Fálkinn


Fálkinn - 21.08.1963, Síða 4

Fálkinn - 21.08.1963, Síða 4
Birgitte Bardot lætur ekki að sér hæða. Hún hefur um langa hríð dvalizt í Róm, þar sem verið er að taka upp myndina Fyrirlitningin, sem stjórnað er af Jean — Luc Goddard. Sammy Frey er enn mjög góður vinur hennar og nýlega fóru þau út til að kaupa skó, því að þeir eru allt að helmingi ódýrari í Róm en í París. Hrossagaukurinn var talinn spá vel fyrir mönnum eða illa, eftir því í hvaða átt hann heyrðist hneggja fyrst á vorin, samanber hina alkunnu þulu: „í austri auðsgaukur — í suðri sælsgaukur, — í vestri vesælsgakur — í norðri námsgaukur — uppi unnargaukur — niðri nágaukur. Austur á skeiðum var karl, sem blótaði mjög í tali. Einkum var orðtak hans, helvítis árinn, hvar sem því var við komið. Einu sinni sem oftar heyrði hann í fyrsta sinn í hrossagaukn- um í vetsri: „Glamrar hann í vestrinu enn, helvítis árinn. En það var svo sem ekki þar fyrir, ég heyrði til hans í suðrinu í fyrra, og ekki held ég hafi nú verið mikil helvítis árans sælan fyrir því.“ Læknarnir. Læknir nokkur kom inn í bókabúð og bað um nokkur tímarit. Urðu þau að vera minnst fimm ára gömul. Þegar afgreiðslustúlkan lét í ljós undrun sína yfir því, að hann keypti svo gömul tímarit, sagði hann: — Heyrðu mig, ef þú værir nú nýbyrjuð að praktisera, vildir þú að allir sjúklingarnir vissu það um leið. Æskan. Sex ára strákur sat við hlið föður síns í stóru samkvæmi. Við sama borð sat maður, munnstór og málgefinn. Allt í einu hallar strákur sér að föður sínum og segir: — Pabbi, biddu manninn að loka munninum, svo að ég sjái framan í hann. FALKINN Fanfani, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, barðist mjög fyrir alþýðumenntun í landi sínu. Hann rak mikinn áróður fyrir því, að sem flestir lærðu að lesa og skrifa. Þó fannst mörgum, að hann hefði ekki farið rétta leið í áróðri sínum, er hann lét setja upp geysistór og áberandi skilti á hinu fátæka héraði, Kalabríu, en á þeim stóðu þessi orð: — Þið, sem kunnið að lesa. Sjáið þetta og Dean Rusk ráðherra nýtur mikillar virðing- ar. Hann hefur mjög ákveðnar skoðanir á störf- um ambassa og annarra starfs- manna utanríkis- þjónustunnar. Hann hefur lát ið hafa eftir sér þessi ummæli um starfsemina: — Meiri vinna, hugsið meira og talið minna. Þeir vilja segja, að þessi orð eigi ekki aðeins við starfsmenn bandarísku utanríkis- þjónustunnar heldur alla, sem að þessum málum vinna. ★ Kjarval kom á fund í Félagi ísl. listamanna. Hann kvaddi sér hljóðs og hélt stutta tölu á þessa leið: — Áður en ég kom á þennan fund, var ég að lesa Vísi og sá þar, að aug- lýst var eftir gráum ketti, sem hafði tap- azt. Eins og þið vit- ið er frost og kuldi núna, svo að nærri má geta, að aum- ingja kettinum líður ekki vel, ef hann er að flækjast úti. En þar sem félag þetta hefur fátt gert sér til frægðar, þá er það tillaga mín, að við slítum þessum fundi nú þegar og förum allir að leita að kettinum. Það er náttúrlega ekki víst, að við finnum köttinn, en mér þykir líklegt, að getið verði um okkur í blöðunum. lærið að lesa og skrifa. ★ 4

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.