Fréttablaðið - 19.09.2009, Side 65
LAUGARDAGUR 19. september 2009
Málþing er haldið í dag kl. 13 í
Kassanum helgað skáldskap Sig-
urðar Pálssonar. Málþingið er hald-
ið í gamla Ármannssalnum þar sem
áður glímdu Ármenningar hver við
annan. Glíma Sigurðar við orðin
hefur verið löng og ströng: Sigurður
Pálsson varð sextugur á síðasta ári
og af því tilefni er efnt til þings um
hann á vegum Bókmenntastofnun-
ar Háskólans, að þessu sinni í sam-
starfi við Þjóðleikhúsið sem sýnir
um þessar mundir Utan gátta, verk
hans frá í fyrra sem var margverð-
launað á Grímunni snemmsumars.
Dagskráin hefst í dag kl. 13 og þar
fer fyrst um Sigurð orðum Sigríður
Albertsdóttir bókmenntafræðingur
en hún hefur unnið að rannsóknum
á skáldskap hans. Hún kallar erindi
sitt: Lífsgleðin er skylda.
Í hennar slóð fetar svo Kristj-
án Þórður Hrafnsson skáld: hann
helgar innlegg sitt Erosi. Sveinn
Yngvi Egilsson prófessor talar um
vegi ljóðsins og samfélag götunnar
í skáldskap Sigurðar Pálssonar, og
síðan þræðir Magnús Þór Þorbergs-
son lektor dyr og gáttir í leikritum
Sigurðar Pálssonar en frá áttunda
áratugnum hefur Sigurður verið
mikilvirkur sem leikskáld.
„Minnið er alltaf að störfum“
heitir erindi Gunnþórunnar Guð-
mundsdóttir. Þar hefst endurminn-
ingatal því Jóhann Páll Valdimars-
son, útgefandi Sigurðar, rifjar upp
fundi þeirra og samstarf. Jóhann
hefur gefið verk Sigurðar út alla
tíð. Ég og Pálsson kallar Jóhann
spjall sitt. Þá talar Pétur Gunnars-
son rithöfundur: Til Sigurhæða … og
áfram er yfirskrift ræðu hans. Að
lokum fær Sigurður tækifæri til
að botna. Þegar hann var spurð-
ur á fimmtudag hvernig það væri
að vera þangað kominn við sex-
tugt að þingað væri um lífsstarfið
sagði Sigurður: „Ég vil bara leggja
áherslu á að lesturinn er frjáls og
lestur er skapandi athöfn. Í lestr-
inum er merkingin framleidd. Ég
vil færa vegasaltið þannig að þegar
höfundur hefur klárað sitt verk
getur lesandinn fabúlerað, þó sú
fabúlasjón sé jafnvel vitleysa. .“
Málþingið er öllum opið meðan
húsrúm leyfir.
Sextíu ára galdurinn
MENNING Þingað verður um Sigurð Pálsson í dag kl. 13 í Kassanum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Blátunna
Breytt tilhögun
í sorphirðu!
Nánari upplýsingar hjá hvoru sveitarfélagi fyrir sig:
Bláskógabyggð: www.blaskogabyggd.is/sorpmal eða þjónustumiðstöð í síma 486-8726.
Grímsnes- og Grafningshreppur: www.gogg.is eða áhaldahús í síma 892-1684.
Frá og með 1. október 2009 hefst tunnuhirðing sorps frá heimilum í Bláskóga-
byggð og Grímsnes- og Grafningshreppi. Þá verða heimilissorpgámar fjarlægðir af
opnum svæðum í sveitarfélögunum. Samhliða verða breytingar á móttökusvæðum
úrgangs í Bláskógabyggð, en móttökusvæði úrgangs í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi verður áfram á Seyðishólum.
Frá og með 1. október 2009 verða í Bláskógabyggð tvær móttökustöðvar fyrir
úrgang, að Lindarskógum 10-14 á Laugarvatni og Vegholti 8 í Reykholti. Einnig
verður opið sameiginlegt móttökusvæði sveitarfélaganna fyrir úrgangs að Heiðar-
bæ, Þingvallasveit, yfir sumarmánuðina. Öðrum móttökustöðvum í sveitarfélaginu
verður lokað.
Móttökustöðvar sveitarfélaganna verða opnar á ákveðnum tímum, gerð verður
krafa um flokkun úrgangs og allur úrgangur sem ekki ber úrvinnslugjald verður
gjaldskyldur.
Kynningafundir verða haldnir sem hér segir:
21. september kl. 20.00 í Tjaldmiðstöðinni á Laugarvatni
22. september kl. 20.00 í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi
23. september kl. 20.00 í Félagsheimilinu Aratungu í Reykholti
28. september kl. 20.00 í Þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum.