Fréttablaðið - 19.09.2009, Side 18

Fréttablaðið - 19.09.2009, Side 18
18 19. september 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Ólína Þorvarðardóttir skrifar um íslenska samfélagsgerð Þegar tvítyrni heimsviðskipta-hallarinnar í New York hrundi til grunna þann 11. september 2001 gaus upp kæfandi mökk- ur sem varð fjölda manns að fjörtjóni. Björgunarsveitir höfðu sumar hverjar orðið of skjót- ar á vettvang, með þeim skelfileg- um afleiðing- um að fjöldi slökkviliðs og björgun- armanna lét lífið þegar byggingarnar jöfnuðust við jörðu. Dágóð- ur tími leið áður en rofaði til og menn gátu metið afleiðingar þess sem gerst hafði. Við hrun íslensku bankanna í október 2008 þyrlaðist líka upp þykkur mökkur. Almenningur hafði enga grein gert sér fyrir því hve hættulega háir turnar höfðu verið reistir á íslenskum fjármála- markaði fram að því. En óbæri- legur mökkurinn sem fylgdi hrun- inu segir sína sögu um skefjalausa viðskiptahætti, ábyrgðarleysi og hóflausa græðgi. Og sú saga varð- ar ekki einungis fjármálafíflin sem steyptu okkur því sem næst í glötun. Nei, hún fjallar líka um öll hin fíflin, sem eltu skinið af glópagullinu eins og vanvita börn. Fjölmiðlana sem góndu hrifnir upp í fjármálaspekúlantana, flöttu myndirnar af þeim á forsíður tímaritanna, kusu þá viðskipta- snillinga og frumkvöðla ársins á meðan þeir frömdu samsæri sitt gegn þjóðinni. Stjórnmálamenn okkar – jafnvel forsetinn – fylgdu þeim eins og skugginn í erlend- ar viðskipta- og kynningarferð- ir, studdu við „íslensku útrásina“ og fluttu um hana loðmulluleg- ar lofræður við glasaglaum og ljósleiftur á blaðamannafundum. Almenningur horfði á í aðdáun og hrifningu. Þjóðarskömmin Nú situr óbragðið eftir – skömmin. Það er þjóðarskömm. Við finnum öll til hennar … öll, nema kannski þeir sem enn neita að horfast í augu við ábyrgð sína á því sem gerðist. Það gæti til dæmis átt við um þá þingmenn Sjálfstæðis- flokksins sem flestir sátu hjá við afgreiðslu þingsins á ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna. Flokkurinn sem ber höfuð ábyrgð á hugmyndafræði Hrunadansins, flokkurinn sem innleiddi þá taum- lausu frjálshyggju sem dansað var eftir, hann „sat hjá“ þegar tekist var á við afleiðingarnar. Skilaði auðu. Það var átakanlegt að sjá. Verður Ísland nokkurn tíma samt aftur? Vonandi ekki. Sann- leikurinn er sá, að það Ísland sem við kvöddum í október 2008 var ekki gott í gegn. Þó að allt liti vel út á yfirborðinu, hagtölur sýndu almenna velmegun, landið mæld- ist meðal tíu efnuðustu þjóða heims (jafnvel ein hamingjusam- asta þjóð í heimi) og ríkissjóð- ur væri orðinn nokkurn veginn skuldlaus, þá voru innviðirnir ekki í lagi. Fjármálakerfið var ofþanið, neyslan óhófleg, skuldasöfnun- in úr böndum – ekki síst í undir- stöðuatvinnuvegi okkar, sjávar- útveginum. En verst var þó að siðferðisþrek þjóðarinnar hafði látið undan síga. Um það vitna upplýsingar sem nú eru að koma í ljós um umfang skattsvika og svarta atvinnustarfsemi, hags- munagæslu og krosseignatengsl í viðskiptalífinu, getuleysi eftirlits- stofnana og gáleysi stjórnvalda. Já, stjórnvöld brugðust hlut- verki sínu. Þau gleymdu sér við hrævareldana og uggðu ekki að sér. Í stað þess að safna í korn- hlöðurnar til mögru áranna var slegið slöku við aðdrættina. Á góðæristímanum 1993-2007 var farið í skattalækkanir sem komu sér vel fyrir þá tekjuháu á meðan hlutfallslegar byrðar jukust á þá tekjulágu. Hinu mikilvæga jöfnunarhlutverki skattkerfisins var raskað og tekjulindin rýrð. Lætur nærri að ef skattalækkan- ir áranna 2003-2007 yrðu fram- reiknaðar á núvirði, hefðu þær náð langt með að greiða niður halla ríkissjóðs á þessu ári. En því er nú ekki að heilsa. Kornhlöð- urnar eru galtómar, og fátt um aðföng. Í hverju felast átökin? Af þeirri óvægnu umræðu sem verið hefur í samfélaginu undan- farna mánuði mætti stundum ætla að þau stjórnvöld sem nú sitja hafi hætt sér of snemma inn á björgun- arvettvanginn. Að minnsta kosti er enginn hörgull á fúkyrðum og úrtölum þeirra sem telja sig geta verið áhorfendur