Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 21
LAUGARDAGUR 19. september 2009 21
Þar var sýnt fram á að ef flugvöll-
urinn yrði fluttur og meira að segja
byggð ný flugstöð þá yrði samt sem
áður afgangur miðað við það að
flugvöllurinn sé áfram um kyrrt
á sama stað. Hann segist þó gera
sér grein fyrir að borgarbúar séu
ekki á eitt sáttir um flugvallarmál-
ið. „Mér finnst skynsamlegt fyrir
borgina og þar með landið allt að
flytja flugvöllinn. Ríkisstjórn sem
vill ná árangri í umhverfismálum,
eins og sú stjórn sem nú situr vill,
getur ekki haft flugvöll í Vatns-
mýri. Þessi ríkisstjórn ætlar að
draga verulega úr losun gróður-
húsalofttegunda. Mjög stór hluti
þeirrar losunar kemur frá sam-
göngum á höfuðborgarsvæðinu. Til
að draga úr því þá verður að hafa
skynsamlegt skipulag. Þá er ekki
hægt að þenja borgina sífellt út.“
Samkvæmt gildandi aðalskipu-
lagi í Reykjavík þá á flugvöllurinn
að fara. „Það er skipulag sem er
í gildi og ber að fara eftir lögum
samkvæmt. Þannig að ég er bjart-
sýnn. Landsbyggðarfólk segir að
þetta sé ekki einkamál Reykvík-
inga og það er rétt en Reykvík-
ingar hljóta samt að hafa mest um
það að segja hvar flugvöllurinn er
í borginni þeirra.“
Gjaldmælar á bílastæði
Gjaldmælar á bílastæðum við skóla
og vinnustaði hafa verið nokkuð í
umræðunni. Þegar hafa til dæmis
verið settir upp gjaldmælar við
Háskóla Íslands. „Stjórnendur
beggja stóru háskólanna í borg-
inni hafa sagt að þeirra framtíðar-
sýn sé að hafa ekki ókeypis bíla-
stæði við skólana. Ekki vegna þess
að þær séu á móti bílum eða bíla-
stæðum heldur vegna þess að skól-
arnir þurfa á landinu sem fer undir
bílastæðin að halda til að byggja á.
Markmið okkar er ekki að fara um
borgina eins og hvítur stormsveip-
ur og setja upp gjaldskyldu. Okkar
markmið er hins vegar að hvetja
vinnustaði til þess að huga að þess-
um hlutum, að setja sér samgöngu-
stefnu þar sem þau velta fyrir sér
hvernig fólk fer í og úr vinnu. Svo
stendur ekki á Bílastæðasjóði ef
skólar eða vinnustaðir óska eftir
að fá gjaldskyldu á bílastæðin.“
Reykjavíkurborg samþykkti
nýverið samgöngustefnu þar sem
hvatt er til að starfsmenn borgar-
innar komi til vinnu með umhverf-
isvænum hætti. „Allt miðar þetta
að sama marki að menn noti meira
aðra samgöngumáta en bílinn en
ég vil alltaf ítreka að þetta snýst
ekki um að þrýsta fólki sem þarf að
nota bíl út úr bílnum sínum. Marg-
ir þurfa að nota bíla og við eigum
að veita þeim góða þjónustu.“
Gísli Marteinn er mikill áhuga-
maður um strætó og vill byggja upp
almenningssamgöngurnar í borg-
inni. „Allar kannanir sýna að fólk
sem jafnvel notar ekki vagnana
vill samt eiga heima í borg þar sem
eru góðar almenningssamgöng-
ur.“ Hann er því alls ekki á þeirri
skoðun að færsla frá einkabílaborg
yfir í almenningssamgangnaborg
sé draumsýn. „Ég trúi á það og ég
held að sú ferð sé hafin.“
Byggja upp án þess að rífa
Deilur hafa staðið um Ingólfstorg,
flutning húsa inn á torgið og ekki
síst hafa margir borgarbúar haft
áhyggjur af gamla Sigtúni þar sem
nú er tónleikastaðurinn Nasa. „Mér
fannst mjög gott hvernig íbúarnir
og kaupmenn á svæðinu létu í sér
heyra. Við auglýsum tillögur til að
kalla eftir viðbrögðum. Menn geta
haft skoðanir á því hvort skipulags-
tillögurnar eru góðar eða slæmar
en samkvæmt því skipulagi sem
er í gildi má rífa bæði Hótel Vík
og húsið á horni Aðalstrætis. Það
skipulag var samþykkt í allt öðru
andrúmslofti en nú þegar við telj-
um að við getum byggt upp án þess
að rífa niður. Formaður skipulags-
nefndar, Júlíus Vífill Ingvarsson,
hefur sagt skýrt að ráðið muni
fara vel yfir allar athugasemdir og
finna skynsamlega niðurstöðu.“
Gísli segist ekki endilega hlynnt-
ur friðun allra gamalla húsa í borg-
inni heldur vill hann að samband
borgarbúa við borgaryfirvöld séu
þannig að borgarbúar treysti því
að yfirvöld sýni eldri húsum til-
hlýðilega virðingu. „Ég vildi til
dæmis ekki að Húsafriðunarnefnd
friðaði Laugaveg 4 og 6 algerlega.
Þessi hús voru byggð af verkviti og
svo voru hagleiksmenn sem prjón-
uðu við þau, kvistur hér og bíslag
þar. Við eigum að bera virðingu
fyrir þessum húsum og átta okkur
á hvað þau eru góð fyrir umhverf-
ið en hafa samt frelsi til að breyta
þeim lítillega eins og alltaf hefur
verið gert.“
Borgaryfirvöld voru undir gíf-
urlegri pressu að byggja í góð-
ærinu og þeim var legið á hálsi
fyrir að vera svifasein, til dæmis
að rífa niður hús við Laugaveg-
inn. „Ég held að margir sjái þessa
hluti í öðru ljósi núna og nefni sem
dæmi kaupin á Laugavegi 4 og 6
sem margir voru ósammála en
ég var mjög hlynntur. Þar ætlum
við að varðveita húsin þar sem
þau standa, varðveita sólarljósið
sem annars hefði verið blokkerað
þannig að það hefði ekki náð niður
á götuna. Ég veit ekki alveg hvern-
ig menn ætla að verðmeta það
næstu 200 árin að hafa sól á Lauga-
veginum. Við sýnum trú á menn-
ingararfi okkar og sýnum komandi
kynslóðum og gestum borgarinn-
ar hvernig við höfum búið þannig
að ég held að þetta hafi verið hár-
rétt aðgerð þótt hún hafi vissulega
verið dýr.“
Hefur enga þörf fyrir uppgjör
Gísli segist ekki spá mikið í pól-
itískri framtíð sinni. „Ég velti
heil mikið fyrir mér hugmyndum
mínum og hugsjónum sem ég vil
koma í verk. Borgarstjórn er einn
vettvangur fyrir það en ekki sá
eini.“ Hann segist þó alls ekki vera
að boða komu sína í landsmálin.
„Mér finnst frábært í borgarstjórn
og nýt hvers einasta dags. Ég þarf
auðvitað að leita til kjósenda á fjög-
urra ára fresti og ef þeir vilja kjósa
mig og minn flokk áfram þá er ég
þakklátur fyrir það en þessi mál
sem brenna á mér myndu halda
áfram að gera það jafnvel þó að ég
væri ekki á þessum stað.“
Gísli Marteinn er í beinu fram-
haldi spurður að því hvort hann
sækist eftir að leiða lista flokks
síns í vor. „Nei. Ég styð Hönnu
Birnu eindregið og finnst hún hafa
staðið sig frábærlega sem borgar-
stjóri. Kannanir sýna líka að borg-
arbúum finnst það. Hún hefur til
dæmis einlægan vilja til að gera
borgina grænni.“ Hann segist einn-
ig ánægður með forystu Sjálfstæð-
isflokksins. „Ég er ánægður með
nýjan formann. Ég held að það sé
mjög mikilvægt að það sé komin ný
kynslóð til verka. Við sjáum í borg-
arstjórn hvað Hönnu Birnu gengur
vel og ég held að það muni sjást á
Sjálfstæðisflokknum að þar er ungt
fólk í forystu. Það eru nýjar hug-
myndir í gangi í heiminum öllum
og ýmsar gamlar bábiljur eru að
ganga sér til húðar og ný hugsun
að ryðja sér til rúms.“
Fyrir fáeinum vikum birtist hér
í Fréttablaðinu grein eftir Vilhjálm
Þ. Vilhjálmsson sem ekki var hægt
að skilja öðruvísi en að uppgjör
ætti eftir að fara fram milli hans
og sexmenninganna í borgarstjórn-
arflokki Sjálfstæðisflokksins sem
andæfðu gegn samruna REI og
Geysis Green Energy. Það er ekki
hægt að skilja við Gísla Martein án
þess að bera þetta undir hann. „Ég
upplifi það ekki þannig. Ég hef auð-
vitað verið mjög hugsi yfir þessu
máli og haldið vel til haga öllu
sem var sagt og gert í því en það
brennur ekki á mér að fara í eitt-
hvert uppgjör og allra síst við eigin
samherja. Ég er mjög stoltur af því
sem við gerðum og ég held að það
gildi um okkur öll. Við stóðum á
sannfæringu okkar. Við vorum
hreinskiptin og heiðarleg við alla í
þessu máli. Við vorum á móti þess-
um samruna og menn geta verið
ósammála því mati okkar en mér
heyrist fáir telja núna að samrun-
inn hefði verið góð ráðstöfun.“
NÝTT KORTATÍMAB
IL
Sími 568 9400 | www.byggtogbuid.is
KRINGLUNNI