Fálkinn - 16.01.1963, Blaðsíða 10
KANN
IINGA
FQLKIÐ
AO
SKEMMTA
SÉR
á gólfinu, sem dönsuðu eftir grammó-
fón eða segulbandsmúsik. Nokkrir voru
á börunum að fá sér einhverja hreasingu
eða sátu við borðin og spjölluðu saman.
Sumir reyktu. Við keiluspilið var mikill
hópur saman kominn, og menn renndu
kúlunni eftir brautunum og voru heppn-
ir eða óheppnir. Það var gaman að fylgj-
ast með þeim, því innbyrðis keppni var
mikil. Þetta voru allt strákar. Við tók-
um einn þeirra tali.
— Hvað ertu gamall?
— Átján ára.
— Ertu hér oft?
— Þetta er í annað skiptið, sem ég
kem hér.
— Og hvernig skemmtirðu þér?
— O, svona sæmilega. Annars er ég
nú lítið fyrir dansinn. Eg kem aðallega
í keiluspilið.
— Ert þú á þeim skemmtistöðum
unga fólksins þar sem vín er haft um
hönd?
— Já, það kemur fyrir.
— Smakkar þú vín sjálfur?
— Já, það kemur fyrir.
— Er mikill munur hér eða á hinum
stöðunum?
— Já, ég verð að segja það. Hér er
allt miklu rólegra.
— Heldurðu að þú munir koma hér
aftur?
— Ég geri fastlega ráð fyrir því.
Rétt í þann mund er við vorum að
Ijúka spjallinu við þennan unga mann,
kom hljómsveitin fram og hljómsveitar-
stjórinn, Svavar Gests, lækkaði hljóð-
nemann, sennilega af því að Ragnar
Bjarnason hefur sungið síðasta lag fyr-
ir hlé.
— Nú skulum við fá svolítið fjör í
þetta, sagði Svavar. — Við skulum fara
í Kóngamars og ég vil biðja hópinn úr
Hafnarfirði, sem var hér á gamlárskvöld
að taka að sér stjórnina.
Þegar hér var komið, gullu við mikil
köll og hróp og Svavar varð að stanza.
—■ Hvað er þetta? Hví þennan háv-
aða, eruð þið kannske úr Kópavogin-
um, eða hvað? Og svo skulum viðhlykkj-
ast um allt húsið í Kóngamars, en það
er bannað að fara upp á þak!
Hljómsveitin byrjaði að leika og hóp-
urinn flykktist út á gólfið undir stjórn
Hafnfirðinganna og hélt í einni röð fram
gólfið, og röðin lengdist og teygði úr
sér. Síðan var farinn hringur umhverfis
stigauppganginn og inn salinn aftur og
fram og niður, og þegar sá síðasti var
að hverfa niður stigagatið, kallaði Svav-
ar á eftir þeim:
— Þetta var síðasta lagið okkar í
kvöld. Takk fyrir komuna. Góða nótt.