Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1984, Blaðsíða 89

Andvari - 01.01.1984, Blaðsíða 89
ANDVARI JOCHUM 87 valdra, valinna ofan frá, innan strangrar reglu. Grikkir hafa líklega orðið fyrstir til að brjóta þetta siðalögmál með heimspekiskóla sínum og farandkennslu og þá líklega ekki öllum líkað. Hvað sem af því verði sagt frekar þá skrifar Jochum að fram á 5.-6. öld hafi launhelgar verið á þessari tilteknu eyju og hyggt á sömu kenningum og víðsvegar annars staðar í hinum fornu menningarríkjum. En á þessum tima hafi lærdómsmönnum ekki lengur verið vært á eyjunum fyrir sjóræningjum og ámóta dóti og hefðu því leitað þaðan burt og út fyrir mörk þess svæðis sem í þann tíma var orðið undirlagt af veraldlegum siðum, siðvætt á þá vísu, þeir fóru alla leið til Suðureyja við Skotlandsströnd vestan- verða. Og til stuðnings þessum orðum sýnir Jochum fram á skyldleika milli heita á eyjum þar á hjara og í hinu sólríka Eyjahafi. Á Suðureyjum og þar um slóðir eru steinsúlur, — hringir og hleðslur sem haganlegar er komið fyrir en svo að tekist hafi að skýra hvernig unnið var, hringir og súlur að likindum stjörnufræðilegar reiknivélar. Samanber kenningar um Stonehenge á suður Englandi. Fátt eitt er vitað um uppruna þessara mannvirkja. Og enn að flest- um reynist að líkindum torvaldara að lesa hið mikla safnrit Robert Graves „Grískar goðsagnir" en Irum og Islendingum, svo margt er líkt með þjóðsögum þessara þriggja þjóða. Hugur nútíma íslendings stefnir i gagnstæða átt en það gerir frásögn um þessa búferlaflutninga ekki minna sannfærandi. Samkvæmt henni settu Crys- ostomar kúrsinn eftir egypsku líkani af eigin heimsmynd, Keopspíramítanum. Og að hyggju þeirra framfylgdu þeir þvi sem þegar var orðið þótt blekkingar skilningarvitanna segðu þeim að til væri framtíð. Þeir voru farmenn og héldu uppi samgöngum suður á bóginn og einnig eftir að þeir höfðu flúið víkinga, sem teknir voru að herja í vesturveg svo um munaði, til íslands, einnig eftir tilvísun píramítans mikla. Þjóðarbrot þetta hafði þá búið í öld eða tvær á Suðureyjum. Jochum var sjálfur handbendi hinna jónísku launhelga, raun- verulegra eða ímyndaðra; sé gert ráð fyrir að hann hafi ráðið texta, fundið rit sem hann taldi vera eftir höfuðpaur þeirrar reglu er eðlilegt að ætla að honum hefði þótt siðbönn hennar ná yfir sig lika. Á einum stað ritar hann að það sem hann hafi látið uppi sé aðeins brot á móti þvi sem hann hafi látið ósagt. 1 ljósi þessa verður þá pukur hans með heimildir sínar næsta eðlilegt. Vistmenn hinna kristnu klaustra, arftaka, að visu dálítið siðbrenglaðra, launhelganna fornu áttu yfir höfði sér líkamlega refsingu, a. m. k. sumra, ef þeir rufu heit sín, með- bmum hinna fornu launhelga dugði yfirleitt sem aðhald óttinn við að týna sjálfum sér; við ævarandi útlegð frá þeim sem eignast hafði sjálfsímynd við- komandi. Óráðskenndur frásagnarháttur Skugga er einnig næsta skiljanlegur ut frá sama sjónarmiði. Hann er að leggja fyrir venjulega íslendinga orð sjálfs höfuðpaursins, vitandi að enginn má ílytja öðrum þvílíka þekkingu nema hann sé vígður til þess. Kolskeggur hét sá, styttingin, Kölski, varð í meðförum kristinna manna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.