Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 2
2 19. september 2009 LAUGARDAGUR
Stefán Máni, heitir næsta bók
Hótel D‘Angleterre?
„Nei, hún heitir Magazine du Morð.“
Danskir glæpasagnaunnendur hafa
bundist rithöfundinum Stefáni Mána
sérstökum tryggðarböndum. Stefán er
höfundur bókarinnar Hótel Kalifornía, en
Hotel D‘Angleterre í Kaupmannahöfn var
í eigu Íslendinga.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 19. janúar n.k.
Kennsludagar:
Mánudagar og fimmtudagar frá 20:00 til 21:30 auk eftirfylgdartíma, alls 14 klst.
Kennarar: Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir,
sérfræðingar í klínískri sálfræði.
Kynningarverð: 42 000.
Niðurgreiðsla möguleg hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Skráning og fyrirspurnir í símum 5340110 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is
N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s .
Vellíðan án lyfja
með verkfærum sálfræðinnar
Fjögurra vikna námskeið Kvíðameðferðar-
stöðvarinnar til að takast á við vanlíðan, álag
og spennu. Kenndar leiðir hugrænnar
atferlismeðferðar til að skoða og breyta
hugsunum og viðbrögðum sem viðhalda
kvíða og depurð. Öflugar slökunar- og
hugleiðsluaðferðir jafnframt kenndar.
j g rra vikna árangursmælt námskeið
Kví ameðferðarstöðvarinnar til að takast á
við vanlíðan, álag og spennu. Kenndar leiðir
hugrænnar atferlismeðferðar til að skoða
og breyta hugsunum og viðbrögðum sem
og hugleiðsluaðferðir jafnframt kenndar.
i urgrei sla guleg hjá sjúkrasj u stéttarfélaga.
LÖGREGLUMÁL Bíræfnir innbrots-
þjófar fóru inn á heimili ungs pars
í Hafnarfirði í fyrrinótt, stálu
eigum þeirra og óku síðan á brott
á báðum bílum þeirra á meðan
fólkið var í fastasvefni.
„Ég áttaði mig ekki á þessu fyrr
en þegar ég fann ekki bíllyklana
mína þegar ég var að fara í vinn-
una um morguninn,“ segir Ólaf-
ur Aron Haraldsson, 24 ára, sem
býr ásamt 22 ára kærustu sinni í
Ásahverfi í Hafnarfirði. „Þá tók
ég eftir að bíllinn var ekki fyrir
utan.“
Þegar Ólafur skoðaði sig betur
um í íbúðinni sá hann að 42 tommu
flatskjár var á bak og burt úr stof-
unni. Þá höfðu
þjófarnir tekið
veski hans og
kærustunnar
með öllum skil-
r íkjum, a l la
lykla, úr og
skólatösku, auk
þess sem þeir
kipptu með sér
öllum fatnaði af
þvottasnúrum
– sumum hverjum dýrum tísku-
vörum.
Þjófarnir voru að öllum líkind-
um tveir eða fleiri, því þeir óku
burt á báðum bílum fólksins, tíu
ára gömlum Subaru Impreza og
sjö ára Peugeot 206.
„Þeir voru þvílíkt kaldir,“ segir
Ólafur, hissa á innbrotsþjófunum.
„Það fór ekkert á milli mála að það
var einhver heima í húsinu.“
Svo virðist sem þjófarnir hafi
farið inn um fremur lítinn glugga
á neðri hæð hússins, sem á var
rifa, og hafi verið mjög hljóðlát-
ir. Parið á lítinn silkiterríer-hund
sem geltir á allt og alla, að sögn
Ólafs. Hundurinn þagði hins vegar
alla nóttina, sem bendir sterklega
til þess að hann hafi ekki orðið
þjófanna var og hafi sofið allt af
sér.
Ólafur G. Emilsson, stöðvar-
stjóri lögreglustöðvarinnar í Hafn-
arfirði, segir innbrotið ekki eins-
dæmi síðustu daga. Ekki sé hægt
að tala um faraldur, en þó hafi tvö
önnur innbrot verið tilkynnt frá
því á fimmtudag.
Í tveimur innbrotanna var
farið inn
í mann-
laus hús
u m h á bj a r t a n d a g og
þaðan stolið ýmsum munum.
