Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 4
4 19. september 2009 LAUGARDAGUR
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Sölusýning
Fjöldi tilboða í
tilefni dagsins.
Verið velkomin
í verslun okkar
að Nóatúni 4.
í dag frá kl.
10 til 16.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
21°
23°
20°
23°
25°
21°
19°
19°
24°
24°
26°
23°
32°
18°
23°
24°
18°
Á MORGUN
7-15 m/s
Hvassast sunnan til.
MÁNUDAGUR
SV 5-15 m/s
Hvassast sunnan til.
10
9
9
10
9
10
11
10
6
12
3
5
7
3
6
4
3
4
5
2
10
8
12
9
10
11
9
10
8
10
12
8
VÆTUTÍÐ Í dag
verða skúrir víðs
vegar vestan til en
austanlands verður
bjart og fallegt
veður að mestu.
Aðfaranótt sunnu-
dags dregur til
tíðinda. Þá kemur
kröpp lægð upp að
sunnanverðu land-
inu með tilheyrandi
vætu og vindi.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
GENGIÐ 18.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,141
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,27 123,85
201,68 202,66
181,19 182,21
24,348 24,49
20,963 21,087
17,892 17,996
1,3496 1,3574
195,17 196,33
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands
hefur ákveðið að styrkja eftir-
lit sitt með gjaldeyrishöftunum.
„Það er verið að herða eftirlitið
vegna þess að það hefur komið
upp fjöldi vísbendinga um að það
sé verið að fara í kringum höft-
in,“ segir Ingibjörg Guðbjarts-
dóttir, forstöðumaður gjaldeyr-
iseftirlitsins.
Ingibjörg segir erfitt að meta
hversu háar upphæðir um sé að
ræða eða fjölda mála sem tengist
brotum á gjaldeyrislögum og regl-
um settum á grundvelli þeirra.
„Þetta eru bæði aflandsviðskipti
og brot á skilaskyldunni en það
er erfitt að nefna tölur. „Ég get
þó sagt að það eru fjölmörg mál
til skoðunar og við höfum verið
að starfa náið með Fjármálaeft-
irlitinu (FME) og mörg þeirra
eru til skoðunar þar. Þetta er erf-
itt ástand og við erum að
reyna að taka á því.“
Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá hefur
að undanförnu verið fjöldi mála
til skoðunar hjá Seðlabankan-
um og nokkrir tugir mála eru nú
þegar í rannsókn. Erfitt hefur
hins vegar verið að fá upplýsing-
ar um framgang þeirra.
Ingibjörg vill ekki tjá sig um
hvort stofnun sérstakrar eftirlits-
deildar vegna gjaldeyrishaftanna
sé ekki seint til komin og eðlilegt
hefði verið að hún hefði verið sett
á fót á sama tíma og höftunum
var komið á.
Ársæll Valfells, lektor við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands, sem hefur gagnrýnt
gjaldeyrishöftin í ræðu og riti,
telur að aðgerð eins og þessi geri
það enn ólíklegra að hægt verði
að afnema höftin eins og ráð-
gert er. „Ef eitthvað er þá skapar
þessi aðgerð meira vantraust og
tortryggni á Seðlabankan-
um, sem er þó í dag
fullkomlega rúinn
trausti.“ Ársæll
segir að aðgerðin
sé aðeins fram-
hald á þeim víta-
hring sem bankinn er fastur í
eftir setningu gjaldeyrishafta-
laganna.
Í tilkynningu frá bankanum
segir að endurskipulagning gjald-
eyriseftirlitsins breyti engu áætl-
un um afnám gjaldeyrishafta.
Áformað er að stíga fyrstu skref-
in í þeim efnum 1. nóvember
næstkomandi. Ingibjörg segir
að mikilvægur þáttur áætlunar-
innar sé að efla eftirlit með þeim
höftum sem eftir standa og til að
framfylgja þeim af meiri krafti.
Gjaldeyriseftirlitið verður
sjálfstæð eining innan bankans
og heyrir beint undir seðlabanka-
stjóra. Sérstök ráðgjafarnefnd
verður gjaldeyriseftirlitinu til
stuðnings. svavar@frettabladid.is
Seðlabankinn eykur
eftirlit með höftum
Brot á gjaldeyrislögum fá aukið vægi innan Seðlabankans með sérstakri eftir-
litsdeild sem heyrir beint undir seðlabankastjóra. Tugir mála eru í rannsókn.
Háskólalektor segir aðgerðina auka á vantraust á bankanum.
MÁR GUÐMUNDSSON
Litið er á breytinguna sem
stefnumarkandi yfirlýsingu
nýs seðlabankastjóra um
að eftirlit verði eflt að
mun.
PAKISTAN, AP Í það minnsta 25 óbreyttir borg-
arar liggja í valnum og fjölmargir til viðbót-
ar eru sárir eftir sjálfsmorðsárás í pakist-
önskum bæ í gær. Árásarmaðurinn ók bíl
hlöðnum sprengiefnum inn á hótel við mark-
að í bænum Usterzai og sprengdi sig í loft
upp.
