Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 86

Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 86
58 19. september 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. hvetja, 6. umhverfis, 8. bók, 9. skref, 11. tveir eins, 12. fáni, 14. yfirstéttar, 16. klaki, 17. sauðaþari, 18. uppistaða, 20. grískur bókstafur, 21. vingjarnleiki. LÓÐRÉTT 1. nautasteik, 3. tveir eins, 4. hrörnun, 5. sigað, 7. planta, 10. skítur, 13. loft, 15. slithólkur, 16. vætla, 19. nudd. LAUSN LÁRÉTT: 2. örva, 6. um, 8. rit, 9. fet, 11. tt, 12. flagg, 14. aðals, 16. ís, 17. söl, 18. lón, 20. pí, 21. alúð. LÓÐRÉTT: 1. buff, 3. rr, 4. vitglöp, 5. att, 7. melasól, 10. tað, 13. gas, 15. slíf, 16. íla, 19. nú. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Páll Hreinsson. 2 Brjóstahaldi og brókum. 3 Margrét Erla Maack. Úttekt Frímanns Gunnarssonar, hugarfósturs Gunn- ars Hanssonar, á skandinavísku gríni er hafin. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru hyggst Frí- mann heimsækja marga af þekktustu grínurum Norð- urlandanna. Nú eru tökur sem sagt hafnar og fyrsta ferðin var farin til Finnlands. Þar hittu Frímann og Gunnar fyrir Andre Vikström, grínista sem er í mikl- um metum hjá Finnum og Svíum. Gunnar vill ekki gefa of mikið upp um hvað þeim Frímanni og Andre fór á milli í Finnlandi en viður- kennir að sjónvarpsmaðurinn íslenski hafi skellt sér í dæmigert finnskt gufubað. „Og þá varð mér ljóst að ég verð að koma mér í betra form,“ segir Gunnar og skellir upp úr. Hann vill þó ekki staðfesta að Frímann hafi verið algjörlega allsber fyrir framan tökuvélarnar eins og hefð er fyrir í Finnlandi. „Nei, en hann verður sennilega nokkuð klæðlítill í Noregi. Já, hann verður algjörlega nak- inn,“ útskýrir Gunnar en þangað heldur tökuliðið í lok þessa mánaðar og heilsar upp á norska grínistann Dagfinn Lyngbo. Í nóvember verður síðan haldið til Svíþjóðar en í janúar verður Frank Kvam, annar af Klovn-leikurun- um vinsælu, heimsóttur í Danmörku. Þá standa yfir viðræður við grínista á Bretlandseyjum og segir Gunnar að það mál ætti að skýrast á næstunni. „Við erum bara búnir að vera svo heppnir að þeir sem okkur langaði til að vinna með hafa allir sagt já.“ Þættirnir eiga að fara á dagskrá næsta haust og segir Gunnar það nokkuð þægilegt; þeir séu ekki plagaðir af einhverju stressi heldur geti vandað vel til verka. Leikstjóri þáttanna er Ragnar Hansson en um tónlistina sér Birgir Ísleifur Gunnarsson úr Motion Boys. - fgg NAKINN Á SKJÁNUM Áhorfendur gætu átt von á nöktum Frímanni þegar hann snýr aftur á Skjáinn næsta haust. Gunnar og Frímann eru á leiðinni til Noregs og ætla að taka hús á Dagfinn Lyngbo. Frímann striplast í Noregi og Finnlandi „Hugmyndin er að gefa gömlum kjólum framhaldslíf í gegnum þennan gjörning. Gjörningurinn felst í því að safna 365 kjólum frá íslenskum konum frá átján ára aldri og upp úr. Kjólarnir mega vera af öllum stærðum og gerð- um og þarf saga kjólsins að fylgja með,“ segir Gíslína Dögg Bjarka- dóttir, textíl- og fatahönnuður í Vestmannaeyjum. Hún safnar nú 365 kjólum sem notaðir verða í gjörningi sem hefst 24. október og gengur út á það