Spegillinn - 01.05.1983, Síða 18

Spegillinn - 01.05.1983, Síða 18
Kæri Ólafur. Laganefnd Félags áhugamanna um alvarleg málefni tók mál þitt fyrir s.l. laugardag. Meginniðurstaða nefndar- innar er sú, að menn séu alla jafnan berskjaldaðir fyrir svona svívirðilegum lágkúruhætti. Það er sem sagt ekkert í lögum sem bannar pólitíska umfjöllun um klœðnað manna og meira að segja hafa margir ágœtir og efnilegir stjórn- málamenn orðið að lúta í lægra haldi fyrir kjafthœtti og rógburði um fatnað, útlit og einkalíf. Menn hafa þannig orðið að gefa stjórnmál upp á bátinn vegna nefgalla, tanngalla, hárgreiðslu, göngulags, geðveiki, flogaveiki, heimsku og ónáttúru. Margt gott leiðtogaefnið í pólitíkinni hefur farið flatt á framhjá- haldi, fikti og þuklun smábarna. Sömu- leiðis hefur margur farið flatt á klæðn- aði sínum. Sumir hafa hins vegar risið upp úr meðalmennskunni á klœðnaði einum saman, sbr. sjálflýsandi fötin sem Karvel mætti í á Alþingi í fyrsta sinn sem hann var kosinn og vakti óskerta og takmarkalausa athygli og gerir reynd- ar enn. Það eina sem við getum ráðlagt í þessu sambandi er að skera sig hvergi úr, hvorki í klœðnaði eða útliti. Til þess að verða ekki fyrir aðkasti eiga menn að vera alþýðlega klœddir, helst í Lee- gallabuxum og einfaldri peysu. Þeir eiga helst að vera illa greiddir og niðurlútir og temja sér þunglamalegt göngulag. Það er hinn íslenski sauðasvipur, íslensku sauðalitirnir og íslenskur sauðsháttur sem virðist ganga best í kjósendur. Menn sem tileinka sér slíkt eru að skapi þjóðarinnar. Fyrstu viðbrögð þjóðarinnar Speglinum er heiður að því að geta skýrt lesendum sínum frá fyrstu og einu viðbrögðum þjóðarinnar við fyrsta tölu- blaðinu. Inn um póstlúguna barst þykkt og mikið umslag og í því samanbrotinn Spegill. Á hann var límdur lítill miði sem á stóð þetta eina orð: Vesalingar. Spegillinn flytur sendanda bestu þakk- ir fyrir og hefði gaman af að hitta heiðursmanninn í eigin persónu. Kæri þáttur. Ég hef um nokkurra ára skeið haft veruleg afskipti af pólitík. Ég hef reynt að leggja mig mjög fram í mörgum meiriháttar málaflokkum. Ég var al- þingismaður um skeið og lét verulega að mér kveða á þeim vettvangi og ég hef einnig verið talsvert virkur greina- höfundur í dagblöðum. Ég hef með öðrum orðum ástundað stjórnmál á nokkuð háu plani. í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar brá hins vegar svo við, að ýmsir illa innrættir andstæðingar mínir í pólitík og nokkrir fataframleiðendur lögðust svo lágt að gera fötin mín að aðalumtalsefni kosninganna. Þeir töl- uðu um gráu jólafötin ensku, brúnu fötin frá Ítalíu, norsku rifflaflauelisföt- in, amerísku bláu úlpuna og eitthvað af nærfötum. Mér finnst þetta mjög óheiðarleg kosningabarátta og ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, enda er það á allra vitorði að mig klæjar almennt undan íslenskum fatnaði. Spurningin er sú, hvort ekki sé neitt í stjórnarskrá eða almennum lögum sem bannar svona árásir á klæðnað manna. Ólafur R. Grímsson. ARUMS TOKKNU -0 Alhliða lesenda- þjónusta 18

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.