Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 46

Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 46
 19. september 2009 LAUGARDAGUR106 Launakönnun VR 2009 VERSLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR GERÐI NÝLEGA LAUNA- KÖNNUN MEÐAL FÉLAGSMANNA SINNA. Það er ekki nóg að vera hæfur heldur þarf maður að kunna að bera sig eftir björginni. „Ætlar þú að sitja heima eða ætlar þú að eiga mögu- leika á starfi?“ Á þennan hátt spyr Lísbet Einars- dóttir, félags- og atvinnu- lífsfræðingur, þá sem nú eru atvinnulausir eða lang- ar til að skipta um starf, á heimasíðu sinni atvinnuleit. webs.com. Lísbet hefur rekið fyrir- tækið Lectura og í tengsl- um við það haldið námskeið í fyrirtækjum um hin ýmsu mál sem nýtast starfsfólki og atvinnurekendum. „Eftir að það tók að þrengja að í efnahagslífinu sá ég aukna nauðsyn á því að huga meira að einstakl- ingum í atvinnuleit,“ segir Lísbet og nefnir að vegna þess hve mikið framboð hefur verið á atvinnumark- aði um langt skeið viti fólk ekki hvernig eigi að fóta sig í umhverfi þar sem þarf að sækjast eftir starfi. Hún nefnir sem dæmi að hún hafi fyrir skömmu hitt þrí- tugan frambærilegan mann sem hafði vanist á að fyrir- tæki hefðu alla tíð sóst eftir starfskröftum hans. Þegar það breyttist vissi hann ekkert hvernig hann átti að bera sig að í leit að atvinnu. Hann hafi verið með illa gerða ferilskrá og ekki vitað hvaða tæki hann gæti notað til að gera atvinnurekend- um grein fyrir að hann væri eftirsóknarverður starfs- kraftur. Það sé ef til vill ekki að undra þar sem litlar sem engar upplýsingar hafi verið að finna á íslensku um þessi mál. Það sjái hún vel á þeim fyrirspurnum sem berist á síðuna sína. „Fólk spyr hvernig eigi að loka starfsviðtölum, hvernig það eigi að vera klætt, hvort það nægi að senda ferilskrána eða hvort eitthvað eigi að fylgja með og svo auðvit- að hvernig ferilskráin eigi að líta út,“ segir Lísbet en á síðu hennar sem nefnd var að ofan má finna hinar ýmsu ráðleggingar þessu tengdar. - kdk Ekki nóg að bíða eftir starfi Lísbet segir að þótt erfiðara sé að fá vinnu en áður sé það alls ekki ómögulegt. Fólk megi því ekki missa móðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í könnuninni kom meðal annars fram að heildarlaun félags- manna VR hækka um eitt prósent milli ára og grunnlaun um fjögur prósent. Afgreiðslufólk á kassa hækkar mest. Heildarlaun kvenna hækka um tæplega tvö prósent á milli ára, úr 366 þúsund krónum á mánuði í fyrra í 373 þúsund á þessu ári. Karlarnir standa hins vegar nokkurn veginn í stað. Aðrar helstu niðurstöður könnunarinnar eru þessar: Breyt- ingar á launum eru misjafnar á milli starfsstétta. Stjórnend- ur og sérfræðingar stóðu í stað í heildarlaunum en hækkuðu um þrjú prósent í grunnlaunum. Sérhæft starfsfólk hækkaði um eitt prósent í heildarlaunum en fimm prósent í grunn- launum. Skrifstofufólk hækkaði um þrjú prósent í heildar- launum en sex prósent í grunnlaunum. Skrifstofufólk við afgreiðslu hækkaði um sex prósent bæði í heildar- og grunnlaunum. Sölu- og afgreiðslufólk hækkaði um eitt prósent í heildarlaunum og fjögur prósent í grunn- launum. Starfsfólk í gæslu-, lager- og framleiðslustörfum lækkaði um eitt prósent í heildarlaunum en hækkaði um fjögur prósent í grunnlaunum. Einnig kom fram að launabil- ið milli hæstu og lægstu launa minnkar á milli ára. Vinnuvika félagsmanna styttist og er 43,3 stundir að meðaltali. Þeir sem fóru í launaviðtal á síðasta ári eru með þremur prósentum hærri laun en þeir sem ekki fóru í viðtal. Þeim fækk- aði hins vegar úr 68 prósentum í 61 prósent sem fóru í kjaraviðtal. Árið 2004 unnu 23 prósent svar- enda fjarvinnu en 39 prósent sam- kvæmt könnuninni 2009. Nánari útlistun á könnuninni má nálgast á www.vr.is SKAFTAHLÍÐ 24 Um er að ræða 2., 3. og 4. hæð í þessu glæsilega húsi. Lyfta er í húsinu og allar hæðirnar eru fullbúnar og tilbúnar til innflutnings. Hver hæð er 450 m og leigjast þær saman eða hvor í sínu lagi. Frábær staðsetning, gott útsýni, möguleiki á merktum bílastæðum og hagstætt leiguverð. Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Ingu Rut Jónsdóttur irj@landicproperty.is eða í síma 660 6828. TIL LEIGU 2 Kringlunni 4–12 103 Reykjavík www.landic.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.