Fálkinn - 03.04.1963, Side 22
ÖRLAGA
DÓMUR
Meg Turner er ung stúlka, sem strokið hefur af vandræðaheimili, en sleppur
úr klóm lögreglunnar með því að fela sig í hjólhýsi læknis að nafni Bobert
Greene. Meg er ófríð stúlka, en fyrstu nóttina í húsi læknisins tekur hann
hana tali og býður henni að gera hanai fallega með plastskurðaðgerð. Meg fær
umhugsimarfrest. Nokkru seinna er hún nærri drukknuð, þar sem hún var
að baða sig í flæðarmálinu. Ungur maður, sem býr í nágrenninu, bjargar henni.
Hann heitir Bruce Preston og Meg verður ástfangin af honum strax við fyrstu
sýn. Þegar hún hverfur af fimdi hans er hún staðráðin í að gangast undir
aðgerðina til þess að hljóta aðdáun hans. Aðgerðin tekur langan tíma og kost-
ar Meg miklar þjáningar. Daginn áður en taka á umbúðirnar að fuliu og öllu,
er Meg svo eftirvæntingarfull, að hún getur ekki sofið um nóttina. Loks stenzt
hún ekki mátið og tekur sjálf umbúðirnar af. Aðgerðin hefur tekizt. Hún er
orðin falleg, en Greene læknir hefur gert hana nauðalíka nýlátinni eiginkonu
sinni. Það er frú Verney, ráðskona læknisins, sem uppgötvar þetta, og biður
Meg að hverfa hið snarasta, áður en illt hljótist af dvöl hennar. Hún fær
henni peninga og segir henni að taka morgunlestina til London. Meg fer fyrst
á fund Bruce. Um leið og hann sér hana hrópar hann nafn Nellu, fyrrverandi
konu Greenes læknis. Hún tekur til fótanna og flýr aftur í hús læknisins . . .
Greene segir henni nú, hvers hann krefjist af henni fyrir aðgerðina. Hún á
að verða konan hans. Hann hefur sagt Bruce, að hún sé tvíburasystir Nellu.
Skömmu síðar fer Meg til bæjarins og hittir þar Bruce, sem býður henni að
vera með sér heim í bátmrni hans. Á leiðinni tekur hann að spyrja hana
spjörunum úr ...
FRAMHALDSSAGA EFTIR GARETH ALTON - 6. HLUTI
Skyldi hann veita því eftirtekt, að
hún titraði? Skyldi hann lesa úr andlits-
dráttum hennar, að hún óttaðist, að
hann grunaði hið sanna í málinu?
Meg snéri sér undan og heyrði sér til
mikils léttis, að vél bátsins var sett aftur
í gang. Báturinn sigldi með fullum
hraða inn flóann.
Skjátlaðist henni, þegar hún gat sér
til um, hvernig samband hans og Nellu
hafði verið? Var hugsanlegt, að hann
hafi aðeins verið vingjarnlegur við
Nellu af eintómri vorkunnsemi, af því
að hún var hrædd við eiginmann sinn?
Hús Greenes læknis blasti við þeim
uppi á hæðinni, skuggalegt og leyndar-
dómsfullt. Hver vissi hvað hafði gerzt
innan veggja þess? Hver voru þau örlög,
sem biðu hennar sem eiginkonu Roberts
Greenes?
Æ, hvers vegna hafði hún samþykkt
að gangast undir þessa aðgerð? Hversu
heimsk hafði hún ekki verið að halda,
að fegurðin væri mest virði af öllu í
heiminum?
— Hefur frú Verney lokið við stór-
hreingerninguna núna, spurði Bruce allt
í einu.
Meg leit til hans og kom ekki upp
nokkru orði. Hún hafði ekki búizt við
þessari spurningu.
— Hún átti mjög annríkt fyrir nokkr-
um vikum síðan, sagði hann. — Þess
vegna hefur hún sennilega fengið að-
stoðarstúlku sér til hjálpar. Dag nokk-
urn var hún að baða sig hérna við
ströndina og synti of langt. Straumurinn
bar hana að hinum bakkanum og ég
hjálpaði henni þaðan. En hún sagði ekki
hvað hún hét. Er hún enn þá í húsinu?
— Hvers vegna spyrjið þér um það?
— O, ég veit ekki.
Hann yppti öxlum. Það var eins og
hann hugsaði upphátt og einkennilegur
glampi færðist yfir augu hans.
FALKINN
22