Fálkinn - 28.03.1962, Blaðsíða 13
DSKREYTTA VSKUBLAÐIÐ
Þannig heilsaði Fálkinn lesendum sínum í fyrsta tölublaði
fyrsta árgangs, 31. marz 1928. Með útkomu Fálkans var brotið
blað í sögu blaðamennskunnar hér á landi: Hafin var útgáfa
fyrsta myndskreytta vikublaðsins og jafnframt blaðs, sem
ekki var háð neinni stjórnmálastefnu.
Tildrögin að stofnun Fálkans voru þau, að Vilhjálmur
Finsen hafði lengi velt fyrir sér, hvort tök væru á að gefa
út myndskreytt vikublað hér á landi. Þegar hann hafði selt
Morgunblaðið og starfaði sem blaðamaður hjá Dagens Ny-
heter, ákvað hann að gera þessa hugmynd sína að veruleika.
Hann fór þess á leit við Svavar Hjaltested, að hann gerðist
meðeigandi og stofnandi að blaðinu ásamt þriðja manni. Þeir
voru heilt ár að undirbúa blaðið, útvega sambönd í mynda-
mótum og efni og fleira. 1928 kom Skúli Skúlason til lands-
ins frá Kaupmannahöfn, en hann hafði verið samstarfsmaður
Vilhjálms í fjöldamörg ár hjá Morgunblaðinu og getið sé:
gott orð sem dugmikill og fjölhæfur blaðamaður. Hann gerðist
þriðji stofnandinn og aðalritstjóri.
Útkoma Fálkans vakti mikla athygli, enda var blaðið algjör
nýlunda hér á landi. Auk smásagna og greina bæði inniendra
og erlendra, kom Fálkinn með ýmsar nýjungar: Hann birti
fyrstur blaða afmælismyndir af þekktum borgurum, hann
birti fyrstu krossgátuna, sem kom í íslenzku blaði, hann flutti
fyrstu myndasögupersónuna hér á landi, Adamson, sem enn
skemmtir lesendum, — og þannig mætti lengi telja.
Viðtökurnar urðu strax miklu betri en útgefendur höfðu
þorað að vona. Fyrstu tölublöðin eru gjörsamlega ófáanleg,
enda þótt upplagið hafi verið geysihátt með tilliti til annarra
blaða á þeim tíma. Upplagið óx síðan ár frá ári og vinsældir
og áhrif blaðsins jukust jöfnum höndum.
1942 var Vilhjálmur Finsen orðinn sendiherra í Stokkhólmi
og seldi þá þeim Skúla og Svavari sinn hlut í blaðinu. Síðan
voru þeir tveir eigendur Fálkans, allt þar til núverandi eig-
endur keyptu það.
Þeir Skúli og Svavar unnu báðir stöðugt við blaðið í 34 ár
og inntu af hendi mikið og óeigingjarnt starf. Skúli var rit-
stjóri öll þessi ár, og enda þótt hann dveldist langdvölum í
Noregi, sendi hann þaðan allt efni blaðsins nema hið innlenda,
sem var unnið hér heima. Svavar sá um alla framkvæmda-
stjórn blaðsins og var jafnframt auglýsingastjóri og af-
greiðslustjóri.
Starf þessara tveggja manna í þágu blaðsins er ómetanlegt
og á þessum tímamótum í sögu blaðsins vilja þeir, sem nú
standa að útgáfu þess, færa þessum tveim stofnendum og
brautryðjendum sínar beztu þakkir og kveðjur.
Fyrstu tvö árin var Fálkinn prentaður í Gutenberg. 1929
var Gutenberg seld ríkinu, og fluttist þá Fálkinn í spánýja
prentsmiðju, Herbertsprent, sem hafði keypt prentvél sérstak-
lega fyrir blaðið.
Fálkinn var fyrst til húsa uppi á lofti í Austurstræti, þar
sem Síld og Fiskur er nú, en þegar blaðið skipti um prent-
smiðju, var byggð afgreiðsla að Bankastræti 3. Þar var Fálk-
inn til húsa, þar til Herbertsprent var selt. Stuttan tíma var
blaðið til húsa í Ingólfsstræti og Vesturgötu 3 unz það flutt-
Framhald á bls. 50.
Myndirnar þrjár hér að ofan eru af stofnendum FÁLK-
ANS. Talið frá vinstri: Vilhjálmur Finsen, Svavar
Hjaltested og Skúli Skúlason.
FALKINN
13