Fálkinn - 07.06.1933, Blaðsíða 16
14
F A L! K I N N
Trjávjnsluiðnaður Norðmanna
er undirstaðá mesta útflutnings
þjóðarinnar, þegar hann er tal-
inn undir eitt. Efni unnin úr
timbri eru að verðgildi 25% af
öllum útflutningi Noregs og
nema meira en helmingi alls
iðnaðarútflutningsins. Innborg-
að hlutafje í fyrirtækjum sem
starfa að pappírsiðnaði er meira
en í nokkurri annari iðngrein.
Hinar 42 pappírs- og 8 pappa-
og kartonverksmiðjur landsins
hafa framleiðslumagn, sem nem-
ur um 400.000 smálestum af
]>appir og yfir 30.000 smálestum
af pappa og karton á ári. Og
þegar maður lieyrir, að um 300.
000 smálestir af pappírsfram-
leiðslunni og um 20.000 smá-
lestir af ])appa- og karton-fram-
leiðslunni er selt úr landi og þeg-
ar þessi utflutningur færir land-
inu um 70 miljónir króna á ári
frá útlendum marköðum, getur
maður skilið, að pappírsiðnað-
urinn er voldugur þáttur í við-
skiftalífi Noregs.
Hvað er það þá, sem hefir
skapað möguleikana fyrir þess-
um risaiðnaði í ekki stærra
landi en Noregur er?
Eiginlega má svara spurning-
unni með fjórum orðum: skóg-
ur, tækni, skipulag og peningar.
Fyrsta pappírsmyllan í Noregi
var stofnuð 1(598 við Akerselven
nálægt Osló, og smám saman
hættust fleiri við. Var eingöngu
luigsað um að fullnægja papp-
írsþörfinni innanlands, en hún
var ekki mikil og það var eigi
fyr en á síðari hluta 19. aldar
að farið var að framleiða til
litflutnings.
En þessar iðnstofnanir voru
óverulegar þangað lil farið var
að nota „mekanisk" trjákvoðu
og scllulose til pappírsiðjunnar.
St'ór pappirsverksmiðja í Noregi.
ög þar koniu hin miklu náttúru-
auðæfi iðnaðinum að notum. í
hinum miklu furu- og greni-
skógum sínum liefir landið á-
gætan grundvöll til umfangs-
mikils pappirsiðnaðar. Meira en
fimti hluti landsins er þakinn
skógi. Stórar og fagrar ár renna
um landið og rnynda eðlilegan
„þjóðveg“ til að fleyta timbrinu
út úr hinum djúpu skógum og
til verksmiðjunnar, þar sem
fossinn gefur verksmiðjunum
rekstursafl og öruggar hafnir
gera vissu fyrir fljótri og ó-
dýrri afskipun vörunnar til fjar-
lægra markaða i öllum álfum.
Byrjað var með pappírsmyll-
um, sem notuðu tuskur og sellu-
lose úr hálnii sem hráefni, en
síðan farið að nota trjákvoðu
og sellulose í pappírsgerðina og
i dag á þjóðin 42 stór verk-
smiðjufyrirtæki með liinum
fidlkomnustu og margbrotnustu
risavöxnu pappírsgerðarvjelum,
sem Jiver fyrir sig er dæmi upp
á liið hesta í mannlegú hugviti,
og skipulag á iðnaði, sem gæti
verið öðrum þjóðum til fyrir-
myndar.
F vrsta trjákvoðuverksmiðjan
var l)ygð árið 1866. Síðan hafa
l.æst svo margar við, að nú
eru i Noregi 68 verksmiðjur,
em framleiða til samans fast
að einni rniljón smálestum al'
votri trjákvoðu.
Fyrsta selluloseverksmiðjan i
Noregi lcom 1874 og þessi iðn-
aður óx einnig mjög Jiraðfara.
Framleiðslan var samtals 403.
000 smálestir 1928 í 25 verk-
smiðjum. A síðari árum licfir
framleiðsla á bleiktri sellulose
vaxið rnjög ört, því að þetta
efhi er líka notað í gerfisilki.
Auk þess sem Noregur vitan-
lcga sjer öllum innlendum papp-
írssmiðjum fyrir trjákvoðu og
cllulose til pappírsframleiðsl-
unnar, er mikið af þessu efni
flutt til annara landa, sem hrá-
efni handa ])a])])írs- og gerfi-
siJkisverksmiðjum þar.
ísland liefir í fjölda ára flutt
inn mestan liluta pappírs síns
af öllum tegundum frá Noregi.
Norskar verksmiðjur og papp-
írsheildsalar hafa unnið ósleiti-
Jega að þvi að framleiða þær
tegundir', sem hæfði þörfum ís-
lands sjerstaklega, því að þar
er markaður, sem þeim e-r ant
um, þó liann sje ekki stór. And-
virði pappírs, pappa, kartons og
pappirsvara ýmiskonar, sem
Norðmenn selja til Islands nem-
ur um fjórðuugi miljónar kr.
A síðari árum hefir norskur
pappír til bygginga rutt sjer
mjög rúms á Islandi og er not-
tður þar æ meir með hverju
ári, vegna gæða sinna.
Þessi voldugi iðnaður krefst
vitanlega góðs skipulags. Hjer
um hil allar norskar pappírs-
verksmiðjur eru sameinaðar í
itl fjelag undir nafninu „De
Norske Papirfabrikanters For-
ening“ í Osló. Var fjelagið stofn-
að 10. febrúar 1893 og licfir
þannig nýlega lialdið 40 ára af-
mæli sitt. Lætur fjelagið til sín
talra öll sameiginleg hagsmuna-
málefni meðlimanna og pappírs-
iðnaðarins og gefur allar upp-
lýsingar, sem menn kynnu að
óslca, þessu viðvíkjandi.
Stór, nýtisku pappírsgerðarvjel.
Peippírsi5naöiar Norðmaeo