Fréttablaðið - 19.09.2009, Side 36
● heimili&hönnun
1. Orkedíur eru falleg blóm sem mjög
auðvelt er að hugsa um. Hún blómstrar
fallega og blómin standa lengi.
3. Tannhvassa tengdamamman Maður
þarf lítið sem ekkert að hugsa um hana
eftir að hún er sett út í glugga. Hún þolir
nánast hvaða birtu sem er, þarf sjaldan
vökvun en vel af henni í hvert skipti.
2. Friðarliljan er frábær planta sem
gefur til kynna hvenær hana vantar
vökvun með því að leggja niður blöðin.
Drungi haustsins fer misjafnlega í fólk. Sumir kjósa að hengja haus og
hugsa með stöðugum söknuði til sumarins en aðrir reyna að glæða heim-
ili sitt birtu og lífi með því að færa brot af sumrinu inn á heimili sitt
með vel völdum pottablómum. Elísabet Halldórs-
dóttir, blómaskreytir hjá Blómavali, segir að
ekki þurfi að hafa mikið fyrir pottaplöntum
ef réttar tegundir eru valdar. Fréttablaðið
fékk hana til að mæla með þremur tegundum
sem líklegar eru til að minna eiganda sinn á
sumarið og náttúruna þótt vetur færist yfir
landið. - kdk
Notalegt og blómstrandi haust
Það er ekki erfitt að hugsa um blóm heldur þarf bara að finna blóm við hæfi.
● SKRINGILEGT SKILRÚM Notaleg-
heit eða nýting hafa sjálfsagt ekki verið efst
í huga hönnuðarins Mona Hatoum þegar
hún hannaði þetta skilrúm sem kallast rétti-
lega Ouch eða Ái. Fyrirmyndin að því er
sótt beint í eldhúsið þar sem skilrúmið líkist
stækkuðu rifjárni. Það segir sig kannski sjálft
að varla getur verið gott að halla sér upp
að því meðan fataskipti
eru höfð. Sjálfsagt borg-
ar sig heldur ekki að hengja
föt á það.
hönnun
1 2
3
● KÆRULEYSISLEG KOMMÓÐA Vagabond Ca-
binet of Curiosities kallast þessi kommóða sem er úr
smiðju hönnuðanna hjá Blue Green & Co. Engar tvær
skúffur eru eins, ýmist gerðar úr furu, eik eða öðrum
viði, og sömu sögu er að segja um handföngin, sem
eru ólík að lit og lögun. Tilganginn segir hönnuðurinn
vera að hlutgera í gripnum kæruleysi.
Nú þegar eru farin að sjást þess
merki. Hvítt og svart er af hinu
dásamlega sænska Elle interiör
sagt á útleið og hlýlegt yfirbragð,
sem einkum er hægt að skapa með
viði og fallegu leirtaui, mun fylla
upp í skarðið sem kalt stál skilur
eftir sig. Eikin, sem hefur verið
nær allsráðandi síðustu árin, er að
sama skapi að víkja fyrir dekkri
viði: hnotu, mahóní og svo tekki
sem hefur að vísu átt vinsældum
að fagna um nokkurt skeið. Tón-
arnir eru kakó- og súkkulaðibrúnir
og veggirnir munu loks fá liti eftir
langt og strangt hvítt skeið. - jma
Postulín, dekkri viður og
blár það sem koma skal
● Samkvæmt frömuðum helstu hönnunartímarita heims mun þrennt einkum eiga sterka
innkomu með vorinu. Blár litur, klassískt postulín og allur viður mun dökkna eilítið.
Það sést kannski vel á nýjustu línunni frá Moooi
hvaða breytinga er að vænta en lampar úr fallegum
viði eru meðal þess sem væntanlegt er frá Hollend-
ingunum. Margir kannast við vörur Moooi (til að
mynda hesturinn úti í glugganum á B5) sem hefur
einkum verið þekkt fyrir svarta og hvíta tóna í
húsgagnahönnun sinni á undanförnum árum.
Súkkulaðibrúnn viður sem og leður við
dimmblátt gler er óneitanlega fagurt.
Blátt flúrað veggfóður er upplagt í vor.
Einnig mætti mála lista og hurðir í bláu.
● Forsíðumynd: Nordicphotos/Getty Images Útgáfu-
félag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512
5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.
is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is Auglýsing-
ar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuð-
ur: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009
PITT UNNIR HÖNNUN
Leikarinn Brad Pitt fjárfest-
ir í hönnun hins efnilega
Nacho Carbonell.
BLS. 3
PLÖNTUR TIL PRÝÐIS
Elísabet Halldórsdóttir blóma-
skreytir mælir með hentugum
pottaplöntum fyrir haustið.
BLS. 2
POSTULÍN OG
BLÁIR TÓNAR
Spáð í helstu strauma og stefnur
í hönnun vorið 2010.
VILDARVERÐ
TILBOÐ 219 990
Panasonic TXP42S10
42" Full HD 1080p Plasma BREIÐTJALD með 1920x1080 punkta upp-
PRO 3
400Hz
V-AUDIO
SURROUND
Í MESTU UPPÁHALDI
Uppáhaldshlutur Þuríðar
Sigurðardóttur listakonu á sér
sérstaka sögu.
BLS. 3
Flowerpot-ljós
Verners Pant-
ons er hægt
að fá hjá Epal
afar fallegum
blágrænum lit.
Blow away kallast þessi
fallegi postulínsvasi
sem Moooi kynnti í
Mílanó nú
í ár.
Barokk er víst líka á leiðinni nema nú má það alls ekki vera í svörtu og hvítu.
Ítalirnir hjá Byblos Casa hafa unnið hjörtu fagurkera víðs vegar um heiminn með
módernísku flúri sínu en þessi sófi kallast Murelli.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Vegghengdur gashitari.
Þriggja brennara gas geislahitari
Tvær hitastillingar, neistakveikja.
Afköst 22.000.BTU / 6,5 kWh
B:60cm x H:48cm x D:37cm.
Tilboðsv
erð
20% afs
láttur
Verð áðu
r kr. 68.5
72.-
Verð
nú kr. 54
.858.-
Gildir
út septe
mber.
19. SEPTEMBER 2009 LAUGARDAGUR2