Fálkinn - 20.12.1940, Blaðsíða 31
F Á L K I N N
25
Hirðarnir við jötu barnsins Jesú í Betlehem.
Fríðiir á jiöröo
RIÐARINS guð, in hæsta hugsjón min,
höndunum lyfti eg í bæn til þín!
Kraftarins faðir, kraftaverkið gjörðu:
Gefðu mjer dýrðar þinnar sólarsýn,
sigrandi mætti gæddu Ijóðin mín, —-
sendu mjer kraft að syngja frið á jörðu!
Kærleikans guð, af sál mjer sviftu hjúp,
sjón minni birtu lífsins eymda-djúp,
þaðan, sem andvörp þúsundanna stíga!
Sjá, fætur þína tárin titra við,
tindrandi augun mæna’ og biðja’ um frið, —-
friðarins dögg á hrjóstrin láttu hníga!
Spekinnar guð, lát spádómskraftinn þinn
spakmálum þínum göfga anda minn.
birtu mjer lágum það sem hylst þeim háu:
kærleikans undra-mátt, — við hljóm og hreim
hörpunnar minnar, láttu af krafti þeim
huggast og gleðjast hina smáðu’ og smáu!
Friðarins guð, eg finn þitt hjarta slá
föðurmilt, blítt og sterkt í minni þrá,
Brennandi þrá að mýkja meinin hörðu.
Því finn eg minum vængjum vaxa flug,
viljanum traust og strengjum mtnum dug
til þess að syngja, — syngja frið á jörðu!
(Formáli fijrir Ijóöasafninu
>>
Friður á jörðu“).
Guðm. Guðmundsson.