Spegillinn - 01.05.1983, Síða 29

Spegillinn - 01.05.1983, Síða 29
— Sæði handa Guddu Einn af mestu hugsuðum þessarar þjóðar er Geir R. Andersen. Hann hefur frjótt ímyndunarafl, fastmótaðar skoðanir og er kengfullur af jákvœðum viðhorfum til mann- lífsins og umhverfisins alls. Geir gerði Speglinum þann heiður að senda honum eftir- farandi grein til birtingar, og þar sem hún fellur eins og flýs við rass — eða böllur í feita vinnukonu — við ritstjórnar- stefnu blaðsins birtist hún hér og nú. Pyntingar og blekkingar Hvað er að hjá einni fá- mennustu þjóð heims? Við höldum uppi sjálfspynt- ingarstefnu, einangrunarstefnu og sjálfsblekkingarstefnu, sem er einsdæmi í veröldinni. Horrim hafta og niðurlægingar Sjálfspyntingarstefnan kemur berlega í ljós í þeim greinum er snerta verslun og viðskipti. Hömlur á auglýsingafrelsi er eitt dæmið. Auglýsingar um áfengi og tóbak er glöggt dæmi um þetta. Löggjafinn (Alþingi) setti regl- ur um merkingu sígarettupakka. Petta lagðist niður vegna of mikils kostnaðar. Og viðskipti halda áfram að draga fram lífið á horrim hafta og niðurlæging- ar. Þeirsem hæst jarma Lokunartími verslana er ann- að dæmi um sjálfspyntingar- stefnu þá sem neytendur á íslandi gangast undir af skin- helgi og ímyndaðri samstöðu með launþegum í verslunar- stétt. — Peir sem hæst jarma um að „verslunarfólk þurfi nú frí eins og annað fólk“ eru fyrstir að búðardyrum þeirra kaupmanna, sem að eigin frum- kvæði vilja veita nauðsynlega þjónustu þótt svokallaður helgi- dagur hafi verið settur á alma- nakið. Sem karlar eiga en Kanar fá að njóta Lélegt sjónvarpsefni og nið- urdrepandi er líka eitt dæmið um sjálfspyntingarstefnu íslend- inga, ásamt með þeirri stað- reynd að í landinu er sjónvarp- að einu besta afþreyingarefni sem þekkist í heiminum, — og nú móttekið af jarðstöð sem kostuð er af almenningi í land- inu, fyrir varnarliðið, en al- menningi fyrirmunað að njóta. Bullarinn Geir R. Andersen. Aumingjaskapur íslendinga Stjórnvöld, þar með taldir allir pólitísku flokkarnir hafa ákveðið að hér skuli vera til staðar varnarlið, sem ma. á að koma til móts við þann aum- ingjaskap íslendinga, að hafa einir þjóða ekki á að skipa heimavarnarliði, sem getur brugðið við sem fyrsta aðgerð, ef um óvænta ógn er að ræða. Þegnskylduvinna í einu eða öðru formi hér á landi hefur alltaf verið bannorð og er það eitt og sér tilefni mikillar niður- lægingar. Landið er hvorki fagurt né frítt Það er sjálfsblekking þegar því er haldið fram að íslensk náttúra og landslag sé viðkvæm- ara, landslag fegurra hér og því þurfum við að gæta okkar vel á útlendingum. Þeir fara með hvougt með sér. „Jú, þeir taka nú landslagsmyndir hér og fara með úr landi,“ segja einangrunarsinnar! Versti fiskur í heimi Það er sálfsblekking þegar því er haldið fram, að fiskur frá íslandi sé sá besti sem fyrirfinnst. íslenskur fiskur er eins og gengur og gerist, en hann er sá allra versti þegar íslensk mannshönd hefur með- höndlað hann. Danskt sæði handa Guddu Það er sjálfsblekking að ekki megi rækta hér holdanauta- stofn, nema í sérstökum „Gulak“- stöðvum vegna þess að sæðið sé úr erlendum stofnum. Hins vegar má óhindrað flytja inn danskt mannssæði handa Gudd- um og öðrum „fjallkonum“ hinnar hreinu náttúru! Af stað burt Það er hrein sjálfsblekking að setja boð og bönn gegn frjálsu þjóðlífi sem íslending- ar sækja sjálfir svo mjög eftir að njóta að þeir leggja margir hverjir fram aleigu sína til að komast úr landi sjálfspynting- ar, einangrunar og sjálfsblekk- ingar 365 daga samfleytt. Geir R. Andersen. 29

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.