að björgunar- starfinu og hvorki þora né vilja leggja því lið. En endurreisn sam- félags getur ekki orðið nema með þátttöku allra. Þá á ég annars vegar við atvinnuvegina, stéttar- félögin, stjórnvöld og almenning – hins vegar þá sem ráðandi eru í opinberri umræðu, þ.e. fjölmiðl- ana, fræðasamfélagið og stjórn- málamenn. Okkar bíður mikið starf. Mein- semdir þær sem ollu bankahrun- inu eru margar hverjar enn til staðar í íslensku samfélagi, og það mun sjálfsagt taka ár og áratugi að vinna á þeim bug. Við sjáum þær • í ósanngjörnu kvótakerfi; • í þvermóðsku fjármálastofnana við að veita stjórnvöldum upp- lýsingar vegna rannsóknar á hruninu; • á fáránlegum kröfum stjórnenda fjármálafyrirtækja um svim- andi háar bónusgreiðslur; • í afskriftum hárra skulda gagn- vart útvöldum á meðan fjöl- skyldur eru að bugast og menn að brotna undan skuldabyrði; • í upplýsingum um umfang skatt- svika og misnotkun opinberra bóta. • Síðast en ekki síst sjáum við meinsemdirnar í afneitun og afstöðuleysi þeirra sem stærsta ábyrgð bera á hruninu og hug- myndastefnu þess. Nei, gleymum ekki á hvaða vett- vangi við erum, íslensk þjóð. Við erum stödd í þrotabúi þeirrar skefjalausu frjálshyggju sem reið hér húsum. Og meinsemdirnar sem ollu hruninu eru flestar enn til staðar. Átökin í íslenskum stjórnmálum næstu misserin munu m.a. snúast um það hvernig gert verður upp við fortíðina, og þá hugmynda- fræði sem leiddi okkur í núver- andi stöðu. Þau munu snúast um það • hvaða aðferðum verði beitt við uppgjörið vegna bankahruns- ins; • hvaða aðferðum verði beitt við endurreisn efnahagskerfisins og hvort takast megi að verja grunnþætti velferðarkerfisins, mikilvæga almannahagsmuni, auðlindir o.s.frv.; • hvort gerðar verða nauðsynlegar leiðréttingar á óréttlátu kvóta- kerfi; • hvort leikreglur viðskiptalífsins verða endurhannaðar; • hvort komið verður hér á nauð- synlegum lýðræðisumbótum; • hvort siðbót muni eiga sér stað í íslenskum stjórnmálum og við- skiptalífi; • já, hvort spilin verða stokkuð upp og hvernig gefið verður upp á nýtt. Átök komandi missera í íslensk- um stjórnmálum munu snúast um það hvort eitthvert uppgjör muni eiga sér stað yfirleitt. Gleymum því ekki að það eru sterk öfl að verki í íslensku sam- félagi sem vilja ekkert við ábyrgð sína kannast, og vilja því ekkert endurmat og engin skuldaskil. Höfundur er alþingismaður. Nýja Ísland – kemur þú? ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR UMRÆÐAN Sigursteinn Másson skrifar um velferðarmál Það hljómar hugsanlega sem öfugmæli að segja að ýmis tækifæri liggi í efnahagskreppunni varðandi velferðarmálin. Það ligg- ur beint við að horfa á hættumerk- in sem felast í niðurskurði og aukn- um sparnaði í þjónustu. Algengt er að fólk fari í viðbragðsstöðu, jafn- vel í skotgrafir og mótmæli ákaft því sem gert er án þess að leggja fram hugmyndir um leiðir að lausn- um. Það er staðreynd að á næstu árum verður úr minna fjármagni að spila til velferðarmála jafnvel þótt stjórnvöld standi við ítrekuð loforð um minni niðurskurð í þeim málaflokki en öllum öðrum og jafn- vel þótt skattar verði hækkaðir enn frekar. Þetta er staðreynd sem við verðum öll að horfast í augu við af yfirveguðu raunsæi. Þess vegna þurfum við að benda á nýjar leið- ir. Hvað er til ráða? Nýlega kynnti nefnd, undir forystu Stefáns Ólafs- sonar prófessors, hugmyndir að einföldun almannatrygginga í tvo bótaflokka hjá fötluðum og í einn hjá öldruðum. Stjórnvöld hafa ákveðið að sameina Trygginga- stofnun ríkisins og Vinnumála- stofnun og mál- efni fatlaðra verða færð til sveitarfélaga árið 2011. Allt eru þetta mikil- væg skref í rétta átt. Það er engu að síður grund- vallaratriði að huga strax að breytingum á sjálfu örorku- matinu þannig að það undirstriki hæfni fólks til samfélagslegrar þátttöku og styðji undir hana en sé ekki letjandi og aðgreinandi. Sumir kunna að segja að þegar atvinnuleysi er jafn mikið og raun ber vitni að þá sé ekki tíma- bært að gera slíkar breytingar á örorkumati. Þetta tel ég að bygg- ist á misskilningi. Jafnrétti