Fálkinn - 06.06.1962, Síða 21
Á sólríkum sunnudegi í maímánuði
síðastliðnum, lögðum við leið okkar
um Hafnarfjörð. Er við ókum, fram
hjá skrúðgarði Hafnfirðinga, Hellis-
gerði, sem löngum hefur verið rómað-
ur fyrir fegurð, stóðumst við ekki freist-
inguna að huga að þessu stolti Hafn-
firðinga. Við urðum fyrir talsverðum
vonbrigðum. Garðurinn hafði enn ekki
klæðzt sumarskrúðanum, enda vart við
því að búast svona snemma sumars.
Þó mátti sjá nokkur merki vaxandi
gróðurs. Brum voru sprungin út hér
og hvar, þótt enn bæru trén hrollkald-
an svip vetrarins.
En forsjónin hefur sennilega iðrazt
þess, að við skyldum ekki fá að sjá
Hellisgerði í öllum sínum blóma og
ákveðið að gera bragarbót hið snar-
asta. Við hittum nefnilega á gangi í
garðinum unga og fallega blóm.arós úr
Hafnarfirði.
Hún heitir Líney Friðfinnsdóttir, og
lesendur kannast eflaust við nafnið,
Hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni
í ár og hreppti þriðja sætið og þar
með rétt til þátttöku í keppni um titil-
inn Miss Europe. Líney leyfði okkur
góðfúslega að taka af sér nokkrar
myndir, enda orðin vön Ijósmyndurum,
eftir fegurðarkeppnina. Hún sagði okk-
ur, að sér hefði komið mjög á óvart,
að hún skyldi verða númer þrjú.
— Það hafði ekki hvarflað að mér,
að ég kæmist svo hátt . . .
Við skildum við Líneyju og Hellis-
gerði og hétum því um leið að hverfa
þangað aftur í sumar, þegar garður-
inn stendur í fullum blóma og skartar
öllum regnbogans litum. Vonandi verð-
ur forsjónin okkur einnig hliðholl þá.
(Myndirnar tók ljósmyndari FÁLIv-
ANS, Jóhann Vilberg).