Fréttablaðið - 19.09.2009, Qupperneq 6
6 19. september 2009 LAUGARDAGUR
KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn er
á ný stærsti stjórnmálaflokkurinn
samkvæmt skoðanakönnun MMR.
Flokkurinn mælist með 31,6 pró-
senta fylgi, en fékk 23,7 prósent í
kosningum í apríl.
Samfylkingin hefur misst um
fjórðung kjörfylgis síns samkvæmt
könnuninni og mælist með 24,1 pró-
sents fylgi, samanborið við 29,8 pró-
senta fylgi flokksins í kosningun-
um. Vinstri græn tapa um tveimur
prósentustigum samkvæmt könnun-
inni, mælast með 19,8 prósent, en
fengu 21,7 prósent í kosningunum
í vor.
Ríkisstjórnarflokkarnir eru með
samtals 43,9 prósenta fylgi, 7,6 pró-
sentustigum undir kjörfylgi. Þegar
spurt var um stuðning við ríkis-
stjórnina fékkst nákvæmlega sama
tala, 43,9 prósent.
Framsóknarflokkurinn bætir við
sig fylgi. Flokkurinn fengi stuðning
16,6 prósenta kjósenda yrði kosið
nú, en fékk 14,8 prósenta fylgi í
þingkosningunum. Borgarahreyf-
ingin myndi þurrkast út eftir stutt-
an feril yrðu niðurstöður kosninga
í takt við könnun MMR. Flokkurinn
mælist með 3,1 prósents fylgi, en
fékk 7,2 prósent í kosningunum.
Könnunin var gerð 9. til 14. sept-
ember í gegnum síma og Netið. Þátt-
takendur voru 909. Spurt var: Ef
kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða
flokk myndir þú líklegast kjósa?
Svarhlutfallið var 64,8 prósent. - bj
Ríkisstjórnarflokkarnir með minnihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR:
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Fylgi stjórnmálafl okkanna
Skoðanakönnun MMR
9.-14. september 2009 - fylgi (%)
Fj
öl
di
þ
in
gs
æ
ta
30
25
20
15
10
5
0
7,2
Ko
sn
in
ga
r
3,1
14,8
16,6
23,7
31,6
24,1
29,8
21,7
19,8
STJÓRNMÁL Þingmennirnir Birg-
itta Jónsdóttir, Margrét Tryggva-
dóttir og Þór Saari hafa yfirgefið
Borgarahreyfinguna og komið sér
saman um stofnun nýrrar hreyf-
ingar, sem ber titilinn Hreyfingin –
Samstaða um réttlæti og almanna-
hag. Þinghópurinn tilkynnti þetta á
blaðamannafundi í gær.
Þingmennirnir funduðu á
fimmtudag með nýrri stjórn Borg-
arahreyfingarinnar, sem skipuð var
í kjölfar landsfundar um síðustu
helgi. Miklar deilur hafa geisað í
hreyfingunni undanfarið. Þráinn
Bertelsson, sem kjörinn var á þing
fyrir hana í vor, sagði sig úr hreyf-
ingunni í ágúst. „Það hefur verið
klofningur innan Borgarahreyfing-
arinnar frá fyrsta degi eftir kosn-
ingar,“ segir Birgitta Jónsdóttir.
Á landsfundinum var samþykkt
tillaga að nýjum lögum. Í sam-
þykktum lögum er meðal annars
opnað fyrir möguleikann á að Borg-
arahreyfingin bjóði fram í sveit-
arstjórnarkosningum næsta vor.
Þinghópnum þáverandi hugnaðist
ekki hin nýju lög og lét meðal ann-
ars hafa eftir sér að verið væri að
breyta hreyfingunni í miðstýrðan
flokk, þvert á upphaflega stefnu og
tilgang. Nýju lögin snúist þess í stað
um völd, refsingar og brottvikn-
ingu. „Þessi nýju lög ganga ekki
upp og ganga í berhögg við stjórn-
arskrána,“ segir Þór Saari. Vaninn
sé að stefnuskrá sé lögð í dóm kjós-
enda fyrir kosningar. Fá sinna sé að
ráðast í slíkar breytingar skömmu
eftir kosningar, í skjóli atkvæða
fárra félagsmanna.
Í yfirlýsingu hinnar nýstofnuðu
Hreyfingar segir að markmiðið sé
að fylgja upprunalegri stefnuskrá
Borgarahreyfingarinnar á Alþingi.
Stefnuskráin sé verkefnalisti, og
þegar hann tæmist verði hreyfing-
in lögð niður eins og lofað var.
Spurð hvort þessi nýi ráðahag-
ur skapi fjármálaflækjur milli
hreyfinganna tveggja segir Mar-
grét Tryggvadóttir svo ekki vera.
„Lögum samkvæmt fær Borgara-
hreyfingin opinbert fé næstu fjög-
ur árin, og við fáum ekki krónu af
því,“ segir Margrét.