fatl- aðra og ófatlaðra má ekki ráðast af efnahagssveiflum hverju sinni. Mikilvægt er að við búum við fyr- irkomulag sem skapar fólki jöfn tækifæri til þátttöku og sem lág- markar þær skerðingar sem fólk býr við. Það er að mínu mati grund- völlur raunverulegrar velferðar. Það að hafa hlutverk í lífinu jafn- gildir því að hafa tilgang. Það hlut- verk snýst ekki alltaf um launaða vinnu en það verður að snúast um það að vera sér og öðrum að gagni á einhvern hátt. Einstaklingur með mjög takmarkaða andlega og lík- amlega færni gerir mikið gagn með því að leyfa aðstoðarfólki að annast sig. Aðstoðarfólkið fær með því nýja innsýn inn í mannlega til- veru sem gerir þau að betri mann- eskjum. 2007 skilaði svonefnd örorku- matsnefnd forsætisráðherra sam- hljóða áliti sínu varðandi breyting- ar á réttindamati fatlaðra. Ragnar Gunnar Þórhallsson, formaður Sjálfsbjargar, sat í nefndinni fyrir hönd ÖBÍ. Niðurstaðan var sú að horfa ætti til styrkleika fólks við matið og hvernig hægt væri að styðja sem best við þá. Þetta ætti að vera leiðarljós við þær brýnu kerf- isbreytingar sem framundan eru enda í fullu samræmi við áherslur Sáttmála sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra sem ríkisstjórn Íslands stefnir að fullgildingu á innan skamms. Við sem búum á Íslandi þurfum nú á öllum að halda við endurreisn landsins. Fatlað- ir búa yfir mikilvægri reynslu og þekkingu sem samfélagið má ekki fara á mis við. Enginn getur allt en allir geta eitthvað og nú þarf að gefa öllum kost á að leggjast sam- eiginlega á árarnar til að skapa hér betra og sanngjarnara samfélag. Höfundur er formaður Geðhjálpar. Að meta fatlaða að verðleikum SIGURSTEINN MÁSSON UMRÆÐAN Jón Þór Ólafsson skrifar um réttlæti Eva Joly segir allar líkur fyrir því að efnahagsbrot hafi verið framin en ríkisstjórnin hundsar færasta ráðgjafann sinn og hindr- ar rannsókn hrunsins með ónógum fjárframlögum. Í dag, næstum ári frá hruni, er ljóst að ríkisstjórn- in mun leyfa flestum bankamönn- unum að sleppa og skella skuldum sem þeir stofnuðu til á okkur. Réttlætingin fyrir því að borgar- arnir taki völdin í sínar hendur er vel greypt í réttlætisvitund og lög Vesturlanda. Borgaraleg handtaka hefur lengi verið lögleg á Vestur- löndum og var 26. mars 1991 bundin í „Lög um meðferð opinbera mála“ á Íslandi. Í 97. grein laganna segir: „1. Lögreglu er rétt að handtaka mann ef rökstuddur grunur er á að hann hafi fram- ið brot sem sætt getur ákæru, enda sé hand- taka nauðsyn- leg til að koma í veg fyrir áfram- haldandi brot, tryggja návist hans og öryggi eða koma í veg fyrir að hann spilli sönnunargögnum. 2. Sams konar heimild hefur hver sá sem stendur mann að broti sem sætt getur ákæru og varðað getur fang- elsi. Afhenda skal hinn handtekna lögreglunni tafarlaust ásamt upp- lýsingum um ástæðu handtökunnar og hvenær hún fór fram.“ Ef við stöndum fólk í dag að broti sem sætt getur ákæru og varðað getur fangelsi getum við handtek- ið það. Það er gott að vita því spill- ingin grasserar enn. En er hægt að grípa til borgaralegrar hand- töku núna vegna liðinna atburða? Mögulegt er að túlka lögin þannig að borgari sem stóð einhvern að verknaði sem hann vissi ekki að væri glæpsamlegur, gæti núna þegar hann veit betur framkvæmt borgaralega handtöku, til að ná fram tilgangi laganna: „að koma í veg fyrir áframhaldandi brot, tryggja návist hans og öryggi eða koma í veg fyrir að hann spilli sönnunargögnum.“ Þeir sem þora geta reynt á þetta fyrir dómstól- um, því bankamennirnir munu án efa kæra handtökuna. Mikið væri það góður dagur að sjá mennina sem orsökuðu hrun- ið handtekna og færða til lögreglu með myndavélar fjölmiðla í andlit- inu. Þetta færi í heimspressuna og sýndi heiminum að það ábyrgasta sem Íslendingar gera er ekki að borga skuldir bankamannanna. Það ábyrgasta er að láta þá svara til saka. Höfundur er borgari. Borgaraleg handtaka JÓN ÞÓR ÓLAFSSON mbósamlok 33 cl psí dós alltaf í leiðinni! ú og Pe J299kr. ÓDÝRT ALLA DAGA!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.