heydes ok vörðust þaðan. Þar vá Ámundi Bergsson þann mann, er Þórhallr hét. En er Þórðr vissi þat, þá bað hann þá Svein hætta atsókninni, og var svá gert. Fóru þeir þá vestr til Saurbæjar ok sættust á víg Jóns [eins frænda Björns, hálf- bróður Þórðar, er veginn hafði verið]. Þórðr bætti ok þat víg, er Ámundi hafði vegit, ok settu því máli öllu.“ Eftir þessa fróðlegu lýsingu bætir Sturla við frásögn af enn einu kvon- fangi föður síns: „Þórðr Sturluson fekk Guðrúnar, dóttur Bjarna Bjarnasonar, er átt hafði Þorvarðr inn auðgi; tók hann við henni mikit fé; gerðist Þórðr þá höfðingi.“ En friðurinn stendur aldrei lengi í Islendingasögu. Tvo menn „skildi á um viðirif á fjalli, ok margt varð þeim til óþykkju.“ Annar þessara manna var þingmaður Þórðar Sturlusonar, svo að hann verður brátt við mál hans rið- mn. Endar það með miklum sveitardrætti á sjálfu alþingi, og verða þar at- hlaup og vígaferli. Varð loks gi’iðum á komið, „en engar urðu sættir á því þingi. En Páll biskup átti þar mestan hlut at meðalgöngunni.“ Og allt spratt þetta í upphafi, eins og fyrr segir, af ágreiningi um víðirif á fjalli. Ekki örlar oft á því, að mönnum blöskri allar þessar fánýtu barsmíðar og stöðugu herferðir. En svar Gísla gamla Markússonar af Bauðasandi við ávarpi Gizurar Þorvaldssonar, er létt var umsátrinu um hann í Skálholti 2. janúar 1242, segir mikið eða eins og Sturla lýsir þessu í 155. kapítula sögunnar: Eftir þat stigu þeir Örækja á bak ok riðu burt. Ok er Gísli af Sandi reið fram með kirkjugarðinum, þá spurði Gizurr, hverr þar væri. Gísli nefndi sik. „Langt hafa slíkir til sótt,“ sagði Gizurr. „Nauðsyn þótti á vera,“ sagði Gísli. „Far eigi oftar at mér,“ sagði Gizurr, „því at þú munt ekki standa yfir höfuðsvörðum mínum.“ 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.