Fálkinn


Fálkinn - 06.12.1961, Blaðsíða 23

Fálkinn - 06.12.1961, Blaðsíða 23
» Hann var farinn að finna vel á sér og var í sjöunda himni af ánægju. Hann hafði þegar gleymt skammarlegri hegðun föður síns nokkrum klukkustundum áður. Hann gleymdi öllum heimilisáhyggjunum og hló og skemmti sér með hin- um. Lífið var skyndilega orðið svo bráðskemmtilegt og spenn- andi. Hann var orðinn svo kátur, að jafnvel Erik tók eftir því. Hann sagði brosandi: — Þú ert svei mér vel upplagður í kvöld. Ég hef sjaldan séð þig svona skemmtilegan. Það er varla að maður þekki þig fyrir sama mann. — Hver þekkir hvern? Þekkir þú sjálfan þig? Þekkir þú mig? Og enn á ný varð honum litið til ókunnu konunnar. Hann mætti augnaráði hennar. Þetta var undarlegt. Það var engu líkara en hún hefði horft á hann allan tímann. Hann roðn- aði aftur. Hann skyldi bölva sér upp á, að hún hefði fylgt hverri hreyfingu hans í langan tíma. Hvers vegna sat hún þarna? Um hvað var hún að hugsa? Ef til vill hló hún að honum með sjálfri sér. Erik hafði veitt þessum augnagotum þeirra eftirtekt. Hann gaf Albert olnbogaskot og sagði: — Þú ert heldur betur búinn að heilla- hana, þessa! En gættu þín, þetta er geysilega fín og virðuleg dama. — Já, það er hún svo sannarlega, sagði Albert. 1 — Ætlarðu að kynna þig fyrir henni? — Já, kannski. — Hvernig ætlarðu að fara að því, ef ég má spyrja? Eg skal veðja úrinu mínu upp á það, að þú verður þér til skamm- ar, ef þú reynir það. Albert hugsaði sig um andartak. — Allt í lagi, sagði hann svo. — Ég tek veðmálinu og veðja úrinu mínu á móti. Að svo mæltu stóð hann á fætur. Erik varð dálítið kvíða- fullur og bjóst auðsjáanlega ekki við þessu. — í guðanna bænum farðu nú ekki að stofna til hneykslis. En Albert var þegar kominn til ókunnu konunnar. Hann stóð við borðið 'hennar, hneigði sig og sagði: — Afsakið ónæðið. En mér finnst einhvern veginn eins og við höfum hitzt áður. Ókunna konan roðnaði og horfði vandræðalega niður á borðið. En um leið gerði hún bendingu með hendinni: — Fáið yður sæti, herra Brandt, sagði hún. Albert hlýddi. Þetta var eins og í draumi. Hvernig gat hún vitað að hann hét Brandt? Ef til vill hafði hún heyrt nafnið, þegar Erik var að kynna hann fyrir vinum sínum. — Þér verðið að afsaka þetta, sagði hann, — en þetta er veðmál. Einn af vinum mínum hélt, að ég þyrði ekki að ávarpa yður. Hún brosti til hans. — Eruð þér hughraustur eða ekki? sagði hún. — Þér hafið kannski líka verið hughraustur, þegar þér voruð barn? — Hvað eigið þér við? Hún hló innilega. I FALKINN 23

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.