Fálkinn - 20.03.1963, Síða 8
Síðastliðið haust heimsótti danski
rithöfundurinn Willy Breinholst ísland
í boði Flugfélags íslands. Hann hefur
meðal annars ritað heilmikið um Norð-
urlöndin á fjórum þjóðtungum, og nú
er röðin komin að íslandi, sem næsta
bók hans mun m. a. fjalla um. Ef sú
bók verður jafn víðlesin og „Scandina-
vian Vikings of today!“ mun ísland
verða umræðuefni fólks um allan
heim, þar eð stærsta fréttastofa heims,
Assoeiated Press, hefur einmitt nú feng-
ið leyfi höfundarins til þess að birta
kafla úr skrifum hans um Víkingana í
meira en 5000 blöðum um allan heim,
sem afla sér efnis frá AP, og munu
TEXTI □□ MYND: ANDERB
NYBDRE. TEIKNING: LEDN
lesendur þessara blaða vera nálægt 500
milljónir.
Þetta er fyrsta för Breinholst til ís-
lands, og ein af ástæðunum til þess, að
ég tók að mér að sýna honum landið
var sú, að hann ætlaði að afla sér efnis
í kafla í bækling minn, „Welcome to
Iceland“, en þar að auki viða að sér
efni í bók sína um Norðurlönd. Enda
þótt þetta væri mín fjórða ferð til
sögueyjunnar, þá varð einmitt þessi mér
minnisstæðari en hinar fyrri. Ég ætla
að skjóta því hér inn í, að Breinholst
er dálítið sérstæður, jafnfrægur og
hann er fyrir kímnigáfu sína. Hann
hefur sérlega fágaða kímnigáfu, hann
er mjög „þurr“, talar ekki mikið —
en þegar hann segir eitthvað þá kem-
ur kímnigáfan, sem setur svip sinn á
bækur hans, fljótlega í Ijós.
Flestir Danir eru á þeirri skoðun, að
ísland sé á hjara veraldar og maður
þurfi að vinna til þess að komast þang-
að, og jafnvel Breinholst var mjög hrif-
inn af því að geta setzt upp í flugvél á
Kastrup flugvelli að kvöldi dags og
drekka „asna“, snæða humar og fá sér
snúning á veitingahúsi í Reykjavík
sama kvöldið. Við komum til íslands
á laugardagskvöldi, og sunnudaginn
notuðum við til hvíldar og söfnuðum
kröftum fyrir vikuna, sem í hönd fór.
Fullir áhuga hófum við að kynna okk-
ur átmenningu íslendinga, og þann dag-
inn komumst við yfir að borða sviðin
lambshöfuð, hangikjöt, harðfisk, hákarl
og að auki skyr og vöfflur með rjóma!
Hið síðasttalda vakti svo mikinn áhuga
Breinholst, að ég varð að fresta nokkr-
um viðtölum, vegna þess að við fund-
um hann ekki — hann hafði laumast
niður í Austurstræti til þess að borða
Við kunnum strax vel við okkur hjá hinum rausnarlegu
gestgjöfum okkar í Neskaupstað ...
Breinholst talaði svo mikið inn ízlenzkar vöfflur með rjóma,
að mig langaði mest til að...
8
FALKINN