að hengdur verður upp einn kjóll á vinnustofu hennar hvern dag næsta árið. Að ári liðnu verð- ur haldið uppboð þar sem kjólarn- ir verða seldir hæstbjóðanda og mun allur ágóði renna til góðgerð- armála. Þeir kjólar sem ekki selj- ast fá þó framhaldslíf til dæmis í leikhúsi. Hægt verður að fylgjast með verkefninu á samskiptasíðunni Fésbók, en þar verður einnig hægt að sjá nöfn þeirra sem taka þátt í gjörningnum með Gíslínu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í gjörningnum geta sent kjól ásamt sögu hans á Vinnustofuna Kví Kví við Skildingaveg 14 í Vest- mannaeyjum. - sm Safnar kjól fyrir hvern dag ársins SAFNAR KJÓLUM Gíslína segir að markmið gjörningsins sé að gefa gömlum kjólum framhaldslíf. MYND/KONNÝ Oddur Snær Halldórsson Aldur: 29 ára. Starf: Ég er við- burðastjóri hjá tölvufyrirtækinu CCP. Búseta: Mos- fellsbær. Fjölskylda: Ég á fimm ára dótt- ur sem heitir Embla Eir. Foreldrar: Móðir mín heitir Áslaug Kristín Ásgeirsdóttir og faðir minn heitir Halldór Bjarnason. Stjörnumerki: Ljón. Oddur skipuleggur Fan Fest hjá Eve Online-tölvuleiknum. „Ég er alveg ótrúlega hamingju- samur yfir að vera kominn til Íslands, brosi bara allan hring- inn,“ segir þýski leikarinn Daniel Brühl sem leikur eitt aðalhlut- verkanna í íslensku kvikmyndinni Kóngavegur 7 en leikstjóri henn- ar er Valdís Óskarsdóttir. Brühl er einn þekktasti leikari Þýskalands af ungu kynslóðinni og stjarna hans hefur sennilega aldrei skin- ið jafnskært og nú í ljósi frammi- stöðunnar í Tarantino-myndinni Inglourious Basterds. „Það var alveg ótrúlegt að vinna með Tar- antino, hann er gangandi alfræði- orðabók um kvikmyndir. Hann veit gjörsamlega allt. Og við áttum góðar stundir utan tökustaðarins þar sem hann talaði meðal ann- ars vel um Ísland,“ segir Brühl en hann vildi ekki tjá sig um hvort Tarantino hefði deilt með honum sögunni um fyrirsætuna sem datt beint á andlitið fyrir framan hann á Kaffibarnum. „No comm- ent,“ segir Brühl og hlær. Sjálfur skemmti Brühl sér á Kaffibarnum um síðustu helgi svo hann ætti í það minnsta að kannast við stað- inn. En það eru fleiri Íslandsteng- ingar við Tarantino-myndina því förðunarfræðingurinn Heba Þóris- dóttir hafði yfirumsjón með förð- uninni í myndinni. „Já, alveg rétt, hún var einn af mínum uppáhalds- vinum af fólkinu í tökuliðinu. Ég verð að senda henni póst og segja henni að ég sé á Íslandi,“ segir Daniel og bætir því við að senni- lega sé förðunarstóllinn einhver persónulegasti staðurinn sem leik- ari geti verið á. „Þar er allt látið flakka og rætt um allt milli him- ins og jarðar.“ Og nú mun sem sagt önnur íslensk kona stjórna honum, Valdís Óskarsdóttir. „Ég var akk- úrat að segja henni að hún hefði klippt tvær af mínum uppáhalds- kvikmyndum, Eternal Sunshine of the Spotless Mind er til að mynda algjört meistaraverk.“ Brühl verður á ferð og flugi þann tíma sem hann leikur í Kóngavegi 7 því hann er einn- ig að leika í kvikmynd í Berlín. „Já, þetta verður nokkuð stremb- ið en ég hlakka mikið til. Því miður fæ ég ekki tækifæri til að skoða landið en þess vegna ætla ég líka að eyða áramótunum hér ásamt nokkrum góðum þýskum vinum og svo vinum mínum hér,“ segir Daniel. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá var það ekki síst vinskapur Daniels og hjónakorn- anna Nínu Daggar Filippusdótt- ur og Gísla Arnar Garðarsson- ar sem varð til þess að leikarinn samþykkti að leika í myndinni. „Já, við vorum svokallaðar „shoot- ing stars“ í Berlín fyrir sjö árum. Síðan var ég að leika í mynd í London fyrir þremur árum og þá var Vestur port að setja upp Rómeó og Júlíu og þá kynntist ég öllum hinum í leikhópnum; Ingvari E. Sigurðssyni, Ólafi Darra og Gísla Erni.“ Og nú eru þau öll sameinuð í Kóngavegi 7. freyrgigja@frettabladid.is DANIEL BRÜHL: QUENTIN TARANTINO TALAÐI VEL UM ÍSLAND Eyðir áramótunum á Íslandi HLAKKAR MIKIÐ TIL Daniel Brühl kom til Íslands fyrir viku og þar sem hann getur ekki skoðað landið mikið mun hann eyða áramótunum hér á landi. MYND/BERGSTEINN BJÖRGÚLFSSON Ný könnun Capacent Gallup á áhorfi á sjónvarpsstöðvarnar er um margt merkileg. Þar kemur í ljós að veðurfréttafólkið er það vinsælasta á skjánum um þessar mundir. Áhorfið á veðurfréttirnar hefur sjaldan eða aldrei verið meira og þar sannast kannski hið fornkveðna að Íslendingar eru umfram allt veður- fréttasjúkir. Veðurfrétta- menn á borð við Einar Magnús Einarsson verða því eflaust áber- andi í næsta Séð og heyrt. Hins vegar má Kastljósið muna sinn fífil fegri meðal hinna yngri Íslendinga og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Sigmar Guð- mundsson, aðstoðarritstjóra þáttarins. Kastljósið mælist ágætlega meðal aldurshópsins 12-80 ára en varla þykir það fínt að vera með rúmlega tólf prósenta áhorf í aldurshópnum 12- 49 ára. Litlar breytingar eru á hlustun útvarpsstöðvanna. Rás 2, Bylgjan og FM 95,7 halda enn sinni yfir- burðastöðu á markaðnum. Einar Bárðarson, útvarpsstjóri Kanans, hlýtur að hafa einhverjar áhyggjur af því að ná ekki að bíta í skottið á risun- um en getur þó huggað sig við þá staðreynd að stöðin er enn blaut á bak við eyrun. Og endingu er rétt að geta þess að menn velta nú vöngum yfir þeim gríðarlega fjölda sem er reiðubúinn til að láta loka sig inni í Kringlunni í heilan sólarhring. Uppátækið er hluti af markaðsherferð Fangavaktar Ragnars Bragasonar en alls skráðu 1.500 manns sig til leiks. Það er svipaður fjöldi og hefur skráð sig í Idol og X-Factor. Fólk er greini- lega reiðubúið að leggja ýmsilegt á sig til að komast yfir árs áskrift að Stöð 2. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Höfuðáverkar á Íslandi - úrræði skortir • Í hverjum mánuði greinast um 50 börn með höfuðáverka • Þrjú þeirra hljóta það alvarlega áverka að þau þarfnast stuðnings og endurhæfi ngar til lengri tíma • Úrræði til endurhæfi ngar skortir hér á landi Þriðjudagskvöldið 22. september kl. 20 fl ytur Jónas G. Halldórsson taugasálfræðingur erindið: Börn og unglingar með höfuðáverka. Hvernig viljum við sjá framtíðina? Fundurinn verður haldinn að Hátúni 10b, jarðhæð. Næstu fundir Hugarfars: 20. október - Claudia Ósk Hoeltje Georgsdóttir sérfræðingur í klínískri taugasálfræði talar um minnisæfi ngar. 24. nóvember - jólafundur félagsins. www.hugarfar.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.