Fálkinn - 07.06.1933, Síða 29
F Á L K I N N
27
C. GEIJER & CO, Oslo.
GIKIINIABNET,
sem við erum að senda
TIL ÍSLANDS,
ca. 300.000 metrar eða álíka
vegalengd og frá Oslo lil Bergen.
Umboðsmenn:
NORSK ISLANDSK
HANDELSCOMPAGNI A|s
A.s. VOSS SKIFERBRUD, A.s. STEN & SKIFER,
BERGEN
BERGEN
Þetta firma er hið stærsta í sinni grein í Noregi og hefir stórar stein-
fliigunámur á Voss, skamt frá Bergen og í Finnmörku og framleiðir margar
mismunandi þakhellutegundir á allskonar hús. Eru stærðir og lögun hell-
anna mjög mismunandi og ennfremur mun því gaumur gefinn, að þær fást af
mismunandi litum, svo sem svartar .ljósgráar, dökkgrænar o. s. frv.
Fjelagið var stofnað 1895 og hefir selt þakhellu í alla norska bæi og
bygðir. Jafnframt hefir það rekið mikla útflutningsverslun. Mes( munar
þar um hina miklu sölu til Iíretlandseyja, þarnæst til Svíþjóðar, Danmerk-
ur, Hollands, Sviss, Þýskalands og annara landa. Á fslandi hefir líka verið
notað mikið af Voss þakhellum og eru þær tvímælalaust besta og til lang-
frama ódýrasta þakefnið sem til er. Hellan fýkur ekki af og endist i hundrað
ár, svo framarlega sem naglarnir sem hún er fest með, endast svo lengi.
Mynd'in sem hjer sjest er af kirkju í Hollandi, sem er klædd með hellu
frá Voss.
Þetta fjelag er systurfjelag Voss Skiferbrud, og hefir að sjergrein fram--
leiðslu á fínunninni hellu.
Hellusteinninn er harður og þolir mikið slit og er þessvegna sjerstaklega
hentugur í gólf og stigaþrep. Vegna þess hve hann er fallegur í gerðinni
þykir hann sjerlega hentugur á veggi, í gluggakistur, borðplötur, arinhellur
og eldstór, annaðhvort með eðlilegum fleti og slípuðum brúnum eða með
slípuðum og póleruðum fleti og brúnum. Þetta byggingarefni hefir verið
afar mikið notað í ýmsum löndum. I Noregi hefir hellan fengið vissan
markað og álit, og einnig á Islandi hafa menn kunnað að meta hina mörgu
góðu eiginleika þessa hellusteins.
Á myndinni sjest dæini um, hvernig steinninn lítur út á gólfi, í stiguin,
á veggina og í stað gólflista.
Umboðsmaður beggja firmanna er
Hr. NIKULÁS FRIÐRIKSSON - Pósthólf 736, Reykjavik