Fálkinn - 03.04.1963, Síða 6
GloCoat
FRA
JOHNSON S^WAX
verd adeins
kr34,50
Meiri gljái - minni vinna
Meira slitþol - minna verd
Hið nýja Super Glo-Coat fljótandi gólfbón
frá 3ohnson's Wax fœst nú í íslenzkum
verzlunum og kostar aðeins 34.50
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
MALARINN HF
EGGERT KRISTJANSSON *CO HF
GloCoat
FRA
JOHNSON/S T WAX
Útvarpið.
Við erum hér tvær fimmtán
ára stelpur sem langar að
segja nokkur orð um útvarp-
ið. Það er alltaf fullt af sin-
foníum og svoleiðis, en hefur
ekki upp á að bjóða neitt fyr-
ir okkur unga fólkið nema
þátt einu sinni í viku. Við
getum ekki hlustað á „Þáttinn
við vinnuna" því þá erum
við í skóla. Okkur finnst það
hljóti að vera hægt að gera
eitthvað fleira fyrir okkur.
Hvernig á maður svo að tolla
heima yfir hundleiðinlegu út-
varpi?
Dóra og Erla.
Svar:
Útvarpiö fer stööugt batnandi
aö okkar dómi, en sjálfsagt
mætti gera eitthvaö meira fyrir
ykkur „unga fólkiö."
Bréfasamband
við Norðmann.
Okkur hefur nýlega borist
bréf frá Noregi sem við von-
um að lesendur hafi áhuga á.
„Ég er norskur piltur sem
með þessum hætti vill reyna
að komast í samband við ís-
lenzkan bréfavin.
Það hefur verið mín heit-
asta ósk í mörg ár að ferðast
til íslands og ég vona að það
takist fljótlega.
Nú óska ég eftir íslenzkum
bréfavinum, bæði piltum og
stúlkum. Áhugamál mín eru
frímerki, teikning, dans og
margt fleira. Ég heiti Erik
Jörgensen og er 18 ára nem-
andi.
Ég vona að einhver hafi
áhuga á að skrifa mér.
Með þökk fyrir aðstoðina,
Eirik Jörgensen,
Box 80,
Straumsnes í Ofoten.
Norge.
Ps. Ég get skrifað norsku,
sænsku, dönsku og ensku.
Um strætisvagnabílstjóra.
Háttvirta pósthólf Fálkans!
Það á sér stað fjórum sinn-
um á dag, að ég ferðast með
strætisvagni. Fyrst er það á
morgnana í vinnuna, síðan
heim í mat og loks heim á
kvöldin. Samkvæmt mínum
útreikningi eru þetta samtals
fjórar ferðir. Auk þess fer ég
svo með strætisvagni, ef ég
fer í bíó eða eitthvað annað
á kvöldin, sem ekki kemur nú
oft fyrir í seinni tíð. Þetta
er ég búinn að gera í mörg
ár. Mér líkar að öllu jöfnu
vel að ferðast með strætis-
vögnunum og hef ekki í
hyggju að fá mér bíl þótt ég
hafi efni á því. Ég er maður
sparsamur. En það er eitt
sem ég get ekki fellt mig við
og það er, að strætisvagna-
bílstjórarnir skuli vera að lesa
dagblöðin í vögnunum. Stund-
um kemur það fyrir, að þeir
gleyma að fara á réttum tíma
af stað og það getur dregist
hálfa og jafnvel heila mínútu
fram yfir réttan tíma. Þessu
kann ég illa. Ég er mjög ná-
kvæmur og þess vegna fer
þetta í taugarnar á mér. Mér
finnst það lágmarkskrafa að
strætisvagnarnir fari á rétt-
um tíma af stað. Þess vegna
skrifa, ég þetta bréf.
K. Jóns.
Svar:
ViÖ erum ekki hinn rétti aÖU.i
til aö taka á móti kvörtunum
vegna strætisvagnanna. Ef menn
liafa eitthvaö út á þá aö setja
skulu þeir snúa sér til skrifstofu
þeirrar stofnunar sem hefur meö
þá aö gera.
Við förum oft meö strœtis-
vagni og þótt bílstjórarnir séu
aö lesa blööin kemur þaö ekki
fyrir, af þeir fari of seint af
staö. Okkur falla þeir yfirleitt
vel í geö. Ef þetta fer mjög í
taugarnar á bréfritara, skal
liann ráöast í aö fá sér bíl.
Hann segist hvort eö er eiga fyr-
ir honum..
Ástin er undarleg.
Kæri Fálki.
Ég skrifa þér af því ég er
í voðalegum vandræðum.
Þannig er að ég hef verið með
strák undanfarna sex mán-
uði og gerði fastlega ráð fyrir
að við mundum halda áfram.