Fálkinn


Fálkinn - 21.08.1963, Page 17

Fálkinn - 21.08.1963, Page 17
— Heyrðu, eigum við ekki að slá okkur saman . gæzkan? Sonja virti hann ekki viðlits. — Hvers vegna eyðir þú tíma þínum með þessari rjómabollu, honum Sam? Hvað er það sem hann hefur, og ég hef ekki miklu meira af? Python greip um handlegg Sonju. — Láttu mig í friði, hrópaði hún og reyndi árangurslaust að slíta sig frá Python. Hann fór með hana lengra inn í myrkrið neðar á götunni. Jói sat uppi í rúminu sínu og móðir hans kom inn til að bjóða honum góða nótt. — Hefurðu tekið eftir, sagði hann við hana, — að allir óska sér eins eða annars, svo að við megum vera ánægð með litla nashyrninginn. — Við erum líka ánægð Jói, sagði mamma hans ... En hún var ekki glöð, þegar hún hugsaði um, að pabbi Jóa var í Afríku. — Allir fá það, sem þeir óska sér, hélt Jói áfram. — Kandinsky getur fengið gufupress- una sína, Sam getur unnið keppnina, Sonja getur fengið hringinn sinn og ég — ég ... Jói þagnaði. — Hvers óskar þú? spurði móðir hans. Og bæði hugsuðu um föður Jóa. — Ég óska þess, sem þú óskar, sagði Jói. Niður á klæðskeraverkstæðinu stóð Sam fyrir framan spegil og athugaði sjálfan sig gagnrýninn. Glíman átti alls ekki við vöðvabyggingu hans. Skyndi- lega heyrði hann fótatak úti á götu. Hann ppnaði dyrnar og Sonja hljóp framhjá honum inn í búðina. Á eftir henni kom Python Macklin þjótandi. Sam rétti fram fótinn og brá honum fyrir risann, svo að hann skall flatur. Augnablik lá hann og horfði á Sam. — Nú, svo að þú vilt fá fyrir ferðina núna, sagði hann í hótunartón og stóð hægt á fætur. Jæja, rjómabolla, þú skalt fá það. Sam stóð úti á götu, reiðubúinn að takast á við Python. Hann sá hatrið í augum hins risavaxna manns. En árásin kom ekki. — Nú verður þú að bíða, minn kæri Sammy, sagði Python og glotti. Hann benti yfir göt- una, þar sem lögregluþjónn stóð undir ljósastaur og virti þá þegjandi fyrir sér. — Heyrðu, lögregluþjónn. Þegar ég hitti Sammy í hringnum, skal ég gera úr honum kjötkássu. Python kom sér burtu. Sam æfði sig enn þá meira og daginn fyrir keppnina var hann í góðri þjálf- un — en myndi honum ekki takast það vegna reynsluleysis? — Þú skalt ekki vera taugaóstyrkur, sagði Svarti-fsak við hann. En það var Sam nú samt. — Bara ekki taugaóstyrkur, segja þeir nú allir, tautaði hann, þegar hann var að sippa í húsagarði Kandinskys. Jói var þar nálægt og gældi ástúðlega við horn kiðlingsins. Hann hafði safnað ýmiss kona dóti að sér, en það var allt hluti í óskaleik hans. — Nashyrningur, gerðu Sam að kon- ungi allra glímukappa, sagði hann. Sam heyrði það. Jói tók til við næstu ósk. Nú nuddaði hann gömlum látúnshring við horn kiðl- ingsins og sagði: — Nashyrningur, útvegaðu Sonju hring. Jói hélt áfram: — Og svo er það næsta ósk, nas- hyrningur. Herra Kandinsky verður að fá nýja sjálfvirka gufupressu. Það ger- ir ekkert til þótt hún sé svolítið notuð. Og svo — svo á ég bara eina ósk enn__ Jói beygði sig yfir kiðlinginn og hvísl- aði: — Kæri góði nashyrningur — sendu pabba minn heim til mín. Það stóðu langar biðraðir fyrir utan húsið, þar sem hin mikla glímukeppni milli Sam og Python átti að fara fram. í búð Kandinsky biðu þau Sonja og Bully Bason. Kandinsky skokkaði um á nærbuxunum og gat ekki fundið fínu buxurnar, sem hann ætlaði að klæðast í tilefni kvöldsins. Jói lá á grúfu á gólf- inu ... Þar var nashyrningurinn hans líka. Litla dýrið var alltof veikbyggt til að halda sér uppi. Það lá með lokuð augu og dró varlega andann. Jói hvíslaði að því: — Notaðu nú kraftinn í horninu þínu til að þér geti sjálfum liðið betur. Svo sneri hann sér að Kandinsky og sagði dapur við hann: — Það getur vel verið, að við ættum að senda hann aftur til Afríku. Bara í frí... — Æ já, kannski hefði hann átt að hafa leyfi til að vera í friði f Afríku, sagði Kandinsky. í sama bilí fann hann buxurnar sínar. Æ, þær eru krumpaðar. Og nú hef ég ekki tíma til að pressa þær. — Það verður gaman, sagði Jói — þegar við fáum þessa gufupressu. — Jói gleymdu öllu þessu með gufu- pressuna. Hver hefur ráð á slíku? — Já, Sam, sagði Jói — Sam fær mikið fé, þegar hann hefur sigrað í keppninni. — Já, það er satt, Jói, Kandinsky kinkaði kolli meðan hann fór í bux- urnar. — Það var góð hugmynd, sem þú gafst mér, Jói. — Láttu þá fara eina — bíddu held- ur og komdu með okkur, sagði Kand- insky litlu síðar við Sonju, þegar Bully og Sam voru tilbúnir til brottfarar. — Nú já, það er ef til vill líka betra, sagði Sonja og kyssti Sam í kveðju- skyni. — Sam er indæll piltur, sagði Kan- dinsky, þegar Sam og Bully voru farnir. — Og ef hann vinnur keppnina ... — Guð gefi það, sagði Sonja innilega. — Ef hann kemur til mín og segir við mig: Ég hef keypt gömlu gufu- pressuna, eigum við ekki að hafa með okkur félagsskap? Jú, ef hann segði það, myndi ég segja: „Það skulum við gera, Sam! Alveg í hvelli!“ Skyndilega hrópaði Jói skelfdur: — Hvers vegna — hvers vegna skelf- ur hann? Kiðlingurinn skalf ákaft og barðist Framhald á bls. 28. e W * » » 2 « g; ift R ^ 95 M, u 'i. < oi »' tr 8, c ?• g ^ 83 O O 5’ © £ H 83 »-t» Sj* * » Sí * 3 — X* 83 < 5 I 1 83 K »U- 1 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.