Fálkinn - 06.06.1962, Side 30
kvenþjóðin
rit«*. |óri
KRISTJAMA
STEIIMGRÍMSDÓTTIR
HVERNIC
r
A
TANNBURSTINN
AÐ
VERA
.
:
■■;■■.■.';.■
' '
Tannburstar með svínshárum verða
fljótt of mjúkir og þeir eru lengi að
þorna. Slíkur bursti er þess vegna ekki
nógu hreinlegur, aftur á móti þornar
nælonbursti fljótt og er auðvelt að halda
honum hreinum.
Varist að hafa tannburstann of harð-
an, það hefur í för með sér að tannhold-
ið er ekki burstað sem skyldi, því að
flestir hlífa sér ósjálfráft við sársauka.
Þeir burstar sem merktir eru medium
(mið) eru hæfilega mjúkir eða harðir.
Tannburstinn á að vera frekar lítill,
svo að auðvelt sé að beita honum út í
hina yztu afkima.
Skipta á um tannbursta á 1—3 mán-
aða fresti, ef notkun hans er sem
skyldi, þ. e. a. s. helzt eftir hverja mál-
tjð og að minnsta kosti kvölds og
morgna.
Notið ekki tannkrem í óhófi, þá sezt
það milli háranna og erfitt er að hreinsa
burstann. Hreinskolið burstann eftir
hverja notkun, þó ekki í heitu vatni.
Látið burstahárin snúa upp í tannglas-
inu eða þar til gerðri grind, svo loftið
geti leikið um hann og þurrkað burstann.
En hvað er tannkrem? Það inniheld-
ur venjulega krít allt að 45%, vatn og
oftast glycerin, sem á að halda krítinni
í smyrslformi og hindra að það þorni.
Því næst er í því dálítil sápa, eða skylt
hreinsiefni, bragðefni og stundum litar-
efni.
f kremið er svo oft bætt efnum eins
og klorofyl, garol, fluor, efni, sem eru
30 FÁLKINN
dyggilega auglýst á umbúðunum, en
annars efnisinnihalds lítið getið.
Nokkuð svo vafasamar eru fullyrð-
ingar um tannskemmdaverjandi áhrif
þessara síðasttöldu efna. Einnig er talað
um bakteríudrepandi áhrif, en þau end-
ast álíka lengi sem það tekur bakterí-
una úr loftinu og matnum að komast
inn í munninn. Annars geta þessi áhrif
verið dálítið vafasöm því ekki væri það
gott ef öllum bakteríum í matvælum
væri útrýmt, þær eiga helzt að hafa
hemil hver á annarri, svo engin þeirra
geti valdið nokkru tjóni.
FYLLTAR KJÖTDEIGSRIJLLUR
400 g saxað nautakjöt. 1 egg. 2 msk.
brauðmylsna. 1 rifinn laukur. 1 dl.
mjólk. Sýrðar asíur. Feiti að steikja úr.
Kjötið saxað tvisvar kjötdeigið hrært,
smurt á hveitistráðan pappír, skorið í
ferhyrninga. Á hvern ferhyrning er lát-
inn biti af sýrðum asíum, og kjötdeigið
síðan vafið um það. Rúllurnar steiktar
í smjöri á pönnu, hristið pönnuna, svo
rúlluurnar brenni ekki. Borið fram
með hráu salati.
FYLLT FORMBRAUÐ
Skerið lokið af formbrauði og takið
innan úr því. Smyrjið það innan með
hvítlaukssmjöri: smjör sem í hefur ver-
ið hrært örlitlu af söxuðum hvítlauk.
Brauðið er sett á málmpappír á smurða
plötu, látið vera 5—10 mínútur í heit-
um ofni 250°, eða þar til það er stökkt.
Fyllt strax með heitum góðum jafningi
t. d. rækju, sveppa, skinkujafningi.
Skreytt með steinselju og tómatabátum.