Fálkinn


Fálkinn - 21.08.1963, Page 32

Fálkinn - 21.08.1963, Page 32
KVIKMYNDIll Framh. af bls. 31. ist „Best Foot Forward“ Henni hafa borizt mörg tilboð frá plötu- útgefendum og kvikmyndaleik- stjórum. ★ Danny Milland er tuttugu og þriggja ára og leikur í sjónvarps- þáttum. Hann er sonur Ray Mil- land („Glötuð helgi“.) Hann er upp undir tveir metr- ar á hæð. ★ Maurcen Reagan er tuttugu og eins árs og er dóttir þeirra Ronald Reagan og Jane Wyman og mun bráðlega koma fram í kvikmynd í fyrsta sinn. ★ Tracy og Ned Wynn eru syn- ir gamanleikarans Keenan Wynn og eru þeir þriðja kynslóð gaman- leikara í þeirri fjölskyldu. ★ Geraldine Chaplin er átján ára ballettdansmær. Hún hefur dansað fyrir brezku drottninguna og er eins og allir vita dóttir Char- lie Chaplin og konu hans Oonu. ★ Leikarinn og leikstjórinn Paul Henreid á dóttur, sem Monika nefnist. Hún er tvítug og hefur sungið á kaffihúsum og mun brátt koma fram í myndinni, Dead Ri»g- er, með þeim Betta Davis og Karl Malden. Faðir hennar sagði einu sinni: „Ég held, að hún hafi mjög mikla hæfileika. Og ég segi þetta ekki af því að ég er faðir hennar.“ ★ Þá má nefna börn Henry Fonda, þau Peter og Jane, sem bæði þykja mjög efnilegir og vax- andi leikarar. ★ Loks er að svo Sean Flynn, sonur Errols sáluga. Hann er inn- an við tvítugt en þegar byrjaður nS leika í kvikmyndum. Síðasli lilckknrinn Framh. af bls. 3L — En ef hann hefur verið hér um borð, þá hlýtur frænka hans að hafa séð hann — löngu áður en hún var myrt. — Ekki ef hann héldi sig alltaf í túristafarrýminu. Hann vissi, að hún ferðaðist á fyrsta farrými. Hann pant- aði sjálfur farmiðann hennar. — En þá hlýtur einhver að vera hér um borð — ef til vill einhver af þjón- unurri — sem myndi kannast við andlit hans. Hefur þeim ekki verið sýnd mynd af honum? — Jú, og einum þeirra fannst hann meira að segja kannast við andlit hans, en hann var ekki viss. Það er heldur ekki til neitt auðveldara en að breyta andliti sínu — þykk gleraugu, skegg ... — Tja ... Amanda var á báðum átt- um. Mér finnst þetta nú allt dálítið ótrúlegt. — Auðurinn er það mikill, að það hefur verið freistandi að tefla á tvær hættur. — En hugsið þér yður, að einhver hefði fundið gúmmíbátinn, þ. e. s. ef um einhvern bát hefur verið að ræða. Þú varst sjálfur áhyggjufullur vegna þíns. — Ef hann hefði átt nokkuð á hættu með það, hefði hann áreiðanlega ekki framið morðið. Með tilliti til bátsins var hann miklu heppnari en ég, hann þurfti alls ekki að fela hann í björgunar- bát. — Hvað? — Nei, það er margt ennþá, sem ég á eftir að segja þér. Það lítur út fyrir, að nokkru fyrir morðið hafi það verið vani Everetts að vera að heiman á hálfs- mánaðarfresti. Hann sagðist vera í verzlunarferð. Ég uppgötvaði, að hann hafði eytt þessum tíma í Southampton. Ég fann gistihúsið, sem hann var vanur að búa á þar, og fékk að vita, að nokkr- um sinnum hefði ung kona verið í fylgd með honum. Ég gat ekki fengið nánari lýsingu á henni en að hún hefði verið dökkhærð og mjög töfrandi. Ég upp- götvaði líka, að ferðir hans hingað voru alltaf á sama tíma og koma Carmaniu. Það gat verið að það væri vegna þess að stúlkan væri á skipinu. Svo komst ég að því, að Everett hafði verið far- þegi með Carmaniu fyrir hálfu ári. Nú getur þú séð, hvernig þetta helst allt í hendur, hann þekkir meira að segja allar skipsreglurnar. Og ef hann hefði einhvern meðsekan um borð í skipinu, kannski eitthvert ævintýrakvendi, sem væri til í að deila fengnum með honum, var ekkert auðveldara fyrir hana en að geyma bátinn. — Þetta er spennandi, sagði Amanda. — Haltu áfram. — Þess vegna, hélt Munro áfram, fór ég strax að gefa því gætur, hver af starfsfólkinu hér um borð væri líkleg- ust til að vera sú meðseka. Ég gekk strax úr skugga um það, að hana væri ekki að finna meðal skipsjómfrúnna. Ég ímyndaði mér, að Everett hefði sagt henni frá mér — hversu mjög ég hafði yfirheyrt hann — og að hann hefði gefið henni lýsingu á mér. Munro þreif- aði á örinu á hönd sinni. Og það er auð- velt að bera kennsl á mig. Ég áleit, að ef stúlkan ynni ennþá á skipinu og sæi mig, myndi hún áreiðanlega reyna að komast í kynni við mig til að komast að því hvað mér byggi í hug. Hann þagnaði. Amanda svaraði engu. — Og þú reyndir að kynnast mér. Þú þekktir mig auðvitað strax og ég kom inn í verzlunina. Þú hrasaðir vilj- andi á þilfarinu — og lentir á mér, til að hafa ástæðu til að tala við mig. Þú reyndir að veiða mig, og ég fann upp á þessu með hæfnisprófið. Þegar þú svo h HAh JS PETERSEN H IF Sími 2-03-13 Bankastræti 4. 32 fD&LKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.