Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 28
28 19. september 2009 LAUGARDAGUR Á gúst Kvaran prófessor í eðlis- efnafræði hafði lengi haft hug á að taka þátt í þrekraun- inni miklu í Sahara, „Mar- athon des sables,“ margra daga langhlaupi yfir Sahara eyðimörkina þar sem þátttakendur hlaupa með vistir, svefnpoka og dýnu á bakinu. Meiðsli komu í veg fyrir að hann tæki þátt í hlaupinu 2008, en þá hafði hann skráð sig til leiks. Þess í stað var hann mættur ásamt 800 öðrum þátttakendum á flugvöllin Quartzaz- ate í Marokkó sunnan Atlasfjallana í mars- lok 2009 tilbúinn í slaginn. Miklar rigningar settu strik í reikninginn og fyrsti hlaupadag- ur féll niður og hlaupaleiðum var breytt. Alls var hlaupin 202,2 kílómetra vega- lengd á fjórum hlaupadögum. En gefum Ágústi orðið . Fyrsti hlaupadagur: 33 kílómetrar Vegna mikilla rigninga var hlaupaleiðun- um breytt og upphafsdagur frestaðist. En svo rann fyrsti dagurinn upp. Við rásmark- ið blöktu fánar allra þátttökuþjóðanna við hún. Loks reið af hávært púðurskot. Hlaup- ið var hafið. Fyrstu mínúturnar einkenndust af hávær- um orðaskiptum milli hlaupara, hlátrasköll- um og mishröðum takti hlaupara sem voru að finna sinn rétta sess í mannþrönginni. Smám saman minnkuðu orðaskiptin, og nágrannahlauparar liðu áfram með svipuð- um hraða. Fyrr en varði vorum við komin að sandöldunum, sem reyndust mun hærri en sýndist úr fjarska. Hópurinn dreifðist tals- vert yfir sandöldurnar þótt meginstefn- an héldist sú sama og markaðist af stikum sem birtust með reglulegu millibili. Það var unaðslegt að koma í mark þegar 33 km hlaupaleið í afar fjölbreyttu landslagi var lokið. Þetta lofaði góðu. Ég var strax farinn að hlakka til næsta hlaups. Annar hlaupadagur: 36 kílómetrar Litlar sem engar vísbendingar bárust fyrsta hlaupadaginn um hvert framhaldið yrði. Það var ekki fyrr en morguninn eftir þegar hlauparar voru að matast eða að gera sig klára fyrir annað hlaup að flokkur manna úr hópi skipuleggjenda gekk á milli tjalda, dreifði kortum af breyttri hlaupaleið og til- kynnti að hlaup dagsins yrði hringleið frá og til sömu tjaldbúða, um 36 km leið. Hlaupið hófst á slaginu kl. 9.00. Að þessu sinni var talsverður mótvindur í fyrstu sem breytt- ist í meðvind á bakaleiðinni. Sem fyrr var hlaupaleiðin fjölbreytt og skiptust á sand- öldur, klettaklungur, sléttar sandauðnir og rysjóttar gróðurlendur. Reynslunni ríkari eftir gærdaginn var ég nú öruggari og hrað- ari en þá, enda kom á daginn að ég færði mig fram um allnokkur sæti milli hlaupa, úr 192. sæti í fyrsta hlaupinu í 113. sæti í öðru hlaupinu. Þriðji hlaupadagur: 91 kíómetri Við morgunverðarsnæðing daginn eftir kom ung stúlka aðvífandi, dulítið sposk á svip- inn, og ávarpaði okkur á bjagaðri ensku: „Þið eigið að hlaupa 91 km í dag. Hlaupið hefst eftir tvær klukkustundir. Hér er kort af leiðinni. Nokkrar spurningar?“ Það var eins gott að hafa hraðann á og pakka saman pjönkunum hið skjótasta. Fram undan var lengsta dagleið í sögu Sahara-maraþonsins, nokkurs konar „sárabót“ fyrir að sleppa þurfti fyrsta hlaupinu. Ekki bara það, held- ur var hlaupaleiðin með erfiðara móti og fól meðal annars í sér fjallaklifur og hlaup um stórar sandöldur. Í minningunni eftir á situr lítið eftir varð- andi fyrri hluta hlaupsins. Ég leið áfram í einhvers konar leiðslu milli þriggja fyrstu áningarstaðanna og kom á þriðja áningar- stað eftir 50 kílómetra á ágætis millitíma. Þar gaf ég mér góðan tíma endurskipulagði mig með tilliti til þess að fyrr en varði færi að rökkva. Þar fengu allir hlaupararnir sér- staka hólka til að mynda sjálflýsandi vökva- blöndur, svokallaða ljómunarhólka, sem nota átti þegar dimma tæki. Skyndilega skall á niðamyrkur. Ég kveikti á ennisljósi. Með reglulegu millibili mátti greina sjálflýsandi græna ljómunarhólka sem vísuðu leiðina að fjórða áningarstað. Þar var okkur uppálagt að gera okkar eigin ljómunarhólka klára. Líkt og aðrir hlaup- arar gerðu, beygði ég minn hólk þannig að skærgulu ljósi stafaði frá honum, festi hann aftan á bakpokann og hélt út í myrkrið í átt að fimmta áningarstað. Nú hófst einn eftir- minnilegasti kafli hlaupsins. Auk sjálflýs- andi ljósastika með reglulegu millibili mátti greina gular ljósastikur hlaupara, sem virt- ust líða áfram á hægri hreyfingu í myrkrinu fram undan. Geislar frá ennis- eða vasaljós- um flöktu óreglulega til og frá. Nú var þreytan óneitanlega farin að segja sín. Það hríslaðist um mann gleðitilfinning að ná á síðustu áningarstöðina þegar tæpir 80 kílómetrar voru búnir. Nú var að duga eða drepast. Einungis tólf kílómetrar voru eftir. Ég hóf að beita mig sálfræði niðurtaln- ingarinnar. Hversu oft hafði ég ekki hlaupið um 12 km á æfingahlaupum heima og fund- ist það létt verk. Því skyldi það ekki líka eiga við nú. Ég hélt sprækur út í myrkrið á nýjan leik. Smám saman birtist kunnugleg mynd, upplýstir turnbelgir sem vörðuðu marklín- una. Mynd af brosandi andlitum sem birt- ust mér handan við marklínuna mun seint hverfa mér úr minni. Andlitin voru eins og spegilmynd á vatnsfleti sem skyndilega hóf að gárast. Við féllumst í faðma. Fjórði hlaupadagur: 42 kílómetrar Dagurinn á eftir var hvíldardagur. Hann fór að mestu í svefn. Ég hafði lokið við dag- leiðina, 91 kílómetra, laust fyrir miðnætti, 14 klukkustundum og 43 mínútum eftir að ræst var og lent í 138. sæti. Það var framar björtustu vonum. Síðasti hlaupadagurinn heilsaði bjart- ur, stilltur og fagur. Hitinn jókst jafnt og þétt er á leið maraþonhlaupið og náði um 40°C um hádaginn. Sökum þess hve raka- stig eyðimerkurlofsins er lágt var hitinn þó aldrei óbærilegur. Það virtist eins og margir hlauparar hefðu hugsað sér að full- nýta þá orku sem þeir áttu eftir í þetta síð- asta áfangahlaup því hraðinn var meiri en í fyrri hlaupum. Ég hreifst með, yfir fjall- garða, grýttar sléttur, klappir, sanda og hóla. Er nær dró lokum hlaupsins fjölgaði innfæddum áhorfendum sem stóðu álengd- ar og hrópuðu hvatningarorð á frönsku. Ég leit öðru hvoru upp til að sjá rautt flagg við marklínuna stækka og stækka er nær dró endapunktinum. Mín upplifun var sú að ég hlypi síðustu metrana fekihratt, og bandaði út höndunum og öskraði af veikum mætti þegar ég sté yfir endamarkslínuna. Hlaup- ið var búið. Afrekið mikla Draumurinn sem ég hafði gengið með undanfarin ár hafði ræst. Ég hafði klárað „Mara thon des Sables“, þrekraunina miklu í Saharaeyðimörkinni og hún stóðst allar væntingar og ríflega það. Á afstæðum mælikvarða hafði hlaupið gengið vel. Ég lenti í 140. sæti af tæplega 800 hlaupurum sem kláruðu og í 9. sæti af 103 keppendum í mínum aldursflokki, 50-59 ára, en minn- ingarnar um ógleymanlegar upplifanir taka þó öllu slíku fram. Á fimm dögum hafði mér verið kippt út úr venjubundnu lífi Vestur- landabúans og fengið það hlutverk að kljást við ofurþraut, náttúruna og sjálfan mig. Maraþonið mikla yfir Sahara LANDAR Áður en Ágúst, til vinstri, kom til Marokkó hafði hann heyrt í landa sínum Justin Bjarnason sem alinn er upp í Englandi. Hér eru þeir félagar að loknu hlaupinu. ÞÁTTTAKENDUR 800 tóku þátt í hlaupinu og því var þröng á þingi við skráningu í hlaupið. Ágúst Kvaran lét draum- inn rætast um að taka þátt í keppnishlaupi yfir Sahara eyðimörkina nálægt landa- mæru Marokkó og Alsír. Á fjórum dögum hljóp hann ríflega 200 kílómetra í harð- snúnum hópi í einu erfiðasta langhlaupi heimsins. Sigríður B. Tómasdóttir tók saman. SANDÖLDURNAR Í SAHARA Sandurinnn reyndist þéttari en Ágúst hafði haldið. MYND/JUSTIN ÞJÁLFUNIN Strangur hálfsárs undirbún- ingur fól meðal annars í sér langhlaup með bakpoka í misjöfnu veðri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.