Fálkinn - 16.01.1963, Síða 16
Eyþór Stefánsson tónskáld á Sauðárkróki er löngu þjóð-
kunnur maður. Lög hans mörg eins og Lindin við texta
Huldu og Bikarinn við texta Jóhanns Sigurjónssonar njóta
mikilla vinsælda. Ég hitti Eyþór að máli fyrir stuttu norður
á Sauðárkróki. Þetta var í rökkurbyrjun í þann mund þegar
Tindastóll var að verða dökkur og kaldur í húminu. Eyþór
kom sjálfur til dyra og ég hafði orð á því að það væri kalt úti.
— Já, hann er kaldur núna, sagði Eyþór og vísaði mér í
skrifstofu sína. Hann var dálítið erfiður í tíðinni fyrir jólin
en það hefur viðrað vel nú yfir hátíðarnar. Héraðsvötnin
eru á ísi, það fraus í flóðin. Þetta er eins og í gamla daga
þegar ég var hér drengur. Þá fórum við á skautum hér inn
eftir öllu. En nú er þetta breytt eins og annað því það koma
ekki eins mikil frost og fyrrum. Þá féll Sauðáin hér í gegn
um kaupstaðinn en nú er henni veitt annars staðar til sjávar.
Já, þá var maður mikið á skautum. Sumir áttu sleða sem
þeir beittu hestum fyrir og maður fékk oft að fljóta með
hér eitthvað fram á Eylandið og skautaði svo til baka. Þetta
var ákaflega skemmtilegt. Sumir létu líka hesta draga sig
á skautum og stundum skautaði allt fólkið fram að Varma-
hlíð. En nú er þetta breytt og sjaldan skautasvell á Vötnun-
um, en í þess stað veita þeir vatni á svæðið í kringum sund-
laugina.
— Eyþór, ert þú ekki fæddur hér?
— Jú, ég er fæddur hér á Sauðárkróki. Hér rétt neðar
í brekkunni. Ég hef fært mig aðeins ofar í brekkuna með
aldrinum. Hér er ákaflega kyrrlátt enda þótt þetta sé nærri
miðbænum. Hraðinn og hávaðinn er alltaf að aukast og
stundum finnst mér eins og menn gefi sér ekki tíma til að
staldra aðeins við og hugsa.
— Ert þú ekki orðinn með eldri innfæddum mönnum
hér í bæ?
— Við erum hér þrjú á svipuðu reki. Kona, sem er tveim
eða þremur árum eldri en ég og svo einn aðeins yngri. Við
erum víst elzt af hérfæddum mönnum. Sauðárkrókur er
frekar ungur bær.
— Mér er sagt, Eyþór, að þú sért búinn að starfa hér
í kirkjukór í fimmtíu ár?
Eyþór horfir aðeins í gaupnir sér og þegir svolitla stund
áður en hann svarar.
— Já, það eru víst fimmtíu ár síðan. Þetta var nú svo-
lítið öðruvísi því þá var kórinn ekki félag. Þegar söngmála-
stjórinn var skipaður var það eitt af hans fyrstu verkum
að sníða þessu starfi búning. Hann setti reglur um starf
kirkjukóra og gerði hvern einstakan kór að félagi og upp
úr því kom Kirkjukórasambandið. Ég var ellefu ára, þegar
ég byrjaði að starfa í kórnum.
— Sem söngvari?
•— Já, ég söng altrödd. Ég man alltaf eftir fyrstu æfing-
unni. Ég mætti hjá organistanum til að læra þessa rödd en
þegar til kom kunni ég hana. Ekki að ég hefði lært hana
af neinum sérstökum manni heldur svona eins og síast inn
í mig hér í kirkjunni við messur. Móðir mín var ákaflega
trúrækin kona og fór alltaf með mig í kirkju þegar
messað var.
Þetta eru mínar fýrstu endurminningar: Að fara í kirkju
t
1
Við fuglatekju í Drangey,