Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 34

Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 34
Bróðan Frh. af bls. 11 og sneri aftur upp stigann til sauma- stofunnar. — Kannizt þið við flauelsbrúðuna, sem situr á mátunarstofu ungfrú Com- be? spurði hún stúlkurnar. Forstöðukonan og saumastúlkurnar þrjár litu allar á hana. — Já, hana könnumst við við, svaraði Elísabet. — Hefur nokkur hérna uppi gert það af glettni, að láta hana á stól fyrir framan skrifborðið litla í mátunarstof- unni? spurði hún. Ungu stúlkurnar þrjár litu fyrst til hennar og síðan á Elísabetu. — Látið hana við skrifborðið? Að minnsta kosti ekki ég. — Og ekki ég heldur, svaraði önnur. Hefur þú gert það, Marlena? Marlena hristi bara höfuðið. — Kannski yður sjálfri hafi þá dott- ið í hug að gera þetta í gamni, Elísabet? spurði Silja. — Má ég frábiðja mér annað eins! sagði forstöðukonan. Hún hafði fram- stæðar tennur og leit alltaf út fyrir að vera með muninn fullan af títuprjón- um. — Ég hef annað að gera en leika mér að brúðum!! — Heyrið nú til, hélt Silja áfram, og sér til undrunar tók hún eftir því, að rödd hennar skalf. — Þetta var bara voða sniðugt grín, sem engum gerði neitt. En mér þætti vænt um að fá að vita, hver fann það upp. Saumastúlkurnar litu hana óhýru auga.— Við erum búnar að svara yður, frú Fox. Það hefur engin okkar gert það. — Kannski brúðan hafi risið á fætur sjálf, og setzt fyrir framan skrifborðið, sagði Marlena og flissaði óhæversklega. Undarlegt var það, að tilhugsunin kom illa við Silju. — Þetta er allt sam- an mesta bölvuð vitleysa, mælti hún reiðulega og gekk niður aftur. ELÍSA COMBE gekk um og sönglaði glaðlega. — Nú er ég búin að týna gleraugunum mínum einu sinni enn, sagði hún, þegar Silja kom inn. Það er óþægilegt fyrir þá, sem eru nærsýnir, — því þá getur maður ekki fundið gler- augun, nema með því móti að fá önnur lánuð, til að finna hin með. — O, þau hljóta að vera hér einhvers staðar, anzaði Silja og tók til að leita. Loks ýtti hún við brúðunni á bekkn- um. — Hérna eru þau, kallaði hún. — Undir þessari óviðjafnanlegu brúðu þér hljótið að hafa verið búin að leggja þau þarna, þegar þér fleygðuð henni á bekkinn. — Nei, það gerði ég áreiðanlega ekki! — Jæja, anzaði Silja óþolinmóð. Þá hefur hún líklega tekið þau sjálf, og falið þau fyrir yður. — Á ég að segja yður nokkuð, Silja, mælti Elísa og horfði hugsandi á brúð- una. — Ég gæti svo vel trúað henni til 34 FÁLKINN þess .... En nú skulum við halda á- fram við verkið! Þegar Silja fór um kvöldið, aflæsti hún dyrunum að mátunarstofunni. — Nú læsi ég hurðinni, sagði hún, og tek lykilinn með mér! — Það er nú svo, sagði Elísa Combe, sem horfði á með hæðningsglotti. — Ég fer að halda að þér grunið mig, eða hvað? Haldið þér kannski, að ég sé svo annars hugar, að ég fari hingað inn til að setjast við skrifborðið, en taki svo brúðuna í staðinn, og láti hana þar í minn stað? Og gleymi síðan undir eins því, sem ég var að gera? Teljið þér, að þannig liggi í því? — Það getur margt verið mögulegt, svaraði Silja. En að minnsta kosti ætla ég að tryggja það, að ekki sé hægt að brúka fleiri brellur til morguns. HIÐ fyrsta sem Silja gerði næsta morgun, var að opna dyrnar að mátun- arstofunni og ganga inn. Frú Groves beið fyrir utan með óánægjusvip á and- liti en klút og sóp í hönd. — Nú skulum við sjá til mælti Silja með eftirvæntingu. Svo hrökk hún við og greip andann á lofti. Brúðan sat við skrifborðið. — Úh, sagði frú Groves fyrir aftan hana. Ógeðslegt er þetta, það er einmitt það, sem það er. Þér eruð náföl, frú Fox. Þér eruð þó ekki að verða veik. Nú hefur einhver verið að gera yður grikk, einu sinni enn. —- Ég fæ ekki skilið, hver hefði átt að geta gert svona grikk að þessu sinni, mælti Silja með hægð. Þér sáuð sjálf, að þér komust