Fálkinn - 16.01.1963, Side 33
eins og upp styttir, nauðleitum við
allan skóginn, segir hann. — Þá verð-
um við ekki lengi að ná í skottið á hon-
um! Hans bíður þung refsing. Árás á
lögreglumann að starfi — það munar
um minna!
Hann reykir ákaflega. — Svo maður
segi langt mál í fáum orðum. Það er
ekki ólíklegt, að Goritsky skipti um felu-
stað og gæti jafnvel gjarna hugsaazt að
hann leitaði hælis hér í mylnunni. Ef
svo skyldi vera, gerið þið mér undir
eins aðvart. En gætið ykkar, ef hans
kynni að verða vart. Hann er mjög
hættulegur!
Nú tekur Kristín snöggt fram í fyrir
lögregluþjóninum. — Ég tel mig þekkja
betur. Hann er ekki neinn glæpamaður.
Barða fellur illa, að velmeintar ráð-
leggingar hans skuli ekki vera teknar
til greina. Síðan tekur hann einkenn-
ishúfu sína. — Þá það, ég hef að minnsta
kosti gert skyldu mína. Þið getið þá
ekki komið á eftir og sagt að ég hafi
ekki varað ykkur við.
Stundarkorn stendur hann við dyrn-
ar og horfir löngunaraugum til skáps-
ins, þar sem hann veit að brennivíns-
flaskan er geymd. En Kristín virðist
hafa steingleymt honum. Hún styður
báðum höndum að höfði sér og það eru
djúpar Tirukkur á enni hennar.
Þegar Barði er horfinn, segir Mar-
teinn: — Bara að við gætum hjálpað
vesalings manninum.
Framh. í næsta blaði.
LITLA SAGAX
Framh. af bls. 24.
hann að vera í eldhúsinu og setja hvert
stykki inn í vélina, þar sem það átti
að vera.
Hann keypti því sex 12 manna mat-
arstell í viðbót.
Nú þurfti hann aðeins að vaska upp
tvisvar á ári.
Þótt hálft ár sé ef til vill langur
tími, voru dagarnir fljótir að líða í
hinu glaða piparsveinslífi og áður en
hann vissi af voru þeir liðnir og eld-
húsið var svo hlaðið af óhreinum disk-
um, bollum og hnífapörum, að hann
gat rétt snúið sér við í því.
En í þetta skipti varð hann að vaska
upp. Þó hafði hann ekki þvegið nema
50 diska, þegar hann fleygði burstan-
um og viskustykkinu frá sér og gafst
upp fyrir þeim er máttu sín meir,
diskunum og bollunum. Hann gat ein-
faldlega ekki þvegið einn einasta disk
framar.
Hann tók skjóta ákvörðun, greip
símann, valdi númer.
— Já, sagði hann, þegar rödd í sím-
anum anzaði, ég héti Pétur Hrafn.
Segið þér mér eitt, er þetta hjóna-
bandsmiðlunin?
Willy Breinholst.
FÁLKINN
V I K U B L A Ð
GAMLA BÍÓ sýnir á næstunni athyglisverða, bandaríska stór-
mynd, RAINTREE GOUNTY, sem hefur verið líkt við hinar vinsælu
myndir, „Á hverfanda hveli“ og „Fæðing þjóðar“. Aðalhlutverkin
eru leikin af Montgomery Clift og Elizabeth Taylor.
Bandarísk mynd úr Þrælastríðinu
f GAMLA BÍÓ verður
bráðlega sýnd bandaríska
stórmyndin „Raintree Co-
unty“, sem gerist á tím-
um Þrælastríðsins í
Bandaríkjunum. Hún er
mikil að vöxtum og efni,
og það tekur rúma þrjá
klukkutíma að sýna hana,
enda kostaði 6 milljónir
dollara að framleiða hana.
Hún hefur hlotið mjög
góða dóma og mikla að-
sókn hvarvetna, og til
marks um ágæti hennar
þá hefur henni verið líkt
við ,,Á hverfanda hveli“
(1939) og „Fæðing þjóð
ar“ (1915) báðar snilldar-
myndir sem flestir kann-
ast við og hafa séð.
Aðalhlutverkin í mynd-
inni leika: Montgomery
Clift, Elizabeth Taylor og
Eva Marie Saint, en auka-
hlutverkin eru 119, og
auk þess eru í henni
fleiri þúsund „stadistar".
Eitt aðal vandamálið
sem kom upp, þegar hefja
átti töku myndarinnar var
hvaða bakgrunn skyldi
velja. Sagan gerist að
mestu í Indiana, sem í
dag er allt önnur en hún
var fyrir 100 árum. Leik-
stjórinn lagði höfuð-
áherzlu á það að sögu-
sviðið yrði að bera sem
mestan blæ af Suðurríkj-
unum eins og þau voru á
dögum þrælastríðsins. Til
þess að leysa þetta vanda-
mál voru gerðir út kvik-
myndatökumenn í átta
ríkjum Bandaríkjanna til
að taka þar myndir af
staðháttum á þeim svæð-
um er til greina kæmu.
Áður en yfir lauk hafði
verið tekin tveggja tíma
litmynd. Endirinn var sá
að „Raintree County“ var
tekin í fjórum ríkjum:
Kentucky, Tennessee,
Missisippi og Louisiana.
Við tökuna á myndinni
var í fyrsta skipti notuð
ný upptökuvél, sem nefn-
ist „Mgm Camera 65“ og
tekur á 70 mm. breið-
filmu, hún er mjög full-
komin og njóta hinar
stórkostlegu senur sín því
enn betur en ella.
Myndin er gerð eftir
samnefndri sögu Ross
Lockridge jr. sem var
metsölubók vestan hafs og
kjörin „bók mánaðarins“.
Þetta er eins og áður
er sagt, mynd mikilla
viðburða á örlagaríkasta
tímabili bandarísku þjóð-
arinnar. Inn í hina sögu-
legu atburði er fléttað
sögu ungs manns, Johnny
Shawnessy (Montgomery
Clift) og kvennanna
tveggja í lífi hans, Nell
Gaither (Eva Marie
Saint) æskuvinkonu hans,
og hinni fögru New Or-
leans stúlku Susanna
Drake (Elizabeth Tay-
lor) sem hann giftist.
Leikstjóri er Edward
Dmytryk, sem meðal
annars gerði myndirnar
„The Cain Mutiny“ og
„Till the end of time“.
Framleiðandi David
Lewis. MGM mynd.
: v':;
FÁLKÍNN
33