Fálkinn - 06.12.1961, Qupperneq 4
Þessa óvenjulegu mynd tók Ölafur K. Magnússon fyrir nokkru. Hún er
af e i n n i f jölskyldu, foreldrum ásamt ellefu börnum. Fjölskyldan er
hollenzk og var aö flj4jast búferlum frá heimalandi sínu.
Undarlegur atburður
hefur átt sér stað í Auek-
land á Nýja Sjálandi.
John Edwin Chapple
heitir maður nokkur
kvæntur og hefur til
skamms tíma búið þar í
kyrrð og ró. Nýlega las
hann sína eigin graf-
skrift. En þetta á þó allt
sína útskýringu. Svo bar
við, að John þessi, sem er
málari að atvinnu, hvarf
að heiman fyrir tveimur
árum. Nokkrum mánuð-
um seinna fannst svo illa
meðfarið lík, sem kona
hins látna lýsti yfir, að
væri af John eiginmanni
hennar.
Þegar John Chapple
heyrði fyrir átta mán-
uðum, að hann væri
látinn sneri hann sér til
lögreglunnar og skýrði
svo frá, að þetta hlyti að
vera einhver misskiln-
ingur. Þar með hélt
hann, að málið væri út-
kljáð. Chapple sagðist
svo frá, að hann hefði
farið að heiman sakir
þess að hann væri þreytt-
ur á konu sinni og hann
hefði ekki hugmynd um
hver hefði farið í gröf-
ina fyrir sig. En í konu
hans var annað hljóð,
hún sagði meðal annars:
— Ekki get ég sagt, að ég
sé sérstaklega glöð yfir
að sjá hann aftur. Er
hann hvarf fyrir tveim-
ur árum var ég viss um,
að hann kæmi aldrei aft-
ur og ég var eins viss um,
að það hefði verið lík
hans, sem menn fundu
hérna um daginn. Hvað
lögregluna snertir er
hún mjög áfjáð í að vita,
hver það hefur verið,
sem jarðaður var í stað
John Edwin Chapple
Ekki er unnt að segja, að
hinir nýju afríkönsku valda-
menn séu seinir á sér til þess
að nota sér öll þau þægindi,
sem þeir geta notið í stöðu
sinni. Til dæmis má nefna
hinn 39 ára gamla forseta
Guineu, Sekou Touré. Nýlega
fékk hann afhendan risastór-
an bíl frá Wegman verksmiðjunum í Kasel.
Bíll þessi er ákaflega íburðarmikill og er m.a.
komið fyrir inn í honum tveggja manna sófa.
Bifreiðin er máluð í grænum og gulum og
silfurlit. Það tók verksmiðjuna 8 mánuði að
fullgera þessa bifreið, en um kostnaðinn
spinnast engar sögur. Aftur á móti er allt á
huldu um, hvernig forsetinn ætlar að nota
bifreiðina, því vegir eru ekki miklir í ríki
hans, alls munu þeir vera um 662 km á
lengd og varla fyrir hestvagna. Hann hlýtur
því að vera mjúkur sófinn.
Ekkja Clarks Gable hefur
nýlega lokið við að rita ævi-
sögu hins látna eiginmanns
síns. Fullvíst er talið, að bók
þessi verði metsölubók, þegar
hún kemur á markaðinn, en
vinir frúarinnar telja að svo
verði án þess að til nokkurra
auglýsinga komi. Það er ekki
heldur neitt undarlegt, því að áður en hún
hóf verkið, höfðu henni borizt 230,000 bréf
frá hinu og þessu fólki, sem hvatti frúna til
þess að rita hana.
Hinn ungi og hugaði lög-
regluþjónn Bardot í franska
þorpinu Pont-sur-Sambre og
kona hans voru alveg í sjö-
unda himni yfir tilkomu nýs
meðlims í fjölskylduna. Þetta
var lítil og snotur stúika.
— Hvað eigum við að láta
hana heita? spurði faðirinn.
— Auðvitað Brigitte, svaraði móðirinn.
Og faðirinn féllst líka á þetta nafn, en
þegar þau sneru sér til sóknarprestsins, sagði
hann alvöruþrunginn:
— Brigitte Bardot? Kæru börn, hafið þið
hugsað um þau örlög, sem bíða barns með
slíku nafni?
Og svo var barnið skírt Marianne.
Copyrighf P. I. B. Boa 6 Copenhogen