Fréttablaðið - 19.09.2009, Side 57
Laugardagur 19. september
Brot úr Hrafnagaldri • Steindór Andersen, Sigur Rós,
Páll á Húsafelli, Hilmar Örn Hilmarsson
Rímnalög á heimsvísu • Steindór Andersen og
félagar í Sigur Rós ræða samstarf sitt
Disneyrímur eftir Þórarin Eldjárn • Bára Grímsdóttir,
Njáll Sigurðsson, Pétur Björnsson og
Rósa Jóhannesdóttir kveða
Glíman við Disneyrímur • Þórarinn Eldjárn skáld
segir frá
Úr gullakistu Sigurðar Breiðfjörð • Þórarinn Hjartarson
kveður
Um Jónas og Sigurð Breiðfjörð • Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur segir frá
Afmælisveisla • Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
Sunnudagur 20. september
Rímnalög, barnagælur og þulur • Ása Ketilsdóttir
kveður
Kveðskaparhefðin á Ytra-Fjalli í Aðaldal • Ása Ketils-
dóttir segir frá
Hagyrðingamót • Kvennalið Iðunnar: Sigrún
Haraldsdóttir, Bjargey Arnórsdóttir, Halla Gunnarsdóttir
Karlalið Iðunnar: Steindór Andersen, Helgi Zimsen,
Jón Ingvar Jónsson
Þjóðlagatónleikar • Spilmenn Ríkínís og Voces Thules
Afmælishátíð
í Gerðubergi
Viltu vita meira um Kvæðamannafélagið Iðunni?
www.rimur.is
Tónleikar á heila tímanum • Umræður á hálfa tímanum
Afmælissýning í hliðarsal • Kvæðamenn á kaffistofu
Tekið á móti upptökum af kveðskap
Afmælissýning í hliðarsal • Aðgangur ókeypis
Kvæðamannafélagið
19. og 20. september kl. 14.00 – 17.00
Nánari upplýsingar um dagskrána
á www.gerduberg.is
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is
2009
Umræðum stjórna Gunnsteinn Ólafsson
og Rósa Þorsteinsdóttir
F rumsýning atvinnuleikhússins í Grindavík á sunnudag kom svo sannarlega skemmtilega á óvart.
Gríðarvel unnið handrit lá til grundvallar marg-
breytilegri og skemmtilegri sýningu sem hafði allt það
til að bera sem prýðir góða leiksýningu fyrir börn á
öllum aldri.
Úti börðust regndropar við að vinna hver annan í
stríði úr öllum áttum en inni í litlu leikhúsi inn af veit-
ingahúsinu Mamma Mía áttu vinirnir Björn og Jórunn
fullt í fangi við að leita að festi sem þau þurftu að ná til
þess að geitarhorn hættu að vaxa út úr höfði Björns.
Hér er snilldarlega vafið saman fornum sögum um
landnámsmanninn Hafur-Björn og konu hans Jórunni
ásamt með örnefnasögum. Bjössi litli vaknar einn
morgun með lítil horn sem eru farin að vaxa upp úr
höfðinu og smám saman stækka þau. Jórunn fær að
gista hjá Birni þar sem litli nýfæddi bróðir hennar er
veikur og allir í fjölskyldu hennar eru á skítalaunum.
Vinirnir leita fyrst lausna á Netinu en þar er ekkert að
finna þannig að þau leita á náðir bókasafnsins og eftir
að vera búin að glugga í Landnámu og Íslendingabók
finna þau lausnina í Rúnabók.
Þau kunna ekkert að lesa svona rúnir þannig að
skemmtileg vera hjálpar þeim við það. Sagan um
Hafur-Björn sem gerði bandalag við Bergbúa og verð-
ur auðugur af fé er listilega notuð. Samkvæmt Land-
námu var Þórir haustmyrkur Vígbjóðsson landnáms-
maður í Krísuvík og hér verður hann fulltrúi hins
illa og þarf baráttu til að sigra hann með hinu góða.
Þar koma til hjálpar þjófar ekkert ósvipaðir Bakka-
bræðrum sem verða góðir og skila þjófagóssi sínu um
leið og þeir hjálpa börnunum.