Ólafur segir ekki liggja fyrir
hvort tengsl séu á milli innbrot-
anna þriggja, en innbrotin tvö um
miðjan dag, á fimmtudag og í gær,
hafi hins vegar verið ákaflega lík.
Innbrotum af því tagi, þar sem
farið sé inn í hús um miðjan dag
þegar heimilisfólk er við vinnu,
hafi fjölgað nokkuð að undan-
förnu.
stigur@frettabladid.is
Stálu bílum og flat-
skjá af sofandi pari
Þjófar brutust inn í íbúð í Hafnarfirði á meðan heimilisfólkið var í fastasvefni.
Þeir stálu meðal annars stórum flatskjá og fötum af þvottasnúru og óku síðan
af vettvangi á báðum bílum fólksins. Geltinn silkiterríer svaf allt saman af sér.
ÓLAFUR G.
EMILSSON
SVAF Á VERÐINUM Þjófarnir þurftu ekki að brjóta
sér leið inn í húsið, heldur komust inn um glugga
með rifu á. Heimilishundurinn þagði þunnu hljóði.
LÖGREGLUMÁL Tilkynnt var um
319 innbrot í ágúst, 27 prósentum
fleiri en í sama mánuði í fyrra. Á
sama tíma fækkaði þjófnaðarbrot-
um milli ára, voru 424 í nýliðnum
ágúst, sex prósentum færri en í
ágúst í fyrra.
Þetta kemur fram í samantekt
Ríkislögreglustjóra yfir afbrot
í ágúst. Alls voru 2.457 innbrot
skráð á fyrstu átta mánuðum árs-
ins, eða tíu á dag að meðaltali.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu eru gengi Pólverja sem
handtekin voru nýverið talin hafa
framið samtals 37 innbrot að und-
anförnu. Það er rúmlega helming-
ur af aukningu innbrota í ágúst. - bj
Afbrotatölur frá lögreglu:
Innbrot fjórð-
ungi fleiri
VIÐSKIPTI Breska Financial Times
Stock Exchange (FTSE) hefur
ákveðið að hætta að birta upplýs-
ingar um stöðu mála á Íslandi í
vísitölum sínum. Þetta er enn eitt
áfallið fyrir Ísland segir í frétt
Financial Times.
Ástæðan fyrir þessari ákvörð-
un er hrun íslenska efnahags-
kerfisins og viðskiptabankanna.
Við það hrundi hlutabréfamark-
aðurinn svo mikið að hann er
ekki lengur tækur hjá FTSE, að
því er segir í Financial Times.
Þetta er í fyrsta skipti frá því
FTSE kom á fót heimsvísitölu-
lista árið 2003 sem þjóð er tekin
af listanum. - bj
Birtingu vísitölu hætt:
FTSE kippir
Íslandi út
KÍNA, AP Götur í hluta Peking,
höfuðborgar Kína, voru rýmdar í
gær til að gefa hermönnum tæki-
færi til að æfa skrúðgöngu sem
fara mun um borgina 1. október.
Þá verður 60 ára afmæli valda-
töku kommúnista í Kína fagnað.
Íbúum og starfsmönnum fyrir-
tækja í nágrenni skrúðgöngunn-
ar var skipað að hafa sig á brott
meðan á æfingu gærdagsins
stæði svo að skrúðgangan á
afmælisdeginum falli ekki í
skuggann.
Talið er að hersýningin
sem haldin verður á afmæli kín-
verska alþýðulýðveldisins verði
sú stærsta í landinu í áratug. - bj
60 ára afmæli kommúnisma:
Götur rýmdar
vegna göngu
AFMÆLI Kínverjar eru farnir að undirbúa
afmæli kommúnismans, þótt þessi
maður gangi lengra en flestir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Metframleiðsla á mjólk
Kúabændur slógu met í mjólkurfram-
leiðslu á síðasta verðlagsári, sem
lauk í lok ágúst. Framleiddar voru
rúmlega 126 milljónir mjólkurlítra,
1,4 milljónum lítra meira en á sama
tímabili í fyrra.
LANDBÚNAÐUR
FJÖLMIÐLAR Ólafur Stephensen lét
af störfum sem ritstjóri Morgun-
blaðsins í gær. Ekki hefur verið
greint frá hver verður eftirmaður
hans. Fram kemur í tilkynningu
frá Óskari Magnússyni, útgáfu-
stjóra Morgunblaðsins, að nýr rit-
stjóri verði ráðinn svo fljótt sem
kostur er.
