Fálkinn - 16.01.1963, Side 31
Ég leit á úrið mitt. Það var stundai'-
fjórðung yfir átta. — Eigum við vasa-
ljós í húsinu?
— Jú, það held ég, sagði móðir mín.
— Það ætti að vera í verkfæraskápnum.
Ég fann vasljósið, fjarlægði báðar
rafhlöðurnar og gekk niður í kjallar-
ann.
Sprengjan hafði verið stillt á að
springa klukkan hálf fimm daginn áður,
en það var hvorki minnzt á hana í
sjónvarpinu né útvarpinu, þannig að
loks var ég viss um, að það hefði ekkert
gerzt.
Ég hafði neyðzt til að fara aftur til
strætisvagnaendastöðvarinnar á Tólftu
götu og sækja hana aftur. Lögreglan
bjó yfir nokkrum þaulhugsuðum að-
ferðum, og ég hafði sannast sagna ekki
áhuga á, að þeir næðu í alla sprengjuna.
Maður vissi aldrei, hvað þeir gætu fund-
ið út úr því.
Nú skipti ég um báðar rafhlöðurnar
og reyndi gangverkið. Jú, í þetta skipti
reyndist það í fullkomnu lagi. Ég
þurrkaði af öllum hlutum með vasa-
klútnum mínum og setti síðan á mig
hanzka til að ganga frá þeim aftur. Ég
stillt úrverkið á klukkan hálf tvö sið-
degis og lagði sprengjuna í skókassa.
Ég reif dálítið af umbúðapappírsrúll-
unni, bjó vandlega um böggulinn og
batt utan um hann.
Ég neyddist víst til að gera hann
vatnsþéttan næsta dag.
Maður gat vel gengið að bögglinum
án þess að óttast, að nokkuð kæmi fyrir,
en samt bar ég hann mjög varlega upp
og lagði hann á matborðið. — Farðu
með hann á strætisvagnaendastöðina á
Sextugustu og áttundu götu. Hún er
stillt á_ klukkan hálf tvö.
Paula gretti sig. — Hefurðu ekki
getað fundið heppilegri stað? Þetta er
algert fátækrahverfi. Kvenmaður getur
ekki gengið óhult á götu þar.
— Þú hefur áreiðanlega ekkert að
óttast, sagði ég súrt.
Móðir mín andvarpaði. •—• Hvað verð-
ur þess langt að bíða, að við sprengjum
Martin frænda í loft upp?
— Það geri ég í næstu viku, sagði ég.
— En jafnvel þegar því er lokið, neyð-
ist ég til að koma fyrir fleiri sprengj-
um. Það gagnar ekki neitt að lögreglan
fái grun um, að það liggi rökrétt tilefni
á bak við þetta allt saman. Það eru
þrátt fyrir allt milljón dollarar, sem
um er að tefla.
—- Ég vildi að þú myndir ieyfa mér
að sprengja Martin frænda í loft upp,
sagði Paula eftirvæntingarfull.
Ekki einu sinni Freud hefði tékizt að
finna neitt út úr því.
— Nei, sagði ég ákveðið. — Við vit-
um öll, að Martin frændi fer aldrei ann-
að en í tyrkneska baðið. Ég kem þeirri
sprengju fyrir.
Hvað margir menn á að gizka haldið
þér að falli inn í myndina? spurði
O’Brien.
—- Það er erfitt að segja. Það myndi
vera heppilegt, ef við hefðum mynd af
öllu umdæminu og gætum einfaldlega
látið þær fara í gegnum rafeindaheila.
En ég gizka á þrjátíu þúsund.
— Það er enn fjöldi manns, og þeir
eru dreifðir yfir stórt stæði.
Walters varð að fallast á það.
Mér tókst að ljúka við reikninga Ev-
ans fyrir klukkan fimm.
Þegar ég kom heim stundarfjórðungi
fyrir klukkan sex, hafði Walters yfir-
lögregluþjónn í sömu mund komið bíln-
um sínum fyrir í bilskúrnum.
Ég veit hreint ekki mikið um hann,
nema hvað hann gegnir augsýnilega ein-
hverjum skrifstofustörfum hjá lögregl-
unni.
Hann kinkaði kolli til mín og gekk
inn í húsið.
Við höfum haft sameiginlegan bílskúr
og búið í sama húsi í tíu ár og samt ef-
ast ég um, að hann myndi þekkja mig
á götu.
