Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 64

Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 64
36 19. september 2009 LAUGARDAGUR NOKKUR ORÐ Atli Fannar Bjarkason ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þegar ég bjó í foreldrahúsum á Selfossi fyrir nokkrum árum dreymdi mig um piparsveinalíf framtíðarinnar. Ég sá fyrir mér að upp úr tvítugu myndi ég flytja í höfuðborgina, fá góða vinnu og taka flotta íbúð á leigu. Svo myndi ég hlaða öllum helstu þægindum í íbúðina; kveikt yrði á ljósum með klappi (slökkt með tveimur), rúmið yrði á snúningsfæti, sjónvarpið heill veggur að stærð og ísskápurinn fullur af litl- um gos- og bjórdósum. Nú er piparsveinalífið hafið fyrir alvöru þó að ekkert bóli á klapprofun- um fyrir ljósin. Þá færist rúmið ekki úr stað nema við sérstök tilefni og sjónvarpið er skitnar 32 tommur. Ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn þá er piparsveinalífið kvöð. Ég þarf reglulega að taka til eftir pókerpartí- in og eftir að ég gafst upp á að gera skúlptúr úr pítsukössum hefur rusla- pokaferðum fjölgað á dramatískan hátt. Stritið hefur þó gert mig auðmjúkan. Þegar ég tíni upp sígarettustubba eftir félagana úti á svölum horfi ég á bílinn minn sem er gamall – en ekki keyptur með hjálp bakrýtingsláns í erlendri mynt. Ónei. Og þegar ég geng um klístrað stofugólfið og tíni bjórdósir í poka lít ég á sjónvarpið sem ég keypti í staðinn fyrir að spara fyrir íbúð. Þvílík hamingja. Eftir stritið geng ég að ísskápnum og opna. Verður þá ljós og við blasa fimm litlar kókdósir í kippu og fjórar glansandi gylltar bjórdósir. Þær eru leifar brostinna drauma veruleikafirrta unglingsins frá Selfossi sem hélt að hamingjan væri í klapprofum. Því- lík fáviska. Veraldleg gæði eru lítilfjörleg í samanburði við óhollustu í fljótandi formi. Vinir mínir, hamingjan felst í sykruðum gosdrykkjum og brugguðum lager. Klapp klapp. Piparsveinalífið Viljið þið bara stökkva burt! Þetta er minn staður! Æ góði besti hoppaðu Hey, vörtuhausar, komið þið í mig. Körtur kvarta Púff, þetta eykur aldeilis matarlystina. Sælkerabúðin Óþarfi að þakka mér herra! Gleður mig að hafa getað hjálpað! Sjáðu Pétur Óli, ég var að fá mér nýjan síma! Klikk! Klikk! Klikk! Hvað er þetta? Mynd... af bréfi frá skól- anum? Flott! Rosalega er upplausnin í þessum símamyndum orðin góð! Ég sé fyrir mér að Palli sé með gesti. Þrjá, kannski fjóra ungl- ingsdrengi. Allir í stórum úlpum, strigaskóm og með risastóra bakpoka sem þeir tóku af sér við komuna. Rétt! Hvernig vissirðu þetta? Ég reyndi fyrst að kom- ast inn um aðaldyrnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.