Sprengingin gjöreyðilagði lítið hótel og
markaðsbása nærri því. Þá eyðilögðust bílar
sem lagt hafði verið í nágrenninu. Í gær
unnu björgunarmenn að því að ná slösuðum
og látnum út úr rústunum.
Eigandi hótelsins sem ráðist var á er sjíti,
en átök milli sjíta og sunni-múslima hafa
aukist undanfarið.
Þetta er önnur sjálfsmorðsárásin á tveim-
ur dögum á svæðinu, sem er skammt frá
landamærunum við Afganistan. Þessi hluti
Pakistans hefur logað í átökum undanfarið,
eftir að stjórnarherinn réðist af meiri hörku
en áður gegn talíbönum sem halda til í fjall-
lendi á landamærum Pakistans og Afganist-
ans.
Árásir stjórnarhersins hófust fyrir um
fjórum mánuðum og segja talsmenn hersins
að um 1.800 meintir liðsmenn talíbana hafi
fallið á þeim tíma og þrír af æðstu leiðtogum
talíbana á svæðinu verið teknir höndum.
Bandarísk stjórnvöld þrýsta mjög á stjórn-
völd í Pakistan um að ná tökum á ástandinu
við landamæri Afganistans sem fyrst. - bj
Sjálfsmorðsárás í landamærabæ kostar í það minnsta 25 óbreytta borgara lífið:
Blóðbað í sprengingu á markaði í Pakistan
SPRENGING Unnið var að því í gær að ná særðum og
látnum úr rústum bygginga eftir árásina. NORDICPHOTOS/AFP
NÁTTÚRA Hinir skæðu spánar-
sniglar hafa numið land í Kópa-
vogi og Mosfellsbæ í sumar, en
sniglanna hefur ekki áður orðið
vart í bæjunum þótt þeir hafi
fundist í höfuðborginni. Spár um
fjölgun sniglanna í sumar virðast
því vera að rætast.
Á vef Náttúrufræðistofnunar
kemur fram að spánarsniglanna
hafi lítið orðið vart fyrri hluta
sumars sökum þurrka. Þeir hafi
svo orðið meira áberandi í haust-
rigningunni.
Einn snigill fannst raunar á
Hofsósi í sumar. Hann mun ætt-
aður frá Hollandi og barst til bæj-
arins með kálhöfði. - bj
Spánarsniglar breiðast út:
Nema land ná-
lægt höfuðborg
SNIGLAST Útbreiðsla nýrrar sniglateg-
undar gengur hægt. Mætti raunar segja
að útbreiðslan sé á hraða snigilsins.
Pallbíll brann
Pallbíll stórskemmdist í eldi fyrir utan
íbúðarhús við Þverás í Reykjavík í
fyrrinótt. Slökkviliðið var tuttugu mín-
útur að slökkva eldinn. Nálægur bíll
skemmdist líka af eldinum. Eldsupp-
tök eru ókunn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BURMA, AP Stjórnvöld í Búrma
tilkynntu á fimmtudag að 7.114
föngum yrði sleppt af mannúðar-
sjónarmiðum.
Talið er að með
því vilji stjórn-
völd í landinu
draga athyglina
frá máli Aung
San Suu Kyi, en
lögfræðingur
hennar áfrýjaði
málinu form-
lega í gær.
Suu Kyi var
dæmd í átján mánaða stofufang-
elsi í ágúst fyrir að brjóta gegn
skilyrðum stofufangelsis hennar
með því að taka við bandarískum
manni sem laumaðist inn í hús
hennar.
Lögmaður Suu Kyi sagðist í
gær bjartsýnn á að áfrýjunin
skili árangri og hún fái frelsið
sem fyrst. - bj
Stjórnvöld sleppa þúsundum:
Draga athygli
frá áfrýjuninni
AUNG SAN SUU KYI
Tengt fyrir sjónvarpi í Ölfusi
Mikið mun vera um það í Ölfusinu án
samþykkis skipulags- og byggingar-
nefndar. Skipulagsfulltrúinn hefur því
ákveðið að skoða möguleika á teng-
ingum fyrir sjónvarpsstöðvar þannig
að ekki þurfi að setja móttökudiska
utan á hús.
SKIPULAGSMÁL
VIÐSKIPTI Markaðsverðmæti net-
síðunnar Twitter er nú orðið einn
milljarður dollara eða tæplega
124 milljarðar króna. Þetta þykir
nokkuð gott í ljósi þess að Twitt-
er er enn í sömu skrifstofum í San
Francisco þar sem félagið hóf
starfsemi sína 2006 og starfsfólk-
ið er ekki nema um 50 manns.
Evan Williams, forstjóri Twitt-
er, hefur gengið frá nýrri fjár-
mögnun til félagsins upp á 50
milljónir dollara og liggur það til
grundvallar fyrrgreindu verð-
mati.
Fyrr í ár fékk Twitter 35 millj-
ónir dollara í nýtt fjármagn frá
Benchmark Capital og Instituti-
onal Venture Partners. Þá var
markaðsverðmæti félagsins metið
á 250 milljónir dollara.
Vefsíðan Twitter:
Milljarða dollara
í markaðsvirði