Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1984, Blaðsíða 87

Andvari - 01.01.1984, Blaðsíða 87
ANDVARI JOCHUM 85 með efni sem hlífði þeim að nokkru fyrir eldi og fúa.) Á síðunum fáeinar læsi- legar áletranir, þessutan var efni þessa sliturs ólæsilegt. Þetta gerðist 6. október 1933, segir i sömu heimild. Jochum hafði þá þegar fengið vissu fyrir að til hafi verið höfuðrit is- lenskra galdramála. Á leit sinni og fræðagrúski efndi hann í og las saman, eftir því sem hann ritar, afrit þessarar bókar allrar. Stafirnir höfðu verið teknir upp úr henni í þeirri trú að um galdrastafi væri að ræða og líklega notaðir sem slíkir, samkvæmt þeirri þjóðtrú. Jochum réð letrið og kom þá í ljós að það hermdi ekki af galdri heldur menningu þjóðarbrots sem lifði í landinu fyrir tíð norrænna manna, einnig af samskiptum þess fólks við hina síðar komnu landnema og af endalokum þess. Ritið allt taldi Jochum sig hafa í höndum, 70—80 síður, eftir að hafa raðað saman uppskriftum sínum. Kristin kirkja hefur leikið grátt þá menningu sem fyrir er á þeim lands- svæðum þar sem hún hefur fest rætur. Guðir frumbyggja orðið með tíman- um að illvættum í ljósi tvihyggju hennar, frumbyggjar sjálfir villimenn, heiðni ámælisverð í sjálfri sér, fomminjar óheillagripir, fornar leturgerðir bendlaðar við fordæðuhátt (t. d. á Páskaeyjum). Um dæmi þarf ekki að fjölyrða, þau eru flestum kunn. Síðast talið segir Jochum að hafi gerst á Islandi. Frumrit af landnámssögu norrænna manna héðra var gerð undir ritstýringu kirkjunnar manna eins og alkunna er, Islendingabók Ara fróða. Þessi þróun mála er trú- verðug hafi á annað borð verið menning í landinu á undan hinni norrænu. Jochum hefur mikið undir er hann endursegir þá menningarsögu. Sönn- unargögnin vantar. En stam, gífuryrði, ofskynjanir eru ein sér ekki nægt til- efni til að hafna vitnisburði manns, hafi hann horft gegn sterku ljósi á undan- lega hluti gerast. Þýskur hóteleigandi, Daniken, ferðaðist milli heimshorna til að finna gögn til stuðnings kenningu sinni um að ráðgátur mannkynssögun- ar, og þær eru margar, yrðu skýrðar í einu lagi með ferðum vera frá öðrum hnöttum til jarðarinnar á ýmsum skeiðum á tilvistartíð mannsins, einfaldanir Dánikens, glæfralegar ályktanir, jafnvel falsanir hafa verið afhjúpaðar en bæk- ur hans héldu eftir sem áður áfram að koma út í stórum upplögum. Einyrkj- anum Jochum gekk þó ekki til gróðahyggja og að kasta rýrð á mannlegt at- gerfi eins og hinum fyrrverandi hótelrekanda og núverandi auðmanni Dániken, heldur að uppgötva sannleika sem skynsamlegu viti yrði komið yfir og láta við sitja. Um þjóð sina einkum en einnig um vísdómsmál mannkyns yfirleitt. Eftir því sem best er vitað lúrði Jochum á gögnum sínum, raunverulegum eða ímynduðum, afritum, skinnblöðum, eins og ormur á gulli sínu. Og í ritum smum er honum ósýnt um að visa máli sínu til heimilda sem geti orðið eða séu aðgengileg öðrum en honum sjálfum. Eins og fleiri íslenskra utangarðs- manna var mannfyrirlitning hans ósmá, tortryggni ærin svo að borgaraleg sál- fræði ætti ekki í vanda að finna henni stað á spjaldskrám sínum. Ég get þess til skýringar þvílíkum heimóttaskap manns sem var svo mjög í mun að ná til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.