Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1947, Page 14

Stúdentablaðið - 01.12.1947, Page 14
8 STÚDENTABLAÐ Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, dósent: Skólameistarahjónin á Akureyri. Sigurður Guðmundsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, lœtur af embœtti sínu í dag cftir langt og merkilegt starf í þágu tslenzkra kennslu og uppeldismála, Þótti Stúdentablaðinu cinsœtt að minnast lians á þessum miklu tímamótum œvi hans. Sigurður Guðmundsson er fæddur á Æsustöðum í Langadal í Húnavatnssýslu 3. sept. 1878. Hann lauk stiulentsprófi 1902, meistaraprófi í norrœnum fræðum við Hafnarháskóla 1910, var stundakennari við Menntaskótann i Reykjavík 1911—20 og kenndi í Kennaraskólanum í stað dr. Björns Bjarnasonar frá Viðfirði 1912—17, en var skipaður kennari þar 1917. Hann varð síðan skólameistari Gagnfræðaskólans (síðar Menntaskólans) á Akureyri sumarið 1921 og hefur gcgnt þvi embœtti þar til í dag, cr hann lœt- ur af því fyrir aldurs sakir. Sigurður kvæntist vorið 1915 HaUdóru Ölafsdóttur prests i Kálfholti Finnssonar, og eiga þau 5 börn á lífi. Skólameistarahjónin frá Akureyri voru lieiðursgestir á landsmóti stúdenta, sem haldið var á vegum Stúdentasanibands íslands í Reykjavik og Reykholti dagana 19.—21. júlí í sumar. Við setningu mótsins í hátíðasal háskólans ávarpaði dr. Steingrímur J. Þorsteinsson dósent heiðursgestina. Hefur hann góðfxXs- lega leyft Stúdentablaðinu að birta ávarp sitt, sem fer liór á eftir. Það er ekki að ófyrirsynju, að skólameist- arahjónin frá Akureyri, Sigurður Guðmunds- son og frú Halldóra Ólafsdóttir, eru fyrstu heiðursgestir Stúdentasambands íslands — á síðasta landsmóti stúdenta, sem haldið mun verða, meðan Sigurður Guðmundsson situr að skólastjórn. Störf hans í þágu íslenzkra skólamála og íslenzks menningarlífs eru al- kunnari en svo, að á þau þurfi að minna. Hitt er vandgerðara að meta þau að verð- leikum. Hér gefst ekki ráðrúm til slíks mats. Þetta verða aðeins örfá þakkarorð. Segja mætti, að störf Sigurðar Guðmunds- sonar hefðu verið tvíþætt, annars vegar rit- störf, hins vegar kennsla og skólastjórn. Ég myndi þó fremur orða það svo, að þau hefðu verið einþætt. Svo heill og óskiptur hefur Sigurður Guðmundsson verið í skólastarfi sínu. En þessi eini þáttur er líka gildari en samfléttur flestra hinna, sem spunnið hafa sinn þráðinn úr hverju efninu. Með þessu vil ég sízt gera lítið úr ritstörf- um Sigurðar. Við hefðum að vísu kosið þau meiri að vöxtum — eins og flest þau verk önnur, sem fengur er í. Og þó hefði orðið vafasamur vinningur að þeim skiptum, ef skólastarf Sigurðar hefði misst mikils við. En ritstörf hans hafa alltaf komið mér fyrir sjón- ir sem einn hlutinn af verki hins mikla, heil- huga skólamanns. Það er kennandinn, túlk- andinn, skýrandinn, sem er þar að starfi. Bókmenntaritgerðir hans ná allt frá Njálu — og raunar Eddukvæðum — til Davíðs Stefánssonar, en einkum hefur hann lagt rækt við og ritað um ýmis höfuðskáld 19. aldar. Bókmenntaþættir hans flestir og mannaminni voru gefin út í ritsafni á síð- astliðnu ári. Þá birtust einnig í „Samtíð og sögu“ háskólafyrirlestrar hans um Bjarna Thorarensen, en þeir eru tvímælalaust með því allra bezta, sem um kveðskap Bjarna hefur verið skrifað, og verður aldrei fram

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.