Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1962, Side 4

Fálkinn - 06.06.1962, Side 4
séð & heyrt Dóttir Franks Á myndinni hér að ofan sézt Nancy, hin laglega dóttir Franks Sinatra. Hún er nú gift Tommy Sands. En hingað til hefur blaða- ljósmyndurum ekki tekizt að taka mynd af þeim feðginum, enda þótt þeir séu alltaf á verði og reyni að nota tækifaerin til hins ýtrasta. 500 sinnum tekinn af lífi Fyrir nokkrum árum hélt Jimmy nokkur Casino hátíðlegt dálítið sérstakt starfsafmæli. Hann hafði þá verið tekinn 500 sinnum af lífi. Jimmy Casino býr í Hollywood og starfar þar sem statisti. Hann hefur oftast verið valinn til þess að koma í stað leikarans, sem taka á af lífi. Sjálfur hefur hann komizt svo að orði: — Brátt hef ég reynt allar aftökur, sem þekkjast í kvikmyndum, ég hef verið hengdur, skotinn, lagður í gegn með rýtingi, settur undir fallöxi, mér hefur verið drekkt, ekið hefur verið yfir mig með hestvagni, olíubíll hefur farið yfir mig, strætisvagnar og alls konar vöru- bílar hafa einnig gert það, setið hef ég í rafmagnsstólnum og margt fleira hefur verið notað til aftökunnar, sem ekki tekur að nefna. — En mér þykir verst, að á öllum mínum ferli í kvikmyndunum hef ég aldrei fengið lengra hlutverk en 10 mínútur. Fætur manna Aðeins annar hver maður hefur báða fætur jafnlanga. Á hinum er annar fóturinn um cm. eða meira styttri en hinn. Augnayndi og sjónskekkja Geturðu séð, hvað er hér á myndinni? spurði þekktur ljósmynd- ari vin sinn, er var svolitið nærsýnn. Hann hélt myndinni fyrir framan hann. — Ég get ekki betur séð, en þetta sé talan 18, sagði sá nærsýni. — Guð hjálpi þér maður, þá þarftu nauðsynlega að fá þér gler- augu, sagði ljósmyndarinn, því að þetta er mynd af Marlyn Monroe og Audrei Hepburn í hrókasamræðum. Hér er ein glæný saga af gamla mann- inum í Bonn. Fyrir skömmu, þegar Jó- hannes XXIII. átti áttræðisafmæli, sendi guðhræddur borgarbúi í Bonn honum heillaóska skeyti. Skeytið var stílað til Hins heilaga föður. Stuttu seinna er hann hringdur upp af ritsímanum og spurður: — Við vildum bara fá að vita, hvort afhenda á skeytið í kanslarahöllinni eða á einkavillu Adenavers. ★ Alsírmálaráðherra de Gaulle, M. Joxe, er oft spurður af fólki, hvernig ástandið í Alsír sé í raun og veru. Hefur þetta fólk oft valdið honum tölu- verðum óþægindum, en hann leysir úr spurningum þeirra á dálítið sérstæðan og skemmtilegan hátt. Hann ber fingur að vör- um sér og segir: — Þér verðið að skilja, að þetta mál verður að vera í svo mikilli leynd, að það er ekki einu sinni nóg að þegja um það. ★ Meðal þeirra, sem fengu leyfi til þess að heimsækja Picasso á 80 ára afmælinu, var ofsahrifin Parísar- stúlka. — Meistari, sagði hún, ég vildi óska þess, að ég gæti tekið eitt- hvað af þessum dásam- legu litum með mér heim. — Það er ekki svo erfitt, svaraði Picasso og brosti í kampinn. Þér megið gjarna setjast á litaspjaldið mitt. ★ Hinn kunni leik- stjóri og leikari, Vittorio de Sica, fyllir flokk tví- kvænismanna. Fyrir nokkrum árum skildi hann við konu sína í Mexico og kvæntist annarri. Samkvæmt ítölskum lögum er þetta ekki löglegur skiln- aður og er hann talinn vera kvæntur fyrri konu sinni á Ítalíu. Nú eru tveir synir hans að verða sjálfráða og Vittorio sér fram á það, að þeir komist í mjög erfiða borgaralega aðstöðu á Ítalíu vegna síðara hjónabands hans. Þess vegna hefur hann nú ákveðið að sækja um ríkisborgararétt í Liechtenstein fursta- dæminu. 4 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.