Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 16
FÁLKINN
bregður sér út á golfvöll
þar sem margír kuitnir borgarar
stunda þessa göfugu fþrótt ...
AÐ LÁTA KYLFU
RÁÐA KASTI...
Lesandi, sem ekki þekkir neitt til golf-
íþróttarinnar, hugsar eflaust sem svo,
að ekki sé mikill vandi að taka sér
kylfu í hönd og slá með henni litla
hvíta kúlu. En ef reyndur kylfingur
(en svo nefnist golfspilari á góðri ís-
lenzku) skyldi veðja við hann 500 krón-
um, að hann hitti ekki kúluna í fyrsta
höggi, skal honum ráðlagt að taka ekki
veðmálinu. Reyndin er sú, að golfið er
erfiðara en svo, að viðvaningur hitti
kúlu í fyrsta höggi.
FÁLKINN brá sér suður á golfvöll
fyrir nokkru, en þar var að hefjast hin
árlega firmakeppni Golfklúbbs Reykja-
víkur. Veður var heldur kaldranalegt,
en keppendur létu það ekki á sig fá.
Fjórir og fjórir saman í hóp „slógu þeir
sig inn á völlinn“ eins og kallað er, en
lögðu síðan af stað í halarófu út á völl-
inn með kerrur sínar í eftirdragi, og
hófu keppnina.
Golfið er ung íþrótt hér á landi, en
hefur átt stöðugt vaxandi vinsældum
að fagna, enda holl íþrótt og skemmti-
leg. Golfklúbbur Reykjavíkur var stofn-
aður 1934. Stofnendur hans unnu mikið
stórvirki, er þeir reistu í skjótri svipan
glæsilegt félagsheimili og komu sér upp
góðum golfvelli á landi, sem þá var
aðallega mýrarfen og móar. Nú er fyrir
nokkru hafin bygging nýs golfvallar,
sem er þriðjungi stærri en sá gamli. I
sumar verða framkvæmdir það langt
komnar, að sjá má í stórum dráttum
hvernig völlurinn verður.
Á myndinni hér til vinstri kennir Guð-
mundur Halldórsson, stjórnarmeðlimur
Golfklúbbs Reykjavíkur, syni sínum
undirstöðuatriðin í golfinu. Á mynd-
inni hér að neðan reiðir Hjálmar Vil-
hjálmsson ráðuneytisstjóri kylfu sína
til höggs.