Spegillinn - 01.05.1983, Page 15

Spegillinn - 01.05.1983, Page 15
Alvöru hamborgarar Miklir hugsuðir virðast alltaf hafa nægan tima til andlegra iðkana þó að þeir standi upp fyrir eyru í verkunum. Þannig gaf Albert Guðmundsson, lsti þingmaður Reykjavíkur, sér tíma til þess í miðri kosningabaráttunni að gera uppskrift fyrir Pétur Sveinbjarnar- son i Aski að alvöru hamborgurum. Þótti mörgum sem tími væri enda til kominn að þjóðin gæti hætt að leggja sér til munns gerfihamborgarana frá Tomma og þeim hinum. Uppskrift Alberts að alvöru hamborgurum er svona (birt án leyfis Alberts): 75 gr. svínafita. 40 gr. svínakjöt (skafið af beinum). 15 gr. trefjar. V2 bolli hvítt hveiti. 1 matskeið sykur. Dálitið af salti, pipar og papriku. Hakkið, hrærið, hnoðið og skellið á pönnuna. Gott er að hafa Tilsetter-ost undir og ofan á borgaranum, kokkteilsósu úr Gunnars- Mayonesi og rúnstykki úr Kökuhúsinu. Þá spillir ekki að nota tvo til þrjá dropa af Kvöldvorrósarolíu eða hertri geitarfeiti út i kjötdeigið í staðinn fyrir vanilludropana, sem notaðir voru í frumuppskriftinni. Mælt er með hálfri annarri flösku af frönsku rauðvíni með hverjum borgara og hálfri koníaksflösku i eftirrétt. Sjáumst á Pollinum. 15

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.