Aðspurður segist Þráinn Bert-
elsson ekki vera á leiðinni inn í
Borgarahreyfinguna á ný í kjölfar
brotthvarfs þingmannanna. „Þau
hafa óskað eftir að ræða við mig
um hvort ég vilji starfa með Borg-
arahreyfingunni og það er velkom-
ið. Mér líst ljómandi vel á þetta
fólk sem er komið í stjórn þar. En á
þessari stundu er ég ekki á förum
neitt,“ segir Þráinn.
kjartan@frettabladid.is
Þríeykið yfirgefur
Borgarahreyfinguna
Þingmenn Borgarahreyfingarinnar hafa stofnað Hreyfinguna, nýtt stjórnmála-
afl. Segja ný lög Borgarahreyfingarinnar ganga í berhögg við stjórnarskrána.
Ný stjórn Borgarahreyfingar hefur óskað eftir viðræðum við Þráin Bertelsson.
Útboð
Fimleikasalur Fjölnis í Austurhúsi Egilshallar.
Innanhúss frágangur.
Rekstrarfélagið Fossaleyni 1 óskar eftir tilboðum í að breyta nýrri geymsluað-
stöðu í austurhúsi Egilshallar í fi mleikasal fyrir Ungmennafélagið Fjölni.
Lauslegt yfi rlit yfi r verkið.
Um er að ræða að endurinnrétta 426 m2 lagerrými við austurgafl knatthúss
Egilshallar. Umrætt rými var hluti af stækkun á geymslusvæði Egilshallar,
framkvæmt 2008. Rýmið verður innréttað sem viðbótar æfi ngasalur fyrir
fi mleikadeild Fjölnis, en þeir hafa auk þessa til afnota í dag sal í suðurhúsi
Egilshallar. Í megindráttum verður rýmið standsett sem opinn fi mleikasalur
með færanlegri uppstillingu dýna, áhalda og hlaupabrauta. Þó þarf að opna og
innrétta aðkomuleið í gegn um undirbúningseldhús í austurgafl i Knatthúss. Því
til viðbótar þarf að útbúa snyrtingu og ræstingu í sal. Á millipalli þarf að skaffa
nýja loftræsti samstæðu fyrir sal. Á millipall og veggi þarf að leggja hljóðísogs-
plötur vegna hljóðvistar. Að lokum þarf að snyrta allt og mála. Húsnæði skal
skila tilbúnu fyrir fi mleikaáhöld og dýnur.
Útboðsgögn verða afhent að Reykjavíkurvegi 74, 2.hæð, Hafnafi rði (Gengið
inn aftanfrá) frá kl. 13.00 mánudaginn 21 september. Tilboðum skal skilað á
sama stað fi mmtudaginn 1.október 2009 eigi síðar en kl. 14:00.
Til að verktakar geti betur gert sér grein fyrir umfangi verks verður kynn-
ingafundur á staðnum miðvikudaginn 23. september kl.13.00 við inngang
Egilshallar.
Óskað er eftir að verktaki taki að sér fyrir fasta upphæð að fullklára verk fyrir
1.desember 2009.
Nánari upplýsingar gefur :
Haraldur L. Haraldsson, framkvæmdastjóri,
netfang: haraldur.L.haraldsson@gmail.com, sími: 893-5218
reykjavík
Með hverjum
ARMANI jakkafötum
fylgja 2 Stenström skyrtur
Með hverjum
JOOP! jakkafötum
fylgir 1 Stenström skyrta
í septemberjakkaföt
Þú kaupir þér Armani eða Joop! jakkaföt og færð Stenström skyrtur
að eigin vali í kaupbæti
bankastræti 7 101 reykjavík sími 551 3470
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúar
Álftaneslistans vilja að Margrét
Jónsdóttir segi af sér sem formað-
ur bæjarráðs.
Margrét sagði í sumar skilið við
félaga sína í bæjarstjórnarhópi Á-
listans og er nú óháð. Í samvinnu
við bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
samþykkti Margrét að segja Sigurði
Magnússyni af Á-listanum upp störf-
um sem bæjarstjóri.
Á bæjarráðsfundi á fimmtudag
átöldu fyrrum félagar Margrétar
hana fyrir að leiða fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins til valda. „Ljóst er
að Margrét Jónsdóttir er gengin í
eina sæng með Guðmundi G. Gunn-
arssyni og félögum,“ sögðu fulltrú-
ar Á-listans og bæta því við að Mar-
grét sé skuldbundin þeim íbúum sem
veittu henni brautargengi á vegum
Álftaneshreyfingarinnar og til að
standa vörð um málefni sem hreyf-
ingin standi fyrir.
„Jafnframt skal vakin athygli
á því að Margrét Jónsdóttir hefur
verið umboðslaus frá 27. júlí 2009 í
öllum þeim embættum sem hún situr
í kosin af Á-lista, meðal annars sem
formaður bæjarráðs og þarf hún því
að segja af sér þessum embættum,“
sögðu þau Kristín Fjóla Bergþórs-
dóttir og Sigurður Magnússon.
Þessu hafnaði Margrét í bókun á
bæjarráðsfundinum. „Ég sit í öllum
tilfellum í umboði bæjarstjórnar og
á meðan bæjarstjórn breytir ekki
því umboði stendur það. Ég vísa því
á bug þessum orðum fulltrúa Á-lista
og tel þau ekki svara verð.“ - gar
Bæjarfulltrúar Álftaneslistans vefengja stöðu fyrri félaga vegna trúnaðarstarfa:
Telja bæjarráðsformann án umboðs
ÁLFTANES Magrét Jónsdóttir hafnar
fullyrðingum fyrrum félaga um að hana
skorti umboð sem formaður bæjarráðs.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BÚLGARÍA Búlgörsk stjórnvöld
hafa hleypt af stokkunum rann-
sókn vegna ótrúlegs atviks sem
átti sér stað í ríkislottói landsins
á dögunum. Þá voru dregnar út
tölurnar 4, 15, 23, 24, 35 og 42,
sem væri ekki í frásögur fær-
andi nema fyrir þá staðreynd að
nákvæmlega sömu tölur komu
upp úr kassanum í drættinum í
vikunni á undan.
AP-fréttastofan hefur eftir
stærðfræðingum að líkurnar
á því að sömu tölur komi upp
tvisvar í röð séu einn á móti
fjórum milljónum.
Rannsókn í Búlgaríu:
Sömu lottótölur
tvær vikur í röð
Ingólfstorg til skipulagsráðs
Skipulagsfulltrúi hefur vísað fyrirhug-
uðum breytingum við sunnanvert
Ingólfstorg til skipulagsráðs. Gríðar-
legur fjöldi mótmæla barst vegna
áformanna sem meðal annars fela í
sér minnkun torgsins og niðurrif sal-
arins sem hýsir skemmtistaðinn Nasa.
SKIPULAGSMÁL
Sumir sakna múrsins
Sjöundi hver Þjóðverji vill gjarnan
að Berlínarmúrinn verði reistur á ný
samkvæmt könnun tímaritsins Stern.
Þessi hópur telur lífið hafa verið
betra þegar Þýskalandi var skipt milli
austurs og vesturs. Í nóvember verða
tuttugu ár liðin frá falli múrsins.
ÞÝSKALAND
VIÐSKIPTI Tap Magma Energy nam
tæpum 4,5 milljónum dollara,
sem jafngildir rúmlega 500 millj-
ónum króna, á síðasta rekstrar-
ári félagsins. Rekstrarárið nær
frá miðju ári í fyrra fram á mitt
árið í ár.
Af þessu tapi féllu tæplega 1,9
milljónir dollara til á síðasta árs-
fjórðungi rekstrarársins.
Ross Beaty, formaður Magma,
er þó brattur í tilkynningu um
uppgjörið sem sent var kauphöll-
inni í Toronto í vikunni. Hann
segir að tekist hafi að afla 130
milljóna dollara í nýju fjármagni
og 110 milljóna dollara með hluta-
fjáraukningu.
Ársuppgjör Magma Energy:
Tap rúmar 500
milljónir króna
NÝTT AFL Forsvarsmenn Hreyfingarinnar á blaðamannafundinum á Thorvaldsen
í gær. Margrét Tryggvadóttir er formaður stjórnar Hreyfingarinnar, en Birgitta
Jónsdóttir og Þór Saari sitja ekki í stjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Það eru auðvitað heilmikil tíðindi
að flokkur missi frá alla þingmenn
svo stuttu eftir kosningar,“ segir
Einar Mar Þórðarson stjórnmála-
fræðingur.
„Þetta hljóta að vera mikil
vonbrigði fyrir þá sem hafa starfað
innan hreyfingarinnar og ekki síst
kjósendur hennar. Borgarahreyfing-
in hefur verið að mælast ágætlega í
könnunum, jafnvel í og yfir kjörfylgi,
þannig að framan af virtist fólk sátt
við hreyfinguna,“ segir Einar mar.
Einar segir vert að velta fyrir
sér framtíð hreyfinganna tveggja.
„Nú á Borgarahreyfingin enga
fulltrúa neins staðar, en eins og
komið hefur fram gæti vel komið
til þess að hreyfingin byði fram í
sveitarstjórnarkosningum. Ég tel
að Borgarahreyfingin verði ekki
langlíf í íslenskum stjórnmálum og
hið sama má segja um þessa nýju
Hreyfingu, þótt hún komi til með að
eiga þessa þingmenn á kjörtímabil-
inu,“ segir Einar Már Þórðarson. - kg
HLJÓTA AÐ VERA MIKIL VONBRIGÐI
KJÖRKASSINN
Myndir þú vilja að aðrir leiddu
ríkisstjórn Íslands en Jóhanna
Sigurðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon?
JÁ 61,4%
NEI 38,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú ánægð(ur) með þjónustu
íslenskra flugfélaga?
Segðu skoðun þína á visir.is