Hér er unnið í mörgum vídd-
um þó að aðalbækistöðin
sé svefnherbergið hans
Bjössa litla.
Bjössi býr
eins
og
Einar Áskell með einstæðum föður og Sveinn Ólafur
Gunnarsson sem fór með hlutverk hins ofurmyndar-
lega pabba var í einu orði sagt yndislegur í hjákátlegri
nálgun sinni á manni sem gerir sitt besta í að vera í
senn pabbi og mamma. Víðir Guðmundsson sem fer
með hlutverk Bjössa hendist og skoppar, dansar og
bölsótast um leið og hann er svo ofurblíður. Jórunn
vinkona hans sem talar við hann á lenemali (leyni-
máli) er leikin af Sólveigu Guðmundsdóttur sem einn-
ig smeygir sér í hlutverk Más sem er bróðir Kára en
þeir félagar lifa í þjófagjánni sem opnast um nótt í
veggnum í herbergi Bjössa litla.
Það sem gerir sýninguna svo ljómandi góða er að
listamennirnir slá hvergi af kröfum sínum að vinna
vel, íslenskan er í hávegum höfð, barnssálin og það
sem í henni býr er hvergi ýkt upp í eitthvert barna-
tímarugl heldur er unnið af mikilli virðingu fyrir
börnum sem vitsmunaverum. Hér er greinilegt að
listamennirnir gera sér grein fyrir þeim víddum
sem búa í góðum sögum og menningarheimi barna.
Þau eru á einn máta þegar þau umgangast pabba, eða
bókasafnskonuna, á annan máta þegar þau eru tvö ein
og svo enn öðru vísi í baráttu við vonda karlinn og í
samskiptum sínum við þjófana.
Hér er dansað, hér er sungið, hér er skipt ört um
hlutverk án þess að rugla nokkurn tíma áhorfendur í
ríminu. Hreinleikinn í sögunni er alger og markmiðið
skýrt. Þetta er þröngt og lítið rými en engu að síður
er töfraheimur leikhússins gjörnýttur í haglega unn-
inni leikmynd Evu Völu Guðjónsdóttur. Bæði lýsing-
in og tónlistin lyftu ævintýrinu. Þessir vandvirku og
snjöllu listamenn gefa svo út glimrandi disk í sérlega
skemmtilegu hefti með myndum þannig að Bjössi og
Jórunn verða örugglega uppáhaldsvinir margra sem
séð hafa sýninguna.
Vel til fundið hjá þeim í Grindavík að styðja verk-
efni eins og þetta. Vonandi rata einhverjir nefndar-
menn á þessa sýningu þannig að hún verði tilnefnd til
verðlauna fyrir meðferð á íslensku máli.
Leikararnir voru hver öðrum betri og hlutverkin
einkar vel unnin, bæði af þeirra hálfu og frá hendi
höfunda. Ein dásamlegasta senan er þegar þjófarnir
hafa skilað góssinu en geta samt ekki alveg hugsað
sér að skila öllu heldur halda eftir meðali í krukku
frá Eyvindi og Höllu. Þeir dansa með þessa dýru dollu
sem inniheldur einhverja undrablöndu af birki, blá-
berjum og mosa sem læknar allt. Þeir dansa með hana
og engjast sundur og saman af fýlunni úr henni sem
verður til þess að salur-
inn liggur í hlátri
eins og á mörg-
um öðrum
stöðum.
Gaman!!!!
Kannski
á þ e s s i
texti ágæt-
lega v ið
núna: „Við
getum aldrei
alltaf skilað
öllu …“
Lifandi þvottapoki, land-
námsmenn og leynimál
HORN Á HÖFÐI
eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson
Leikarar: Víðir Guðmundsson, Sólveig Guðmunds-
dóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Leikstjóri: Bergur
Þór Ingólfsson
Tónlist: Vilhelm Anton Jónsson
Leikmynd og búningar: Eva Vala Guðjónsdóttir
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson
✶✶✶✶✶
LEIKLIST ELÍSABET BREKKAN