ekki inn. — Kannski einhver hafi annan lykil, datt frú Groves í hug. — Það held ég ekki, sagði Silja. — Við höfum aldrei haft fyrir því, að loka dyrunum að þessu herbergi. Að því gengur gamaldags lykill, og aðeins þessi eini. — Verið getur, að hægt sé að opna með einhverjum lyklanna, hélt frú Groves. Þær báru nú alla lykla í hús- inu við skrána, hvern af öðrum, en eng- an þeirra var unnt að nota til að opna hurðina inn í mátunarstofuna. Þegar þær Silja og Elísa fóru um kvöld ið, aflæstu þær enn hurðinni að stof- unni. Haldið þér að hún sitji aftur við skrifborðið, þegar við komum í fyrra- málið? spurði Elísa. — Já, því býst ég við, anzaði Silja. En þar skjátlaði henni. Brúðan sat ekki fyrir framan skrifborðið, heldur lá hún úti í gluggakistu og gægðist nið- ur á götuna, gegnum rúðuna. Og eins og fyrr, sat hún í einkennilega lifandi og eðlilegum stellingum. — Ógn er þetta annars asnalegt, finnst yður ekki? varð Elísu að orði, þegar þær fengu sér tebolla um nónbil- ið. Það hafði orðið þegjandi samkomu- lag hjá þeim, að drekka ekki inni í mát- unarstofunni, heldur í einkaherbergi Elísu, hinum megin við ganginn. — Hvernig asnalegt? spurði Silja. — Ég á við, að hér er ekki um neitt áþreifanlegt að ræða. Aðeins brúðu, sem er alltaf að flytja sig úr stað. EITT varð föst venja, eftir því sem tímar liðu fram. Nú hætti brúðan að láta sér nægja flutninga á næturþeli. Hvenær sem þær komu inn í mátunar- stofuna, er þær höfðu gengið andartak frá, fundu þær hana sitjandi á öðrum stað en áður. Þótt þær skildu við hana á legubekknum, kemu þær að henni eft- ir örskamma stund, yfir á stóli. Stund- um sat hún úti í gluggakistu, eða þá við skrifborðið. — Hún færir sig alveg eftir eigin vild, sagði Elísa. — Og á ég að segja yð- ur, Silja, ég held henni þyki gaman að því. Það sést á henni. Konumar stóðu og horfðu á hreyf- ingarlausa brúðuna, í mjúkum flauels- kjól, með málað andlit. — Fáeinar pjötlur úr flaueli og silki og nokkrar málingarklessur, það er allt og sumt, sagði Elísa Combe þreytulega. — En okkur er vitanlega innan handar að losa okkur við hana. Brenna hana eins og galdranorn, eða gefa einhverj- um hana. Á hlutaveltu eða því um líkt. — Ég veit varla, svaraði Silja. — Ég held ég þyrði það ekki. Ég er sannfærð um, að hún kæmi hingað aftur. — Segðu mér, við erum þó ekki að verða bandvitlausar, báðar tvær? mælti Elísa. — Er það tilfellið? — Alls ekki, svaraði Silja. — En hitt er ég voðalega hrædd um, að hún sé að verða okkur ofviða. Því það er svo sem auðséð, að hún er fastákveðin í að hafa sitt fram. Það er hún, sem ræður yfir herberginu nú orðið. — Já, það er ekki um að villast, sagði Elísa. — En þannig hefur það víst ann- ars alltaf verið. Með liti og allt .... Ég ímyndaði mér, að hún ætti svo vel við herbergið — en í raun réttri er það herbergið, sem á vel við hana. Frú Groves hefur afsagt að ræsta framar hér inni. Hvernig eigum við að fara að þessu, Silja? Ég er að verða taugaveikl- uð, það eru margar vikur síðan ég hef getað gert ærlegt handarvik. — Svona er það með mig. Ég á bágt með að hafa hugann við að sníða. Ég er alltaf að gera vitleysur, sagði Silja. EN morgunin eftir bar svo til, að Silja kom að dyrum mátunarstofunnar læst- um. — Ungfrú Combe, eruð þér með lyk- ilinn? spurði hún. Voruð það þér, sem aflæstuð í gærkvöld? — Já, svaraði Elísa. — Ég læsti hurð- inni, og hún á að vera aflæst framvegis. — Við hvað eigið þér með því? — Ég á við, að ég læt brúðunni eftir stofuna. Hún hatar okkur, það hljótið þér að sjá. En nú skyldi maður þó halda að hún ætli að geta verið ánægð. EFTIR þetta urðu þær rólegri, og þannig liðu þrjár vikur. Þá mælti Silja eitt sinn við Elísu: — Við ættum nú sannarlega að líta þangað inn, einn góð- Framh. á bls. 36.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.