Fréttablaðið - 19.09.2009, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er laugardagurinn 19. sept-
ember 2009, 262. dagur ársins.
7.02 13.22 19.39
6.46 13.06 19.25
145,-
Holtasmári 1 Kópavogur Kaupvangsstræti 1 Akureyri Sími: 577 2025 www.sparnadur.is
www.sparnadur.is
Flestar íbúagötur eiga sinn „sóða“. Sóðinn geymir þá ann-
aðhvort vörubílinn sinn í garðinum
því það má ekki leggja vinnuvélum
í götunni eða klárar aldrei húsið
sitt því allt er í rugli. Á meðan góð-
borgararnir, nágrannar hans, eru
úti og útbúa litla gervihóla í garð-
inum og dytta að litlu runnunum
sínum og litlu steinunum og stíg-
unum, er sóðinn á númer þrjú að
útbúa sér andapoll með svörtum
plastpokum.
Í kringum 1985 var einn af þess-
um sóðum að koma upp girðingu
við húsið sitt í Árbænum og notaði
til þess einhvers konar bláa brúsa,
af stærri gerðinni, sem hann hafði
smám saman safnað sér, nágrann-
arnir sögðu, á haugunum. Hann
náði aldrei að safna fleiri en tíu
brúsum þannig að plastbrúsagirð-
ingin var aldrei kláruð en engu
síður stóðu þeir og mynduðu tíu
brúsa línu meðfram gangstéttinni.
ÞVÍ miður, verð ég að segja, finnst
mér sóðunum eitthvað hafa farið
fækkandi. Enda þarf kannski
minna til að nágrannarnir flippi í
seinni tíð. Kannski ekki nema það
að nágranninn fylgi ekki jólaskreyt-
ingastefnu húsfélagsins úr Egg
(blessuð sé minning hennar). Eða að
flippaði nágranninn setji upp gam-
aldags kertaskreytingu í anda Rúm-
fatalagersins og fær lesendabréf frá
hr. epal, þriðju hæð til hægri. Auð-
vitað til hægri. Ehemm.
NÚ hefur Reykjavíkurborg ákveð-
ið að leggja góðborgurum landsins
lið og sendir bréf til sóða Reykja-
víkurborgar – með ljósmyndum
af vettvangi og tillögum um hvað
betur megi fara. Ófrágengnar lóðir,
ómálaðir gluggakarmar, vond garð-
umhirða og annað skal skjalfest.
Allt skal líta vel út að utan – en
hvernig á þetta að vera að innan?
Ég er nokkuð viss um að jólin hjá
sóðanum á númer þrjú voru miklu
skemmtilegri en fólkinu með stíg-
inn sinn litla.
KANNSKI skilar þetta átak því
að einhverjum líður betur í sínum
fagurfræðilegu taugum. Eitt
veit ég þó um, sem þetta skilar
ekki börnum okkar og umhverfi
– umburðarlyndi. Það er að sjálf-
sögðu ómögulegt að boðskapur sem
byggist á því að allt skuli vera tipp
topp kenni okkur að virða það sem
er öðruvísi og kannski ekki alveg
eins og við þekkjum. Fordómar
fyrir því sem er öðruvísi þarf mun
frekar aðhlynningu en bakgarður
í Þingholtunum. Er ekki kominn
tími til að leyfa því sem er öðruvísi
að standa hnarreist eitt augnablik
án þess að einhver mæti á staðinn
með fyrirfram tilbúið steypumót?
Sóðinn á
númer þrjú
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur