Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 53

Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 53
heimili&hönnun ● E f halda á heimili snyrtilegu er best að byrja á því að koma röð og reglu á hlutina. Þannig getur þú gengið að því sem þig vantar á vísum stað og dregur úr líkum á að skapa óreiðu í kringum þig, því þú setur það sem þú ert að nota einfaldlega á sinn stað eftir notkun. Til að koma öllu í röð og reglu er gott að skipu- leggja hirslur vel. Auka má plássið í skápunum með því að koma fyrir skóhillu í botnin- um. Þá getur þú flokkað aukahlut- ina í litla kassa merkta þeirri árs- tíð þegar þeir eru helst notaðir og raðað í hillurnar. Síðast en ekki síst skaltu hugsa vel um flíkurnar þínar. Mundu bara að nota góð herðatré sem fötin haldast vel á en ekki fylla slána af beygluð- um vírherðatrjám sem gera skápinn þinn óaðlaðandi, auk þess sem fæst- ar flíkur tolla á slíkum herðatrjám. - kdk L eikarinn Brad Pitt þótti sýna sig sem mikill unnandi fallegr- ar hönnunar þegar hann mætti á hönnunarhátíð sem haldin var í Basel í Sviss í júní. Hann festi kaup á hinum ýmsu munum og borgaði fyrir stórfé. Meðal þess sem hann keypti var öll hönnunarlína hins unga og upp- rennandi hönnuðar Nacho Car- bonell. Kallast línan Evolution og borgaði Pitt fyrir hana 84 þúsund evrur. Þá keypti hann heilt hótel, eða svo- kallað Mini Caps- ule Hotel frá Ateli- er Van Lieshout auk fleiri muna frá vinnustofunni. Einn- ig legustól sem kallast Fossil Chaise Lounge á 23 þús- und evrur og lampa á 17.500 evrur en hann hafði árið áður keypt lampa í sömu línu. Listunnandinn Brad Pitt Brad Pitt keypti hollenska hönn- un í sumar. Mini Capsule Hotel. Ágætis hugmynd til að hýsa marga gesti. Fyrir Fossil Chaise Lounge stólinn borgaði Pitt 23 þúsund evrur. Skipulagður skáp- ur dregur úr óreiðu annarstaðar í hús- inu. NORDICPHOTOSGETTY Skipulag í skápnum Evolution eftir Nacho Carbonell. „Ég get ekki sagt að ég eigi mér uppáhaldshlut, þar sem ég tengist yfirleitt ekki hlutum,“ segir mynd- listarkonan Þuríður Sigurðardótt- ir sem málar undir nafninu Þura. „Ég á hins vegar eina mjög sterka minningu sem tengist Laugarnes- inu þar sem ég ólst upp og Listahá- skólanum en þar málaði ég mynd, sem mér þykir afar vænt um vegna þeirrar sögu sem liggur henni að baki,“ segir hún alvarleg. „Umhverfið í Laugarnesinu var vitaskuld allt öðruvísi þegar ég var að alast upp heldur en það er núna. Það sem nú er uppfylling fyrir framan Listaháskólann var fjara og sjór og hún var oft leikvöll- ur eldri barna. Bróðir minn, Ævar, sem er fimm árum eldri en ég, fór til dæmis oft út á steypta bryggju sem þar var og veiddi fisk á færi. Ég var fjögurra ára og mátti ekki fara með en stalst til þess í þetta sinn. Hann var ekki hrifinn af til- tækinu en til að gera mig nýtilega reyndi ég með hælnum að rota kola sem hann hafði veitt af syllu, sem lá neðar. Bryggjan var aflíðandi og þar sem ég var svo upptekin við að rota kolann gáði ég ekki að mér og rann út af bryggjunni og út í sjó. Mig rak samstundis frá og bróð- ir minn, sem æpti á hjálp, gat ekki náð í mig. Til allrar lukku heyrðu í honum tveir drengir, nýfermd- ir, sem voru að koma úr ferming- arkaffi hjá séra Garðari, presti í Laugarneskirkju. Annar þeirra, Birgir, stökk í sjóinn á eftir mér og synti því ég flaut á úlpunni minni og rak lengra og lengra frá landi. Það var töluvert erfitt fyrir hann að synda með mig að bryggjunni því undiraldan var nokkur á þessum stað en vinur hans, Ágúst, kom á móti honum og saman komu strák- arnir þrír mér upp á bryggjuna sem var enn eitt þrekvirkið. Það næsta sem ég man eftir er þegar þeir voru að drösla mér upp á bryggjuna og sjórinn gúlpast upp úr mér. Við það hef ég líklega byrjað að draga and- ann aftur,“ segir Þuríður. „Þegar ég svo var í Listahá- skólanum í Laugarnesi varð mér oft hugsað til þessa atburðar og að lokum varð hann að mynd. Líf- gjafi minn, Birgir Gunnarsson, drukknaði nefnilega tvítugur að aldri þegar vitaskipið Hermóður fórst árið 1959. Málverkið er unnið með olíu og vaxi á dúk. Bókin sem kolinn liggur á er um pabba minn, Sigurð Ólafsson, en þar er þessum atburði lýst. Rammann smíðaði ég og blómin eru hugsuð sem krans. Myndin er því í raun minning um Birgi og lífgjöfina og er mér því kær.“ - uhj Myndin er minning um lífgjafa ● Ég velti því mikið fyrir mér hversu lífið er hverfult og hvers vegna ég sé hér,“ segir Þuríður Sigurðardóttir, myndlistar- maður og söngkona, sem er með þessum orðum að vísa til myndlistarnáms síns í Listaháskóla Íslands, þaðan sem uppá- haldshluturinn hennar kemur. Listakonan Þuríður við verkið góða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.