Ástæða uppsagnarinnar mun
vera mismunandi áherslur Ólafs
og stjórnar blaðsins varðandi
rekstur og skipulagsbreytingar
sem búist er við að verði gerðar
fyrir mánaðamótin. - shá
Breytingar á Morgunblaðinu:
Ritstjóra sagt
upp störfum
ÓLAFUR STEPHENSSEN Uppsögn ritstjór-
ans var illa tekið á ritstjórn Morgun-
blaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ORKUMÁL. Tillaga iðnaðarráðherra um framlengingu
viljayfirlýsingar vegna byggingar álvers á Bakka
fékkst ekki afgreidd á ríkisstjórnarfundi á þriðju-
dag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Vegna
andstöðu ráðherra Vinstri grænna var tillagan ekki
samþykkt heldur vísað til meðferðar í sérstakri ráð-
herranefnd um orkumál. Sú nefnd var sett á laggirnar
á þriðjudag til að fjalla um málið og einnig þau verk-
efni á sviði orkumála sem tengjast Stöðugleikasátt-
mála ríkisstjórnarinnar og aðila á vinnumarkaði.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Júlíus-
dóttir iðnaðarráðherra, voru skipuð í ráðherranefnd-
ina. Katrín er erlendis um þessar mundir og tók
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sæti í nefnd-
inni sem starfandi iðnaðarráðherra. Nefndin hittist
þannig skipuð á fimmtudag, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins, fór yfir málið en komst ekki að niður-
stöðu.
Viljayfirlýsingin um álver við Bakka á að renna út
um næstu mánaðamót.
Í stöðugleikasáttmálanum svonefnda segir að ríkis-
stjórnin muni greiða götu þegar ákveðinna stórfram-
kvæmda, svo sem álvera í Helguvík og Straumsvík,
auk þess að hraða undirbúningi áforma sem tengjast
fjárfestingu í meðalstórum iðnaðarkostum, svo sem
gagnaverum og kísilflöguframleiðslu. „Kappkostað
verður að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda
í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember 2009,“
segir í sáttmálanum.
Í sáttmálanum er ekki vikið að álveri við Bakka. - pg
Sérstök ráðherranefnd sett á fót vegna álvers á Bakka og fleiri verkefna:
VG kom í veg fyrir nýja viljayfirlýsingu
HÚSAVÍK Viljayfirlýsing um álver á Bakka við Húsavík rennur út
um mánaðamótin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra er vænd um að
hafa í hótunum við Sjálfstæðis-
flokkinn með yfirlýsingum í fjöl-
miðlum. Jóhanna segir stjórnar-
andstöðuna hafa rofið trúnað um
hugmyndir Breta og Hollendinga
um fyrirvara Icesave-samnings-
ins. Yfirlýsingar hennar í frétt-
um Sjónvarpsins í gærkvöldi eru
sagðar „í senn ósannar og ómerki-
legar“.
Þetta kemur fram í harðorðri
fréttatilkynningu frá Sjálfstæðis-
flokknum sem Illugi Gunnarsson
þingflokksformaður, er skrifað-
ur fyrir og var send fjölmiðlum í
gærkvöldi.
Jóhanna sagði í sjónvarpsfrétt-
um að ríkisstjórnin hafi treyst
stjórnarandstöðunni fyrir upplýs-
ingunum en það traust hafi verið
brotið og þeim lekið í fjölmiðla.
„Þetta hlýtur að kalla á það að við
verðum að endurskoða samskipti
okkar við stjórnarandstöðuna,“
sagði hún.
Þetta túlka sjálfstæðismenn
sem hótun og vísa því alfarið á
bug að trúnaður hafi verið rofinn.
Umfjöllun Sjálfstæðisflokksins um
málið hafi í hvívetna verið eins og
um hafði verið beðið. „Yfirlýsingu
forsætisráðherra ber að túlka sem
hótun af hennar hálfu og vísbend-
ingu um að mál verði til lykta leidd
með átökum, en ekki samstarfi. Því
verður að sjálfsögðu mætt eins og
tilefni er til“, segir í tilkynningu
flokksins. - shá
Sjálfstæðisflokkurinn segir forsætisráðherra boða átök við stjórnarandstöðuna:
Segja Jóhönnu með hótanir
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
ILLUGI
GUNNARSSON
SPURNING DAGSINS