Það er einn af harmleikjum ævi minn-
ar.
Það er aldrei neinn, sem tekur eftir
mér.
Mig langar til að vita eitt-
hvað um framtíð mína og leita
því til þín. Ég er fædd
klukkan 9.00 að kvöldi (fæð-
ingardegi, ári og stað sleppt
skv. ósk). Ég er núna að
hugsa um að fara til útlanda
í heimavistarskóla, heldur
þú að af því verði að ég fari?
Hvernig vinna ætli eigi bezt
við mig? Ég hugsa mikið um
einn pilt, sem ég var með í
fyrra sumar og hætti við af
sérstökum ástæðum. Hann er
fæddur í (sleppt skv. ósk),
heldur þú að við eigum sam-
an. Hann er og hefur verið
dálítið við skál, en mér líkar
vel við hann að öðru leyti.
Svo langar mig að vita hvort
ég giftist? Hvernig eiginmað-
urinn verður þá og hvað mörg
börnin verða?
Með fyrirfram þakklæti.
Vala.
Svar til Völu.
Þú fæddist þegar Sól var
29° 15’ í merki Krabbans.
Máninn var 1 14°30’ Fiska-
merkinu og hið rísandi merki
var 20° í merki Bogmanns-
ins. Hið rísandi merki í Bog-
mannsmerkinu bendir oft til
utanlandsferðar einhvern
tíma á ævinni og þá fremur
í fyrra lagi. Það er því mjög
líklegt að þú munir í náinni
framtíð leggja land undir fót
og ferðast til útlanda jafnvel
til náms.
Sólin í merki krabbans
bendir til þess að þú sért frem-
ur heima kær og að þú hafir
ríka tilhneigingu til að hugsa
aðallega um þig og þína en
að þér sé tiltölulega lítt gefið
um aðra. Samt býrðu yfir
talsvert ríkri samúð þar eð
Máninn er í merki Fiskanna
og margir líta á þig sem sam-
úðarfulla manneskju. Þessi
Samúð kemur ekki fram
nema þegar aðrir eru sjúkir
eða eiga eitthvað erfitt. Að
öðru leyti hentar þér bezt að
einbeita þér aðallega að þér
og þínum. Staða sólarinnar
þarna í sjöunda húsi þylcir
oft benda til þess að makinn
eigi eftir að skipa virðingar-
stöðu í þjóðfélaginu og hafa
talsverð mannaforráð. En svo
við víkjum aftur að Stöðu
Mánans í öðru húsi fjármál-
anna, þá veldur hann talsverð-
um sveiflum á sviði efnahags-
lífsins hjá manni, bæði að því
er fasteignir áhrærir og tekju-
öflun. Geisli annars húss fell-
ur þarna í merki Vatnsberans
og bendir það oft til tekju-
öflunar í sambandi við störf
vísindalegs eðlis. Hins vegar
er máninn staddur í merki
Fiskanna og verða tekjurnar
því einnig eitthvað tengdar
sjávarútveginum. Horfur eru
á einhverjum ágreiningi milli
þín og maka þíns út af per-
sónulegum og sameiginlegum
fjármálum ykkar.
Ástamál þín munu velta á
ýmsu fyrri hluta ævinnar þar
eð óstöðugleika gætir talsvert
í þeim efnum hjá þér. Þú ert
jafnvel það sem kalla mætti
nokkuð daðurgjörn, en býrð
þó yfir vissum metnaði í sam-
bandi við val þitt á maka.
Daðurgirni þín verður því
fremur að skoðast, sem löng-
un eftir að dveljalst í félags-
skap með einhverjum. Þegar
að giftingunni kemur mun
bera á talsverðum metnaði hjá
þér eins og ég gat um áðan og
hann getur jafnvel spillt
nokkuð fyrir framgangi ásta-
mála þinna. Hins vegar fellur
geisli sjöunda húss í merki
tvíburanná, sem venjulega
bendir til tveggja hjónabanda
eða að minnsta kosti tveggja
alvarlegra ástasambanda.
Eitthvað virðist verða til þess
að hið fyrra strandar. Hjóna-
band er líklegt undir þrítugt.
Um barneignir er það að
segja að ekki er hægt að spá
þér mikilli frjósemi, en þér
ætti alltaf að verða tveggja
barna auðið.
☆ ★ ☆
fXlkinn 31