Fálkinn - 28.03.1962, Page 6
séð & heyrt
Þegar tveir deila
Það var mjög rifizt um
ungfrú Þýzkaland, árið
1959, Carmelu Kúnzel.
Eru það aðallega tveir
menn, kvikmyndafram-
leiðandinn Kurt Ulrik
og tízkuteiknarinn Heinz
Oestergaard. Vill annar
fá Carmelu Kúnzel í kvik-
myndaverið en hinn í
tízkuhúsið. En ungfrúin
vill gera báðum til hæfis
og svarar: — Þeir geta
áreiðanlega skipzt á, því
að Heinz hefur gaman af
kvikmyndum, en Ulrik
hefur yndi af snotrum
klæðnaði.
Frétt úr ensku blaði
— Fyrst var fluttur
fyrirlestur um kaffiiðnað-
inn og síðan var sýnd
kvikmynd um þennan
sama iðnað, vöxt hans og
viðgang. Á eftir var
drukkið te. —
Tekjumikill kjallaravörður
Kjallaravörður er virðuleg staða innan þjónastéttarinnar í Eng-
landi en er nú óðum að leggjast niður. Einn hinna frægari kjallara-
varða er Tivendale nokkur. Hann hefur nefnilega fundið upp aðferð
til þess að auka tekjur sínar mjög. Hún er fólgin í því, að þegar
hann sækir um nýja stöðu, krefst hann þess, að fá mánaðarlaun
fyrir fram. Þegar hann ber svo fram matinn í fyrsta skipti, gætir
hann þess vandlega að hella niður, annaðhvort á borðdú'kinn eða
einhvern af gestunum. Venjulega er hann rekinn strax og auðvitað
hefur hann þá mánaðarlaunin með sér. Samkvæmt enskum blöðum
hefur hann á tveimur árum verið í 200 stöðum og alls staðar fengið
greitt fyrir fram. Nú hafa menn varað við honum, en fólk það, sem
hefur ráðið þennan mann, hefur ekki kært hann fyrir lögreglunni
af ótta við að, það væri gert gys að því fyrir bragðið.
List fyrir almenning
ísraelskur málari að nafni Michael Osterweil hefur fundið upp
ráð, sem hann heldur að stuðli að því að málverk hans seljist betur
og verði keypt af almenningi. Michael býr í London og hann fékk
leyfi til þess að hengja upp málverk sín á almenningsþvottahúsum.
Hann heldur því fram, að húsmæður hljóti að líta einhvern tíma
upp frá suðandi þvottavélunum eða upp úr mánaðaritunum og geti
þá dáðst að listinni. Og ef til vill munu Þær fá eiginmanninn með
sér þarna inn áður en lokað er til þess að kaupa málverk, auðvitað
með afborgunum.
Listamaðurinn hefur þegar selt nokkrar myndir á þennan hátt
og heldur, að þarna vinni listin hug alþýðunnar með tímanum.
í Bandaríkjunum
er forsetinn oft og
tíðum gagnrýndur
þannig, að hinir
óánægðu senda
honum skeyti, þar
sem þeir telja það
upp, sem þeim
finnst fara aflaga.
Nú hefur hið
mikla símskeyta-
félag, Western
Union, fengið þá hugmynd að lækka verðið
á gagnrýniskeytunum svo mikið. að sendandi
fær að segja meiningu sína í 15 orðum fyrir
aðeins 30 krónur. Þess má geta að yfirvöldin
í Hvíta húsinu eru síður en svo hrifin af þess-
ari hugmynd.
★
Samkvæmt áreið-
anlegum fréttum
Hollywood, er Mar-
lyn Monroe farin
að dansa á tánum.
Það þýðir ekki, að
við eigum eftir að
sjá hana í ballett-
mynd, en læknir
hennar hefur sagt
henni, að slíkur
dans sé hið bezta
megrunarmeðal, sem hún geti fundið.
Hún hefur lengi háð harða baráttu gegn
nokkrum auka kílóum. En menn geta jafn-
vel fengið of mikið af kroppi Marlyn Monroe.
Það veit hún ósköp vel — og sorgmædd hefur
hún horft upp á hvern ósigurinn á fætur öðr-
um í bardaganum við kílóin.
En nú vonar Marlyn, að tádansinn geri
kraftaverk.
★
Forsætisráðherra
Iraks, Abd el-Kar-
im Kassim leikur
við og við sama
leikinn og fyrirrenn-
ari hans fyrir þús-
und árum, Harun-
al- Raschid. Kassim
gengur um götur
Bagdad borgar dul-
búinn til þess að
vita, hvar vindur-
inn blæs.
Um daginn þegar hann fór í eina slíka ferð,
ók hann spölkorn í strætisvagni og fór að
tala við farþegana. Þeir höfðu allir hið sama
að ræða við hann: Hið óhemju háa fargjald
með almenningsvögnum.
Og nú geta borgarar glaðzt yfir för hans,
því að þegar hann kom aftur til stjórnar-
skrifstofanna, gaf hann út tilskipun um það,
að fargjöld með almenningsvögnum skyldu
lækka um 25%.
6 FÁLKINN