Fálkinn - 21.08.1963, Síða 34
PANDA DG TDFRAMAÐURINN MIKLI
„Bátur, sem bara siglir með okkur burt... talandi
kaffikanna ...“ tautaði Panda hryggur í bragði. „Við
skulum taka boði... kaffikönnunnar,“ svaraði Jolly-
pop „og fá okkur kaffibolla, herra Panda“ Hikandi
settist Panda niður og starði vantrúaður á könnuna,
sem Jollypop hellti úr heitum drykk sínum. „Einn eða
tvo mola?“ pípti sykurkarið hressilega. Panda stökk á
fætur. „Heyrðir þú það, Jollypop?“ stamaði hann.
„Vissulega, herra,“ svaraði Jollypop kuldalega. „Einn
eða tvo mola?“ „Kaffikönnur og sykurkör, sem tala,“
æpti Panda. „Hvernig getur þú setið þarna jafn róleg-
ur eins og ekkert undarlegt væri að ske?“ „Mjög
athyglisvert," Samþykkti Jollypop. „Maður getur
ekki neitað því að þetta er gestrisni."
Panda var mjög órólegur um borð í þessum dular-
fulla bát, þar sem kaffikönnur og sykurkör gátu
talað. „Ágætt kaffi, herra Panda,“ sagði Jollypop og
hvatti húsbónda sinn til að fá sér einhverja hressingu.
„Kaffikannan hafði alveg rétt fyrir sér.“ „Ég vil ekki
kaffi,“ svaraði Panda og leit taugaóstyrkur í kringum
sig í klefanum. „Ég þarfnast lofts.“ Þegar hann gekk
út á þilfar, varð hann enn einu sinni undrandi. Fyrir
framan stefni skipsins var nú ókunn og einkennileg
eyja. „Jollypop," kallaði hann að lokum, þegar hann
loksins fékk málið. „Jollypop. Komdu strax og sjáðu
hvert báturinn hefur farið með okkur."
„Komdu og horfðu á þessa undarlegu eyju, Jollypop,“
kallaði Panda. Við siglum beint á hana.“ „Mjög at-
hyglisvert,“ svaraði hann, og lét brúnir síga. „Hvort
viltu heldur drekki kaffið hér eða í klefanum, herra
Panda?“ „Kaffi?“ hrópaði Panda önugur. „Hver hef-
ur tíma til að drekka kaffi? Geturðu ekki séð að þessi
bátur siglir beint á klettana? Hvað eigum við að
gera?“ „Halda rósemi okkar,“ ráðlagði Jollypop.
„Halda rósemi okkar ... halda rósemi okkar...“ orð
hans bergmáluðu í klettunum ...
34 FÁLKINN