Fálkinn - 08.06.1964, Blaðsíða 15
Guðjón Teitsson,
forstjóri Skipaút-
gerðarinnar, er víst
þeirrar skoðun-
ar, að það sé
ekki síður hollt að
ferðast á hestum
en á sjó. Hann
er hér með hest sinn
Kol, sem er
jarpur, og keppti
fyrir Neon-raf-
ljósagerðina.
:
okkur því að yfirmanni gullhnappanna, sprenglærðum umferða-
sérfræðingi heiman og erlendis frá, og spurðum hann álits. Hann
horfði á eftir reiðmönnunum, og síðan á strákana sína, sem voru
búnir að undirbúa veginn fyrir reiðmennina. „Þeir ætluðu að koma
hérna,“ sagði hann „og við bara hleypum þeim ekki annars staðar“.
Við þetta létti okkur Kára mikið, því ekki hefði svo sem verið
ónýtt að ná myndum af því, ef löggan hefði farið að berjast við
þrjú hundruð riddara, en til þess kom aldrei, því um leið og liðs-
foringinn hafði lokið máli sínu sneru knaparnir við og stefndu í
rétta átt. Og svo við látum nú varðstjórann njóta sannmælis, sem
Framhald á bls. 31.
Að ofan. Það þekkja margir þennan knapa í sjón, en allir
landsmenn þekkja rödd hans. Hér er kominn Ragnar
Tómas Árnason, útvarpsþulur með hest sinn Blæ, en
sá er grár að lit. Ragnar keppti fyrir Víking h.f. Ragnar
er mikill hestamaður og öll fjölskylda hans hefur mikið
yndi af hestum og útreiðum.
Hún Gletta gamla kunni ekki við neinn silagang og tók sprettinn
með eiganda sinn, Sigurð söngvara Ólafsson. Það er vissulega enn
f jör og skap í henni, þótt 27 vetra sé. Sigurður keppti fyrir Ölgerð-
ina Egil Skallagrímsson.
Helgi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá SÍS á Sörla
sínum, brúnum hesti. Hann keppti fyrir Bílavarahluta-
verzlun Kristins Guðnasonar.