Fálkinn


Fálkinn - 21.08.1963, Page 36

Fálkinn - 21.08.1963, Page 36
tlnuft glugiiatjöld Framh. at bls 33 Hann hné magnlaus ofan í stólinn. — Tenedamamma, vældi hann aum- kunarlega, — heldurðu ekki, að þú getir komið vitinu fyrir hana? — Ja, vitinu. Sú gamla hvessti á hann augun. — Ertu viss um að það sé meira vit að vera tengdamóðir þin og fyrir hana Soffíu mína að vera gift svona drykkju- manni, því að það er varla hægt að kalla bað öðru nafni. Ertu búinn að glevma útganginum á þér hérna um kvöldið? Honum fannst hann verða að engu og hann gat ekki hugsað. Það var allt í einum hrærigraut í höfði hans, en svo rofaði litilsháttar til: — Heyrðu, tengdamamma, hann rétti sig upp úr stólnum, — þetta er sjálf- sagt rétt hjá þér en af því að þú hefur alltaf verið mér innan handar, þá ætla ég að segja þér að ég var eiginlega búinn að ákveða utanlandsferð í sumar og við tækjum þig með. Hann hefði getað bitið úr sér tung- una, þegar hann var búinn að segja þessi orð, — orð, sem alls ekki virtust upprunnin í hans heila, því að þegar allt kom til alls, var Soffía svona stórra fórna virði? ’T'fnvdamóðir hans lygndi aftur aug- unum, en ekki nogu fijott samt til að hann sæi ekki sigurhrósið í þeim og honum fannst að leikið hefði verið á sig — Hvert ætlar þú að fara sosum, það er þá varla merkilegur staður, ef ég þekki þig rétt. hreytti hún út úr sér. Honum rann kalt vatn milli skinns og hörunds um tilhugsunina, að þetta hrifi kannski ekki einu sinni. Ef hún gæti ekki komið Soffíu heim til hans, þá gæti það enginn, ef hann þekkti hana rétt, því að ef hún hefði mann á önglinum, sem gæti keypt handa henni pels þá . . . — Við gætum nú komizt að sam- komulagi, hvert við förum, býst ég við, sagði hann, gjörsamlega yfirunninn. Þær komu báðar um kvöldið. Og Soffía, sem varla virti hann viðtals, tilkynnti honum, að mamma sín, ætlaði að dveljast hjá þeim um tíma. Hann athugaði hana og dáðist að hreyfingum hennar og þokkafullum vexti og því, sem hafði heillað hann fyrir nokkrum árum, en ekki veitt at- hygli langa lengi. Það virtist allt vera til staðar. Það var bara þetta með hárið. Það var alveg slétt eins og venjulega og eins og hann vildi helzt hafa það. En það kom ekki heim við það, sem þær höfðu talið honum trú um. Konur fóru ekki á hárgreiðslustofur til að koma alveg eins til baka. Það var ekki óvanalegt, að þær kæmu aftur með fígúrulega háruppsetningar. Til þess fóru þær . . . Hann hugsaði, virti fyrir sér konuna, hugsaði. Hann hafði líka orðið að lofa henni pelsinum. Hann brá sér inn á skrifstofuna sina, sem var eini staður- inn í húsinu, þar sem hann gat haft frið og rykið fékk að vera á húsgögn- unum í friði. Og hann hélt áfram að hugsa. Hann tók flösku út úr skápnum í skrifborðinu og fékk sér lögg. Hann hafði verið gabbaður. Það sá hann nú og þeim mun skýrar, sem hann drakk meira. Hann opnaði skáp í skrifborðinu og rótaði í hinu og þessu dóti, sem hann geymdi þar og var yfirleitt ekki geymt í skrifborðsskápum. En hann kærði sig ekkert um, að neinn skipti sér af þess- um hlutum. Hann dró út skíðafatnað af sjálfum sér og hinar og þessar flíkur, sem höfðu orðið eftir í fórum hans, einhverra hluta vegna við hinar og þessar aðstæður. Þarna kom blússa, fallegasta flík. Hann mundi ekkert eftir hver hafði átt hana. Loksins kom það, sem hann var að leita að. Ljósrauða gardínan. Hann lagði hana á skrifborðið og fékk sér meira neðan í því. — Stúlkan var kannski fátæk og það var eins og hver annar þjófnaður því hún var tvímælalaust hennar eign. Það var allsendis óvíst, að hún hefði efni á því að kaupa sér aðrar gardínur. Vel gæti það hugs- Framhald á bls. 38. Ferðamenn! Flóru gosdrykki og sælgæti er sjálfsagt að hafa með í ferðinni. Efnagerðin Flóra. Akureyri. 36 fÁLWNN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.