Fálkinn - 16.01.1963, Síða 9
Mikið hefur verið ræít og rit-
að um æskuna ogspillingu henn-
ar, og verður engu bætt við þær
umræður hér. Hins vegar hef-
ur FÁLKINN brugðið sér á
unglingaskemmíistað hæjarins,
Lidó, og spjallað við unga fólk
ið og nokkra starfsmenn húss-
ins. Það kom í ljós, að enn er
aðsóknin að þessum stað ekki
eins góð og búizt var við. Þá
vaknar spurningin: Kann unga
fólkið eð skemmta sér á heil-
brigðan hátt — án áfengis?
dyru-m stæðu breytingar á einu stærsta
veitingahúsi borgarinnar, Lídó, og þar
ætti að verða samkomustaður æskunn-
ar. Og breytingarnar fóru fram og ekk-
ert var til ,sparað, að þetta húsnæði
mætti vera sem vistlegast og skemmti-
legast úr garði gert fyrir hina væntan-
legu gesti. Áfengisbörum var breytt í
ísbari, þar sem menn gátu fengið sér
ýmsar veitingar. Staðurinn var búinn
skemmtilegum og þægilegum húsgögn-
um og auk þess sett upp keiluspil. Og
.svo var staðurinn opnaður og það var
að sjá sem æskan kynni að meta þetta,
því hún ’hópaðist þangað hvert kvöld,
sem opið var, og fyllti húsið.
En svo var eins og bakvindi slægi í
seglin og aðsóknin fór að minnka. Á
einu aðalkvöldi ársins, gamlárskvöldi,
voru þarna saman komin, að sögn eig-
andans, 224 ungmenni, en .staðurinn tek-
ur 500. Þetta sama kvöld var talsvert
um óspektir ölvaðra unglinga í -miðbæn-
um. Þá segir yfirlögregluþjónninn í við--
tali í einu dagblaðanna, að unglingar
allt niður í 13 ára hafi verið teknir
úr umferð fyrir ölvun. Þá hefur og
heyrzt, að lögreglan hafi verið kvödd
í tvö samkomuhús, sem sótt eru ein-
göngu af unglingum. Hafi ölvun í þess-
um húsum verið mjög mikil og öðru
þeirra hafi orðið að loka fyrr en til
var ætlazt. Og þetta á sér stað meðan
Lídó er hálftómt. Og spurningin vaknar:
Hvers vegna?
í blaðaviðtali hefur eigandi þes,sa húss
sagt að þessi rekstur væri erfiður vegna
þess að greiða þyrfti ríkinu skemmtana-
skatt og aukadyravörzlu, sem væri ó-
þörf. Það er ákaflega leitt til þess að
vita, að tilraun sem þessi þurfi að mis-
takast vegna þröngsýni hins opinbera.
Vera má, að unglingar kunni ekki að
skemmta sér, flestir hverjir, án áfengis.
En það er ekki þar með sagt, að ekki
sé hægt að kenna þeim það. Og þetta
er tilraun í þá átt. Og það þarf -meira
til en eitt hús og keilubraut. Hér í bæn-
um eru starfandi milli tíu og tuttugu
íþróttafélög. Vafalítið gætu þau unnið
vel að þessu máli.
Við lögðum leið okkar í Lídó eitt
laugardagskvöldið fyrir skömmu. Og við
urðum ekki fyrir vonbrigðum með hús-
ið. Staðurinn er mjög skemmtilega út-
búinn og vel til þess fallinn að unga
fólkið geti skemmt sér þar. Sérstaka
athygli vakti keiluspilið. Hitt var ann-
að, að okkur fannst að gestirnir hefðu
getað verið fleiri. Okkur var sagt, að
þeir væru nær þremur hundruðum. Við
dvöldum þarna í um tvo tíma og tók--
um nokkrar myndir og ræddum við
gesti.
Þegar við komum inn, var hljómsveit-
in í ,,pásu“ og aðeins tvö eða þrjú pör
FÁLKINN
9