Fálkinn


Fálkinn - 06.12.1961, Side 12

Fálkinn - 06.12.1961, Side 12
 . ■■■ ■ ■ . m . i ■ '■ ■- ■■ Xv ■’”'; iss ISfe f J . ;;■■■;■■■■ . 'x ■ ■; . • ;■.•■'. '■■ ■ ■'w-"-'. V ■ : % I . ' mmmm Klukkan hálf tólf var barið að dyr- um hjá mér. Ég dýfði andlitinu ofan í fat með köldu vatni og lokaði gluggan- um, sem sneri út að garðinum. Ég fór í hvíta blússu, ósköp einfalda blússu frá París og við hana slétt blátt pils. Ég velti því fyrir mér, hvort ég ætti að mála á mér varirnar, en þá var aftur barið að dyrum. Klukkan sló tólf. Hér i húsinu var ekki opinberlega spaugað með hugtakið stundvísi. Maður bað mig um aö fylgja sér. Það var jafn kyrrt í húsinu, eins og klukkan væri níu. Ég sá mjög fá húsgögn. í lítilli dagstofu niðri á stofuhæðinni tók á móti mér dökkhærð og falleg kona. Sérstaklega voru það augu hennar, sem maður veitti eftirtekt. Þau voru svört og með óvenju löngum augnahárum. Sítt hár hennar var bundið saman í hnakkann. Ég gizkaði á, að hún væri um það bil þrjátíu og fimm ára, en hún var í raun- inni fjörutíu og fimm. Hún brosti til mín og sagði á frönsku: — Gjörið þér svo vel og fáið yður sæti, madame. Það gleður mig að kynn- ast yður. Ég vona, að Svetlana og Vass- ili muni geðjast vel að yður. Þau eru ekki mín börn, bætti hún við og brosti afsakandi, — en mér þykir jafn vænt um þau eins og þau væru mín eigin börn. Hún bauð mér sigarettu. — Börnin eru sem stendur á Verchi. Það er fyrirmyndarbúgarður, sem er um 120 kílómetra frá Moskvu. Þau koma heim ekki á morgun heldur hinn. Á meðan getið þér svipast um og vanizt umhverfinu. Sama kvöldið sendi hún stóran rósa- vönd upp á herbergið til mín. Þetta voru fyrstu kynni mín af Rósu Kaganovich. Hún hafði ekki minnzt einu orði á mann sinn, Stalin, né heldur Lazare Kaganovich, sem var bróðir hennar. Þegar árið 1931, meðan Stalin var enn kvæntur Nadia Allelievna, veitti hann Rósu Kaganovich eftirtekt. Árið *ftir lézt Nadia. í hinni opinberu tilkynningu um andlát hennar stóð, að hún hefði lát- Stalin var talinn barngóður og lét oft mynda sig með börnr um (að ofan). Vassili var sonur Stalins og annarar eiginkonu hans Na- diu. Hann var flug- liðsforingi (t. v.). Elzti sonur Stalins, Yasha, sem Stalin sagði sjálfur, að væri ónytjungur (ímiðju). Stalin með eftirlæt- isbarn sitt, Svetlönu (yzt til hægri). EINKALÍF Uni fáa menn hefur verið meira rætt að undanförnu í heimsbíöð- unum en Josef Stalin. FÁLKINN * birtir hér algeriega hlutlausa grein um einkalíf Stalins. Grein- in er rituð af franskri kennslu- konu, Catherine Lehmann, sem kenndi börnum hans um skeið. 12 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.