Fálkinn


Fálkinn - 21.08.1963, Qupperneq 11

Fálkinn - 21.08.1963, Qupperneq 11
Og þarna kom hann upp stigann, þessi ódám- ur, slangraSi sitt á hvað meS kvenmannsnátt- kjól á höfSinu. Hann heyrSi raddir inni í íbúS- inni sinni. Hvar gat þetta veriS? Smásaga eftir Mögnu Lúðvíksdóttur TJÖZ.D voru plastgardínur fyrir honum. En hann var harðlokaður. Hann var nú einu sinni búinn að ákveða að fara inn um glugga og hann var alls ekki í skapi til að fara að banka á útidyrnar og vekja alla í húsinu. Þetta var þó hans hús eða hvað? Og hver gæti bannað honum að skríða inn um glugga á sínu eigin húsi, jafnvel þótt það væri ekki þvotta- húsglugginn? Mér er spurn? Það ætti bara einhver að reyna það. Hann valdi glugga með rósrauðum gardínum og hann var opinn. Þegar hann rak höfuðið inn um hann, fann hann sætan rósailm leggja á móti sér. Ja, það var nú eitthvað skemmtilegra að fara inn um þennan glugga en þvottahús- gluggann og ólíkt virðulegra fyrir forstjóra, sem átti allt, sem hugurinn girntist og girntist ekki. Hann brá öðrum fætinum inn fyrir. Fjári var gluggaboran þröng. Og nú flæktist hann í gardínunni og heyrði eitthvað detta. Þetta ætlaði ekki að takast. Hann dró fótinn út aftur og losaði gardínuna af höfði sér, klæddi sig úr frakkanum og jakkanum, Fyrst hann á annað borð var farinn að fækka fötum var eins gott að gera það almennilega, svo að hann lét skyrtuna fara um leið. Jæja, nú gekk það betur. Hann flaug inn um gluggann. Gardínan losnaði raunar og sat eins og ljósrauður vefjar- höttur á höfði hans. En hann tók ekki einu sinni eftir slík- um smámunum. Það sem máli skipti, var, að hann var kom- inn inn í húsið án þess að vekja Soffíu. Hann settist á eitthvað, sem hlaut að vera stóii, og lit- aðist um í hálfdimmu herberginu. Þarna var rúm með rum- fötum. Það sá hann glöggt. Það sem meira var, það var einhver í því — já ekki bar á öðru. Hann stóð á fætur og minntist þess nú allt í einu, að hann var í annarra manna íbúð rétt í bili. Sá, sem leigði þetta herbergi gæti orðið reiður vegna þess að hann hefði troðið sér inn um gluggann, þó hann væri eigandinn. Hann reikaði nær rúminu og augun stóðu á stiklum í höfðinu á honum við þá sjón, er þar gat að líta: Guðlega fallegur kvenmannslíkami, íklæddur einhverju, sem helzt virtist vera bláleitur þokuhjúpur. Hann sá meira að segja móta fyrir dökkum bletti neðan við kringlóttan, fagurlaga magann. Hvernig skyldi standa á því að hún vaknaði ekki, þegar ég kom inn? Nú bilti hún sér og teygði úr sér og við það lagðist sængin sem var fyrir ofan hana í rúminu yfir það, sem hann langaði mest til að sjá. Hann laumaðist ót um opnar dyrnar því að hann var hræddur um, að hún vaknaði. Hann gekk á tánum upp stigann, sem lá upp á efri hæðina og hugsun hans snerist um það eitt að fara nógu hægt. Hann skildi ekkert í því, þegar hann kom að dyrum íbúðar sinnar, að þær stóðu opnar og honum heyrðist hann greina manna- mál inni. — Hvert þó í veinandi. Tengdamamma komin núna á þessum tíma sólarhringsins! Hann tók ekki einu sinni eftir því að hann hljóðaði þetta upphátt. Hann hélt að hann hefði hugsað það. En allt í einu var hún komin fram í dyrnar og stóð þar í allri sinni breidd. Hann ætlaði að taka til fótanna. Hann sá ekkert annað úrræði, en hún kom í veg fyrir það með því að grípa í hann, föstu taki. — Soffía, æpti hún inn í ganginn, um leið og hún lokaði á eftir þeim hurðinni. — Hérna er þetta afstyrmi komið heim og hann er berstrípaður með kvenmannsnáttkjól um hausinn. Hann vaknaði með það á tilfinningunni, að hann veeri einn í íbúðinni og því var hann feginn. Honum leiddist rifrildi og þessar konur voru alltaf að rifast. Þær höfðu farið báðar um kvöldið eftir að hafa hellt sér yfir hann báðar í einu og án þess að hlusta á máttlaus mótmæli hans. Hann varð sárfeginn, þegar þær loksins fóru og hann gat farið að sofa í friði og ró. En það var nú liðin vika síðan og hann fann, þó hann vildi ekki viðurkenna það fyrir sjálfum sér, að það var ekki allt fengið með því að losna við Soffíu. — Ekki allt. Til dæmis var nú engin skyrta hrein í skápnum lengur, enda þótt hann væri þegar búinn að kaupa sér þrjár nýjar. Það var ekki hægt — jafnvel fyrir hann, — að kaupa sér ný föt, þegar hin gömlu skitnuðu. Hann var nú aldrei heldur neitt hrifinn af þessum veitingahúsum til lengdar. Hann fór hálfklæddur fram í eldhúsið og leitaði að einhverju ætilegu. Þar var ekkert, nema hálf sultukrukka, uppþornaðar sítrónur og eitthvert gums í skál. Hann skellti ísskápnum illskulega aftur. Til hvers voru þessir dýrindis ísskápar eiginlega? Hann hafði alltaf haft gaman af að raka sig, því að hann var laglegur og naut þess ð skoða sjálfan sig í speglinum. Auk þess var hann fallega vaxinn, því að hann stundaði alltaf skíðaferðir og yfirleitt flestar íþróttir, sem voru í tizku, bæði þær gagnlegu og skemmtilegu. Hann fann ekkert hreint handklæði. Þegar hann hafði umsnúið öllu í skápum og skúffum án árangurs, greip hann símann og hringdi. Tengdamóðir hans svaraði og það ekki beínllnis blíð í henni raustin. En hann var líka reiður og nú fannst honum nóg komið. — Ég þarf að tala við Soffíu, þrumaði hann, — hún hleyp- ur frá heimilinu í reiðileysi og lætur sig engu skipta, hvað um mann verður. Láttu hana strax koma í símann. — Það er ekki hægt, kvað sú aldraða, — hún sefur. — Ha, sefur og komið langt fram á dag. Ætli hún hafi ekki gott af að fara að vakna. Framh. á bls. 33. FÁLKINN 11

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.